
Tilkynningum til lögreglu um heimilisofbeldi fjölgaði á landsvísu árið 2025, samkvæmt nýrri skýrslu Ríkislögreglustjóri. Alls bárust lögreglu 2.485 tilkynningar um heimilisofbeldi á árinu, sem jafngildir rúmlega tveggja prósenta aukningu miðað við meðaltal síðustu þriggja ára. Sé einungis miðað við árið 2024 nemur fjölgunin tæpum þremur prósentum.
Að meðaltali bárust tæplega sjö tilkynningar á dag, eða um 207 á mánuði. Flestar tilkynningar voru skráðar í desember, alls 138 talsins.
Skýrslan, sem hefur verið birt á vefsvæði lögreglunnar, fjallar um heimilisofbeldi og ágreining milli skyldra og tengdra aðila á árinu 2025.
Veruleg aukning í endurteknu og alvarlegu ofbeldi
Í skýrslunni kemur fram að sérstaklega sé áberandi aukning í tilvikum sem flokkast sem endurteknar eða alvarlegar hótanir gegn lífi og heilsu samkvæmt 218. gr. b almennra hegningarlaga. Slík mál voru 156 árið 2025, samanborið við 116 árið 2024, sem nemur tæplega 35 prósenta aukningu milli ára.
Beiðnir um nálgunarbann voru alls 95 á árinu og fjölgaði þeim um 16 prósent miðað við árið á undan. Sé hins vegar horft til meðaltals síðustu þriggja ára á undan hefur beiðnum fækkað um fimm prósent.
Ofbeldi foreldra meira
Þegar tengsl árásaraðila og þolanda eru skoðuð kemur fram að heimilisofbeldi milli para, núverandi eða fyrrverandi, var algengast. Slík mál voru 791 talsins og námu 63 prósentum allra heimilisofbeldismála. Þar varð tæplega 4 prósenta fjölgun miðað við síðustu ár.
Tilkynningum um ofbeldi foreldris í garð barns fjölgaði einnig. Þau jukust úr 142 tilvikum árið 2024 í 160 árið 2025, sem jafngildir um 13 prósenta aukningu. Í heildina voru karlar grunaðir um að vera árásaraðilar í tæplega 74 prósentum allra heimilisofbeldismála, en konur voru 65 prósent þolenda.
Meðalaldur árásaraðila var 36,6 ár og meðalaldur þolenda 33,5 ár. Þá voru 26 prósent þolenda yngri en 26 ára, en 19 prósent árásaraðila voru í þeim aldurshópi.
Hlutfallslega fleiri mál á höfuðborgarsvæðinu
Af þeim heimilisofbeldismálum sem tilkynnt voru til lögreglu á árinu áttu 74 prósent sér stað á höfuðborgarsvæðinu, en 26 prósent á landsbyggðinni. Þegar litið er til ágreiningsmála voru 67 prósent þeirra á höfuðborgarsvæðinu og 33 prósent á landsbyggðinni.
Samkvæmt mannfjöldatölum 1. janúar 2025 bjuggu um 64 prósent landsmanna á höfuðborgarsvæðinu og 36 prósent á landsbyggðinni.
Fáir tilkynna ofbeldi til lögreglu
Í árlegri þolendakönnun lögreglunnar fyrir árið 2025 sögðust 1,3 prósent svarenda hafa orðið fyrir heimilisofbeldi af hendi maka eða fyrrverandi maka. Af þeim höfðu einungis 29 prósent tilkynnt atvikið til lögreglu.
Í Íslenska æskulýðsrannsóknin árið 2025 sögðust 7 prósent nemenda í 9. bekk og 9 prósent nemenda í 10. bekk hafa orðið vitni að ofbeldi gegn foreldri.
Ætíð er hægt að tilkynna brot með því að hringja í 112. Á ofbeldisgáttinni 112.is má einnig finna upplýsingar um þau úrræði sem standa til boða fyrir þolendur, aðstandendur og gerendur sem vilja láta af ofbeldishegðun.

Komment