Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið hefur tilkynnt um úthlutun styrkja úr Talsetningar- og textunarsjóði fjölmiðlaveitna. Tveir umsækjendur hljóta styrk úr sjóðnum vegna verkefna ársins 2025.
„Talsetningar- og textunarsjóður fjölmiðlaveitna er starfræktur tímabundið til þriggja ára og var úthlutað úr sjóðnum í fyrsta skipti árið 2024. Sjóðnum er ætlað að styrkja innlenda einkarekna fjölmiðla sem talsetja og texta barnaefni á íslensku með það að markmiði að jafna samkeppnisstöðu þeirra gagnvart erlendum fjölmiðlum og stuðla að vernd íslenskrar tungu,“ segir í tilkynningu stjórnvalda.
Alls bárust þrjár umsóknir um styrkveitingu úr sjóðnum fyrir tilgreindan umsóknarfrest, frá Sýn hf., vegna barnaefnis á Sýn+, frá Símanum hf. vegna barnaefnis á Sjónvarpi Símans Premium og frá Skjásýn ehf., vegna barnaefnis sem aðgengilegt er á Sýn+.
Styrkirnir
Síminn hf.: 20.839.437 kr.
Sýn hf.: 6.600.000 kr.


Komment