
Ný vending er komin upp í máli sem varðar morðið á íhaldssama aktívistanum Charlie Kirk, en samkvæmt nýjum lagagögnum passar kúlan sem notuð var í árásinni ekki við riffilinn sem tengdur er við sakborninginn Tyler Robinson.
Samkvæmt gögnum sem miðillinn TMZ hefur undir höndum heldur verjendateymi Robinsons því fram að misræmi sé á milli skotvopnagagna og þess vopns sem saksóknarar segja að hafi verið notað í verknaðinum. Robinson stendur frammi fyrir alvarlegum ákærum, þar á meðal fyrir morð af yfirlögðum ásetningi og skotárás sem olli alvarlegum meiðslum.
Lögmaður Robinsons segir að skýrsla frá bandarísku áfengis-, tóbaks-, skotvopna- og sprengiefnastofnuninni (ATF) sýni að ekki hafi tekist að tengja kúluna sem fannst við krufningu við riffilinn sem tengdur er við Robinson.
Í gögnum málsins segir jafnframt:
„Þrátt fyrir að ríkið hafi ekki gefið til kynna að það hyggist leggja fram þessa skýrslu við þingfestingu málsins gæti verjandinn ákveðið að kalla til skotvopnasérfræðing ATF sem sönnunargagn sem sýni fram á sakleysi.“
Fjöldi gagna og ókláruð rannsókn
Verjendur segja einnig að enn sé fjöldi réttarrannsókna ólokið og að þeir geti ekki metið áreiðanleika gagna fyrr en þeir hafi fengið fullan aðgang að málsgögnum og látið eigin sérfræðinga fara yfir þau.
Samkvæmt verjendum hefur saksóknari þegar afhent um 20.000 skjöl í málinu, sem innihalda meðal annars um 61.500 blaðsíður, 31 klukkustund af hljóðupptökum og yfir 700 klukkustundir af myndskeiðum í meira en 5.000 myndbútum. Þeir segja að það muni taka að minnsta kosti 60 daga að fara yfir gögnin í fyrstu umferð.
Vilja opin réttarhöld
Lögmenn Robinsons hafa einnig farið fram á að réttarhöldin verði sýnd opinberlega. Þeir segja að gagnsæi geti dregið úr rangfærslum:
„Að halda réttarhöldum eins opinberum og mögulegt er hjálpar til við að slá á og leiðrétta rangfærslur, á meðan leynd ýtir undir samsæriskenningar.“
Játning og möguleg dauðarefsing
Áður hefur komið fram að Robinson hafi játað fyrir föður sínum að hafa skotið Kirk til bana á háskólasvæði Utah Valley University þann 10. september. Faðir hans hafi í kjölfarið sagt frá því við prest sem starfar með bandarísku lögreglunni, og Robinson gaf sig síðar fram við lögreglu.
Ef Robinson verður sakfelldur fyrir morð gæti hann átt yfir höfði sér dauðarefsingu.

Komment