
Fullyrðingar um virkni sveppadropa og sveppaduft hafa komið fyrirtækinu Hemmett ehf., rekstraraðila Hugur Studio, í vandræði en Neytendastofa hefur sektað fyrirtækið um 100 þúsund krónur vegna þeirra.
Stofnunin óskaði eftir sönnun frá fyrirtækinu varðandi fullyrðingar þeirra en það hélt því fram að duftið og sveppirnir „framkölluðu ró, bættu svefngæði, lækki kortisól og þar með streitustig, styðji við ónæmiskerfið og frumur líkamans með andoxunarefnum og dragi jafnvel úr áhrifum ADHD og lyfjaþörf“.
Fyrirtækið dró úr fullyrðingum sínum meðan málið var til meðferðar hjá Neytendastofu en engar sannanir hafi verið veittar fyrir fullyrðingunum um virkni varanna. Taldi Neytendastofa fullyrðingarnar veita rangar upplýsingar um helstu einkenni varanna sem væru líklegar til að valda því að hinn almenni neytandi tæki viðskiptaákvörðun sem hann myndi ekki annars hafa tekið. Því hafi verið ákveðið að sekta fyrirtækið um 100 þúsund krónur.
Komment