
Íslandsvinurinn Fred Armisen minntist á íslenska tungu í hlaðvarpsþætti Amy Poehler, Good Hang with Amy Poehler en myndbútur úr viðtalinu hefur verið í dreifingu á samfélagsmiðlunum.
Í myndbútnum ræða þau Fred og Amy, sem léku saman í gamanþáttunum Saturday Night Live á árum áður, um bæði íslensku og sænsku. Um íslenskuna segir Fred, með tilheyrandi leik:
„Ísland, Ísland, Ísland, það er eins og eitthvað hvíslandi við það. Ísland hefur svona lágan, mjúkan tón, þú ýtir röddinni einhvern veginn fram í hálsinn, finnst mér. Þetta er mjög létt og mjúkt.“
Undir þetta tekur Amy en því næst snýr Fred sér að sænskum hreim, sem hann segir að sé á undanhaldi:
„Mér finnst aftur á móti að Svíþjóð sé svo nánast laus við hreim að þegar ég heyri Svía tala hljóma þeir næstum eins og Bandaríkjamenn. Það er eins og þeir séu ekki lengur jafn sænskir, heldur orðnir svo afslappaðir í ensku að mér finnst ég bara vera að tala við einhvern [Bandaríkjamann].“
Aftur tekur Amy undir orð Freds en bendir á það sem sem aðskilur Svíana frá öðrum og er þá að tala um innsogs-jáið fræga.
„En það sem kemur upp um Svía er eitt ákveðið hljóð. Það sem fólk veit ekki er að í stað þess að segja „aha-aha, aha“ eins og margir gera, þá gefa Svíar frá sér sérstakt hljóð, og þegar maður heyrir þá í símanum heldur maður alltaf að þeir séu að fá verstu fréttir í heimi.“

Komment