Nýlega hefur verið sett á sölu vönduð og afar falleg 111,4 fermetra fjögurra herbergja íbúð við Bröttuhlíð 32 í Mosfellsbæ en það er tannlæknirinn Thelma Rut Hermannsdóttir og Sjálfstæðismaðurinn Magnús Ingi Ingvarsson sem selja þessi frábæru íbúð.
Um er að ræða eign á jarðhæð í litlu fjölbýlishúsi með sérinngangi, sem eykur bæði næði og þægindi fyrir íbúa.
Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, geymslu innan íbúðar, eldhús, borðstofu og rúmgóða stofu. Sérstaklega má nefna aukna lofthæð sem gefur rýminu bjart og opið yfirbragð. Frá stofu er útgengt á stóra timburverönd í suðurátt þar sem bæði heitur og kaldur pottur eru til staðar.
Eignin er hluti af fjögurra íbúða húsi sem reist var árið 2021 og er því tiltölulega ný með nútímalegu skipulagi og góðum frágangi. Íbúðin er staðsett á vinsælum stað í Mosfellsbæ þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, þar á meðal verslanir og miðbæ svæðisins.
Í nágrenninu er einnig fjölbreytt afþreying og þjónusta, svo sem sundlaugin Lágafellslaug, skólar, leikskólar og golfvöllur, allt í göngufæri.
Ásett verð eignarinnar er 98.900.000 krónur.


Komment