
Gunnar Örlygsson, fyrrverandi þingmaður og forstjóri Icemar, gagnrýnir harðlega það sem hann segir vera aðdáun á Donald Trump meðal ákveðinna stjórnmálaafla hér á landi og spyr hvort hún sé nú að dvína.
Í Facebook-færslu veltir hann því upp „hvort hrifningin á Trump forseta fari dvínandi meðal XD & XM þessa dagana“ og segir að sumir séu farnir að breyta afstöðu sinni, þó þeir hafi áður þagað yfir umdeildum ummælum hans.
Hann gagnrýnir sérstaklega þá sem hann segir hafa ekki brugðist við þegar Trump lét í ljós hugmyndir um að beita valdi gagnvart NATO-ríkjum:
„...sömu aðilar þögðu þunnu hljóði þegar sá hinn sami hótaði að taka yfir Nato ríki með valdi, fyrir utan alla aðra óboðlegu vitleysuna.“
Gunnar segir einnig að þeir sem lýsi sig sem málsvara frelsis og fullveldis standi í mótsögn við eigin málflutning:
„Hvers konar frelsi eða fullveldi bíður okkar ef þau sem stjórna vilja Íslandi í raun aðhyllast fasíska orðræðu eins og Trump og hans skósveinar standa fyrir?“
Í færslunni útskýrir hann að þessi þróun hafi verið ástæða þess að hann sagði sig frá störfum innan Sjálfstæðisflokksins:
„Það er ástæða fyrir því að ég sagði mig algerlega frá öllu starfi Sjálfstæðisflokksins...“
Hann heldur því jafnframt fram að lítil munur sé á skoðunum Sjálfstæðisflokks og Miðflokks í dag og varar við áhrifum slíkrar orðræðu, sérstaklega á ungt fólk
„Þetta er hættuleg þróun sem ungir karlmenn falla fyrir um allt land.“
Að lokum gagnrýnir hann menningu þar sem umdeildir skoðanaleiðtogar fái aukið vægi í samfélaginu:
„Riddarar hinnar ömurlegu orðræðu halda bjór-samkomur allar helgar... gert er grín að fólki sem aðhyllist aðrar skoðanir og hlegið hraustlega saman í kór.“

Komment