1
Minning

Gunnar Smári segir frá andláti herbergisfélaga síns á spítalanum

2
Heimur

Frænka Trump segist vita af hverju hann réðist á Íran

3
Minning

Haukur Guðmundsson er fallinn frá

4
Heimur

Limminnsti maður heims biðst afsökunar

5
Innlent

Banaslysið í Berufirði rakið til aksturs á röngum vegarhelmingi

6
Fólk

Sérlega smekklegt hús á Seltjarnarnesi til sölu

7
Heimur

Borgarstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni

8
Heimur

Lík ferðamanns fannst eftir leit á Tenerife

9
Innlent

Sigmundur Ernir krossfesti kaþólsku kirkjuna á Alþingi

10
Innlent

Sema Erla segist sæta pólitískum ofsóknum

Til baka

Telur áhyggjur af kynfræðslu oft byggðar á misskilningi

„Við sjáum þetta frekar sem mikilvægt samstarf“

steinn jóhannsson
Steinn Jóhannsson, sviðstjóri skóla- og frístundasviðsVar rektor MH í mörg ár.
Mynd: Gunnar G. Vigfússon/Reykjavíkurborg

Vika6 er gengin í garð en í þeirri viku er starfsfólk grunnskóla, leikskóla, félagsmiðstöðva og frístundaheimila Reykjavíkur hvatt til að setja kynheilbrigði í forgrunn og bjóða upp á fjölbreytta aldursviðeigandi kynfræðslu.

Mannlíf ræddi við Stein Jóhannsson, sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur um vikuna.

„Vika6 hefur gengið vel síðastliðin ár og fer hún sífellt stækkandi þar sem fleiri starfsstaðir innan borgarinnar taka þátt í verkefninu en einnig önnur sveitarfélög á landinu,“ sagði Steinn þegar hann var spurður um gengi Viku6 á undanförnum árum.

Hluti af íslenskum lögum

Fáar en háværar raddir hafa á síðustu árum gagnrýnt kynfræðslu borgarinnar og telja ekki rétt að borgin sjái um kynfræðslu. Steinn lítur kynfræðslu á samstarfsverkefni milli heimila og borgarinnar.

„Það má vel vera að sumum finnist það ekki vera hlutverk borgarinnar að veita kynfræðslu en við sjáum þetta frekar sem mikilvægt samstarf á milli skóla, frístundastarfs og heimilis þar sem allir þeir aðilar eru mikilvægir aðilar í kynfræðslu,“ sagði Steinn.

„Með kynfræðslu er þó borgin að uppfylla skyldur sínar en samkvæmt íslenskum lögum, menntastefnu stjórnvalda, aðalnámskrá grunnskóla, samþykktum þingsályktunum og alþjóðlegum samningum eru íslensk stjórnvöld skuldbundin að tryggja fræðslu um kynheilbrigði, mannréttindi og kynjajafnrétti í skólakerfinu. Áhyggjur fólks um kynfræðslu snúa þó oft að misskilningi á hvað felst í kynfræðslu. Kynfræðsla snýst um að efla kynheilbrigði ungs fólks á aldursviðeigandi hátt, þar sem rýnt er í félagslega, tilfinningalega, líkamlega og andlega þætti.“

Þema í Viku6 þetta árið er öryggi og ofbeldi og var það valið af unglingum borgarinnar með rafrænni kosningu. Steinn segir að Jafnréttisskóli Reykjavíkur sjái um skipulag vikunnar hér á skóla- og frístundasviði og útbúi fræðsluefni sem starfsfólk geti nýtt í kennslu og starfi með börnum og unglingum. Þá segir hann einnig að börn og ungmenni í Reykjavík hafi ítrekað bent á að þau vilji meiri fræðslu um mörk, samþykki og samskipti ásamt því hvernig hægt sé að bregðast við þegar eitthvað veldur óöryggi.

Í Viku6 í ár verður meðal annars fjallað um:

Öryggi og mörk: samþykki, að setja og virða mörk, og að þekkja óheilbrigð samskipti.

Ofbeldi og áreitni: hvernig það birtist, hvernig hægt er að bregðast við og hvert má leita.

Samskipti og tengsl: vinátta, virðing, fjölbreyttar fjölskyldur og sambönd.

Réttindi barna: Barnasáttmálinn, áhrif samfélagsmiðla og að þekkja eigin raddir.

En hver eru helstu áhrifin sem Vika6 hefur haft á ungt fólk?

„Kynfræðsla, líkt og farið er í í Viku6 er ein helsta forvörnin gegn kynferðislegu ofbeldi og bættu kynheilbrigði og því er okkar trú að Vika6 valdefli ungt fólk og hefur góð áhrif á líðan þeirra. Við erum stolt af Viku6 og hvernig móttökurnar hafa verið,“ sagði Steinn að lokum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Dópaður ökumaður með börn í bílnum á höfuðborgarsvæðinu
Innlent

Dópaður ökumaður með börn í bílnum á höfuðborgarsvæðinu

Sema Erla segist sæta pólitískum ofsóknum
Innlent

Sema Erla segist sæta pólitískum ofsóknum

Vestur-Afríkuríki hyggjast stofna sameiginlegan her gegn jihadistum
Heimur

Vestur-Afríkuríki hyggjast stofna sameiginlegan her gegn jihadistum

Sigmundur Ernir krossfesti kaþólsku kirkjuna á Alþingi
Innlent

Sigmundur Ernir krossfesti kaþólsku kirkjuna á Alþingi

Banaslysið í Berufirði rakið til aksturs á röngum vegarhelmingi
Innlent

Banaslysið í Berufirði rakið til aksturs á röngum vegarhelmingi

Borgarstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni
Heimur

Borgarstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni

Frænka Trump segist vita af hverju hann réðist á Íran
Heimur

Frænka Trump segist vita af hverju hann réðist á Íran

„Bandaríkin og Ísrael eru helstu ógnirnar við öryggi mannkyns“
Heimur

„Bandaríkin og Ísrael eru helstu ógnirnar við öryggi mannkyns“

Lík ferðamanns fannst eftir leit á Tenerife
Heimur

Lík ferðamanns fannst eftir leit á Tenerife

Limminnsti maður heims biðst afsökunar
Heimur

Limminnsti maður heims biðst afsökunar

Clinton segist ekki hafa átt í kynferðislegum samskiptum við konuna í pottinum
Myndband
Heimur

Clinton segist ekki hafa átt í kynferðislegum samskiptum við konuna í pottinum

„Velkomin í sturlaðan heim“
Innlent

„Velkomin í sturlaðan heim“

Innlent

Dópaður ökumaður með börn í bílnum á höfuðborgarsvæðinu
Innlent

Dópaður ökumaður með börn í bílnum á höfuðborgarsvæðinu

„Velkomin í sturlaðan heim“
Innlent

„Velkomin í sturlaðan heim“

Sema Erla segist sæta pólitískum ofsóknum
Innlent

Sema Erla segist sæta pólitískum ofsóknum

Sigmundur Ernir krossfesti kaþólsku kirkjuna á Alþingi
Innlent

Sigmundur Ernir krossfesti kaþólsku kirkjuna á Alþingi

Banaslysið í Berufirði rakið til aksturs á röngum vegarhelmingi
Innlent

Banaslysið í Berufirði rakið til aksturs á röngum vegarhelmingi

Loka auglýsingu