
Samkaup sem rekur Nettó, Kjörbúðina og Krambúðina hefur sagt upp 22 starfsmönnum en Heiður Björk Friðbjörnsdóttir, forstjóri og framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Samkaupa, staðfesti það í samtali við Mannlíf.
Heiður segir að öllum sem sagt var upp starfi á skrifstofu fyrirtæksins og að aðgerðirnar hafi ekki náð til starfsfólks í verslunum.
„Aðgerðirnar eru liður í hagræðingaraðgerðum sem miða að því að styrkja rekstur okkar til framtíðar. Rekstrarniðurstaða Samkaupa á síðasta ári var undir væntingum og mikilvægt var að bregðast við því,“ sagði Heiður spurð út í ástæðu þess að starfsfólkinu var sagt upp.
„Tækifæri eru til staðar til að styrkja verslananetið. Samkaup rekur um 60 smávöruverslanir víðsvegar um allt land þar sem við viljum fyrst og fremst efla þjónustu til okkar viðskiptavina enn frekar,“ sagði forstjórinn um framtíð fyrirtækisins.
Komment