1
Innlent

Sigurður Helgason er látinn

2
Fólk

Matthías í VÆB var nær dauða en lífi sem barn

3
Minning

Þjóðin segir sögur af Lalla Johns

4
Pólitík

Jón Gnarr afþakkar boð í Spursmál

5
Heimur

Fyrrverandi sérsveitarmenn Breta stíga fram og lýsa meintum stríðsglæpum

6
Heimur

Nýjasta jarðskjálftahrinan vekur ótta nærri Napólí á Ítalíu

7
Innlent

Engin tilkynning hefur borist Hopp um líkamsárás leigubílstjóra

8
Menning

Vill að RÚV sýni nýjustu mynd Attenborough

9
Innlent

Íslenskir leikstjórar meðal kvikmyndastjarna sem birtu opið bréf í Variety og Liberation

10
Heimur

Hálfnakið lík ferðamanns fannst á reki við strönd í Taílandi

Til baka

Samverustund í FNV vegna alvarlegs umferðarslyss nærri Hofsósi

Tveir drengjanna hafa verið fluttir af gjörgæslu

FNV
Fjölbrautarskóli Norðurlands vestraSamverustund verður haldin í skólanum á þriðjudaginn.
Mynd: fnv.is

Vegna alvarlegs umferðarslyss sem átti sér stað við Hofsós á föstudagskvöld hefur verið boðað til samverustundar í Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra (FNV). Í slysinu slösuðust fjórir ungir menn, 17 og 18 ára að aldri, alvarlega.

Allir drengirnir voru fluttir á gjörgæsludeild Landspítalans en tveir þeirra hafa nú verið útskrifaðir þaðan.

Þorkell Þorsteinsson, settur skólameistari FNV, segir slysið hafa haft djúpstæð áhrif á samfélagið.

„Við búum í litlu samfélagi þar sem svona atvik snerta marga, sérstaklega jafnaldra drengjanna,“ segir hann í samtali við RÚV.

Drengirnir voru á leið í samkvæmi á Hofsósi ásamt öðrum ungmennum þegar slysið varð. Um 30 ungmenni voru á vettvangi og fengu þau áfallahjálp frá viðbragðsaðilum.

Vegna páskafrís er ekki hefðbundið skólahald í vikunni, en Þorkell segir samverustundina vera tækifæri fyrir nemendur og aðra til að hittast, ræða atburðinn og veita hvert öðru stuðning.

Samverustundin fer fram í bóknámshúsi skólans þriðjudaginn 16. apríl klukkan 17.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Komment


Lúsmý
Landið

Hlýindi í maí kunna að hafa vakið lúsmý til lífs á Austurlandi

Milorad Dodik
Heimur

Litháen refsar leiðtoga Bosníu-Serba

Hallgrímskirkja
Innlent

Enn fækkar í Þjóðkirkjunni

Diego
Landið

Mála Silfurtorg á Ísafirði í litum trans fánans

palli-palestina
Innlent

Páll Óskar flytur ávarp á samstöðufundi fyrir Palestínu

stefan-jongnarr
Pólitík

Jón Gnarr afþakkar boð í Spursmál

|
Innlent

Sigurður Helgason er látinn

Engey
Innlent

Lík fannst í sjónum á milli Engeyjar og Viðeyjar