1
Innlent

Ris og fall Kleina

2
Innlent

Fleiri konur stíga fram vegna Kleina

3
Innlent

Kleini mun senda frá sér yfirlýsingu um „sakleysi“ í dag

4
Peningar

Þungur rekstur Kleina bakvið glansmyndina

5
Fólk

Selja hús sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

6
Minning

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir er látin

7
Innlent

Matvælastofnun varar við Íslandsnaut ungnautahakki

8
Innlent

Átta Kínverjar ákærðir

9
Fólk

Fyrrum þingmaður kominn með nýja vinnu

10
Fólk

Gummi Ben selur glæsilegt endaraðhús

Til baka

Ísland tekur þátt í máli fyrir Alþjóðadómstólnum

„Með þátttöku Íslands í máli Suður-Afríku fyrir Alþjóðadómstólnum beitum við rödd okkar“

Blaðamannafundur ríkisstjórnar
Þorgerður Katrín utanríkisráðherra
Mynd: Víkingur

Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að taka þátt í máli Suður-Afríku gegn Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag en stjórnvöld greina frá þessu í tilkynningu.

Yfirlýsing þess efnis var lögð fram fyrir dómstólnum í gær þar sem gerð er grein fyrir lögfræðilegri  afstöðu Íslands. Með þessari ákvörðun tekur Ísland í fyrsta skipti þátt í efnislegu máli fyrir dómstólnum. 

Í málinu fer Suður-Afríka fram á að Ísrael verði dæmt brotlegt við skyldur sínar samkvæmt hópmorðssáttmála Sameinuðu þjóðanna fyrir framgöngu sína í stríðinu á Gaza, sem hófst í kjölfar árása hryðjuverkasamtakanna Hamas í Ísrael 7. október 2023. Íslensk stjórnvöld hafa fordæmt bæði hryðjuverkaárás Hamas og hernaðaraðgerðir Ísraels, sem og hörmulegt mannúðarástand á Gaza. Um leið hefur verið lögð áhersla á að það sé alþjóðlegra dómstóla að skera úr um hvort um hópmorð, einnig kallað þjóðarmorð, sé að ræða. Í samræmi við reglur dómstólsins afmarkast umfjöllun Íslands við það hvernig stjórnvöld telja rétt að túlka hópmorðssáttmálann.

Skylda Íslands og annarra

„Það gildir einu hvar átök geisa í heiminum eða hver er að verki, alþjóðasamfélaginu ber skylda til að leiða brot á alþjóðalögum til lykta fyrir sjálfstæðum og óháðum dómstólum. Með þátttöku Íslands í máli Suður-Afríku fyrir Alþjóðadómstólnum beitum við rödd okkar í þágu alþjóðalaga og mannréttinda. Og af því megum við vera stolt,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.

Með ákvörðun um meðalgöngu Íslands í málinu er framfylgt stefnu sem Alþingi markaði í þingsályktun nr. 1/154, frá 9. nóvember 2023, um afstöðu Íslands vegna átaka fyrir botni Miðjarðarhafs, þar sem þess er krafist að alþjóðalögum sé fylgt í einu og öllu, og áréttað að öll brot stríðandi aðila á alþjóðalögum verði rannsökuð til hlítar.

Sem fyrr segir er þetta í fyrsta skipti sem Ísland tekur þátt í efnislegu máli fyrir Alþjóðadómstólnum en á sl. ári lagði Ísland í fyrsta sinn fram sjálfstæða greinargerð í ráðgefandi álitsmáli fyrir dómstólnum. Þetta er hluti af vaxandi áherslu á að Ísland beiti sér með virkum hætti fyrir virðingu fyrir reglum þjóðaréttar.

Vegna þátttöku í dómsmálinu efndi utanríkisráðuneytið til samstarfs við dr. Þórdísi Ingadóttur, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, og dr. Kára Hólmar Ragnarsson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands, en þau eru meðal fremstu fræðimanna Íslands á sviði þjóðaréttar. 

Hópmorðssáttmáli Sameinuðu þjóðanna er frá árinu 1948 og fjallar hann um skyldur ríkja til að fyrirbyggja hópmorð í heiminum. Er ríkjum sem aðild eiga að sáttmálanum skylt að grípa til ráðstafana gegn hópmorði sem og refsa fyrir það og tengda glæpi, t.d. hvatningu til hópmorðs. Ísland var fjórða ríkið til að fullgilda hópmorðssáttmálann árið 1949, en alls hafa 154 ríki gerst aðilar að honum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Landsliðshetja leiðir Miðflokkinn
Pólitík

Landsliðshetja leiðir Miðflokkinn

Lék með íslenska landsliðinu í knattspyrnu á sínum tíma
Veitir 91 milljón í styrki
Pólitík

Veitir 91 milljón í styrki

Borgin svarar loksins ákalli íbúa Laugardals
Innlent

Borgin svarar loksins ákalli íbúa Laugardals

Opið bréf til íslenskra fjölmiðla - Hver eru markmið ykkar?
Skoðun

Daníel Andri Eggertsson

Opið bréf til íslenskra fjölmiðla - Hver eru markmið ykkar?

Fjórir Kínverjar til viðbótar ákærðir
Innlent

Fjórir Kínverjar til viðbótar ákærðir

Meint fórnarlamb Epstein segir hann hafa verið föður
Heimur

Meint fórnarlamb Epstein segir hann hafa verið föður

Þingmaður Miðflokksins rakst á „borgarstjóra New York“
Myndir
Fólk

Þingmaður Miðflokksins rakst á „borgarstjóra New York“

Gummi Ben selur glæsilegt endaraðhús
Myndir
Fólk

Gummi Ben selur glæsilegt endaraðhús

Felix Ólafsson er fallinn frá
Minning

Felix Ólafsson er fallinn frá

Lögreglan gerði manni tilboð
Innlent

Lögreglan gerði manni tilboð

Matvælastofnun varar við Íslandsnaut ungnautahakki
Innlent

Matvælastofnun varar við Íslandsnaut ungnautahakki

Kleini mun senda frá sér yfirlýsingu um „sakleysi“ í dag
Innlent

Kleini mun senda frá sér yfirlýsingu um „sakleysi“ í dag

Pólitík

Landsliðshetja leiðir Miðflokkinn
Pólitík

Landsliðshetja leiðir Miðflokkinn

Lék með íslenska landsliðinu í knattspyrnu á sínum tíma
„Orðrómar um að ég sé að fara yfir í Miðflokkinn eru stórlega ýktir“
Pólitík

„Orðrómar um að ég sé að fara yfir í Miðflokkinn eru stórlega ýktir“

Veitir 91 milljón í styrki
Pólitík

Veitir 91 milljón í styrki

Ísland tekur þátt í máli fyrir Alþjóðadómstólnum
Pólitík

Ísland tekur þátt í máli fyrir Alþjóðadómstólnum

Þorgerður heldur til Bandaríkjanna
Pólitík

Þorgerður heldur til Bandaríkjanna

Sigmundur Davíð harðneitar tengslum við MAGA-hreyfinguna
Pólitík

Sigmundur Davíð harðneitar tengslum við MAGA-hreyfinguna

Loka auglýsingu