
Mikil gleði ríkir meðal sundáhugamanna en Reykjavíkurborg hefur ákveðið að lengja opnunartíma sundlauga í borginni eftir að hafa skert hann í apríl í fyrra, þrátt fyrir mikla gagnrýni borgarbúa. Gildir þetta þó aðeins um helgar.
Laugar borgarinnar verða því opnar á laugar- og sunnudögum til klukkan 22:00 í stað 21:00 og rímar sú opnun við útivistartíma unglinga. Verður 1. júní fyrsti dagurinn sem lengingin tekur gildi og verður til 31. ágúst. Þó á þetta ekki við allar sundlaugar borgarinnar en Klébergslaug á Kjalarnesi verður aðeins opin til klukkan 18:00.
Talið er að þetta muni kosta Reykjavíkurborg sjö milljónir króna.
Rétt er þó að minnast á að flestar laugar borgarinnar verða tímabundið lokaðar í sumar vegna viðhalds og viðgerða.
Árbæjarlaug: 19. maí – 4. júní
Breiðholtslaug: 10. – 17. maí
Grafarvogslaug: 6. – 12. júní
Sundhöllin: 16. – 24. ágúst
Vesturbæjarlaug: 26. maí – 23. júní
Komment