
Líklegt þykir að maðurinn sem leitað var að við Fiskislóð í Reykjavík í gær hafi fundist, en hann var án lífsmarka þegar björgunaraðilar komu að honum.
Tilkynning barst lögreglu um klukkan fimm síðdegis í gær um einstakling í sjónum við Fiskislóð. Í kjölfarið hófst umfangsmikil leit sem skilaði ekki árangri og var hætt á tíunda tímanum um kvöldið.
Leitin hófst aftur um hálftvöleytið í dag, eftir að viðbragðsaðilar höfðu fundað og lagt línurnar fyrir áframhaldandi leit. Baldur Ólafsson, varðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sagði í samtali við fréttastofu Vísis að þyrla Landhelgisgæslunnar hafi flogið yfir sama svæði og daginn áður og leitin borið fljótlega árangur.
Allt bendir til þess að maðurinn sem fannst sé sá sem leitað hefur verið að síðan í gær, þó það hafi ekki verið formlega staðfest.
Við leitina komu aðilar frá Landsbjörg, slökkviliðinu, Landhelgisgæslunni, sérsveitinni og lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu að verki.
Samkvæmt heimildum Mannlífs er maðurinn af erlendu bergi brotinn.
Komment