
Sumir Viðreisnarmenn eru farnir að hafa áhyggjur af stöðu flokksins í ljósi viðbragða sem ríkisstjórnin hefur mætt eftir að farið var að vinna í að afnema áminningarskyldu ríkisstarfsmanna.
Ljóst er að þetta mun hafa áhrif á tugþúsundir einstaklinga og munu þeir einstaklingar upplifa að ríkisstjórnin sé að hrifsa af þeim réttindi. Það liggur einnig fyrir að þetta mun hafa gríðarleg áhrif næst þegar samið verður við ríkisstarfsmenn. Telja einhverjir innan Viðreisnar galið að ætla að fara í þessa vegferð svo stuttu fyrir kosningar sem gætu hreinlega útrýmt pólitískum tilgangi flokksins falli þær ekki ESB-megin.
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra er með málið á sinni könnu og virðist ekki hafa mikinn skilning á ósætti og óánægju ríkisstarfsmanna eða eigin flokksmanna ...

Komment