1
Pólitík

Sakaði þingmenn Flokks fólksins um lygar

2
Menning

Snorri sagði frá andláti föður síns á útgáfutónleikum í gær

3
Pólitík

Stefán sendi pillu á gamla skólasystur

4
Innlent

Sérsveitin á ferðinni

5
Heimur

Mataráhrifavaldurinn Michael Duarte skotinn til bana af lögreglu

6
Heimur

Ný gögn sýna viðbrögð Andrews við ásökunum í tölvupósti frá Ghislaine

7
Pólitík

Snorri veður í blaðamann Vísis

8
Pólitík

Miðflokkurinn sat hjá í atkvæðagreiðslu um réttindi fatlaðs fólks

9
Fólk

Fágæt perla í Sundunum til sölu

10
Heimur

Sjúklingur myrti sjúkraliða í Austur-Svíþjóð

Til baka

Telur líklegt að dauðsföll á Gaza hafi verið vanmetin um allt að 41 prósent

Ástandið á Gaza verður sífellt hræðilegra.

Stella UN Women
Stella Samúelsdóttir.Stella segir ástandið á Gaza fara hríðversnandi.
Mynd: UN Women.

Um­fang þjáningarinnar á Gasa langt um­fram þau úr­ræði sem hjálpar­stofnanir hafa yfir að ráða segir Stella Samúelsdóttir í nýrri grein.

Þar kemur einnig fram að „samkvæmt nýjustu greiningu UN Women hafa meira en 28.000 konur og stúlkur verið drepnar á Gasa síðan átökin hófust í október 2023. Þetta jafngildir að meðaltali einni konu og einni stúlku sem drepnar eru á hverri klukkustund í árásum ísraelska hersins. Meðal eru þúsundir mæðra sem láta eftir sig börn og fjölskyldur. Heilu samfélögin standa eftir í sárum.“

Hún bætir því við að nú sé einfaldlega yfirvofandi hungursneyð:

„Síðan vopnahléið á Gasa var rofið í mars síðastliðnum hefur ástandið versnað enn frekar. Engri mannúðaraðstoð hefur verið hleypt inn á svæðið í rúmar tíu vikur. Afleiðingarnar eru skelfilegar: Skortur er á mat, lyfjum og öðrum nauðsynjum. Hver einasta kona og stúlka á Gasa (fleiri en ein milljón) stendur því frammi fyrir hungursneyð. Konur og stúlkur eru á flótta í eigin heimalandi. Þær eiga hvergi skjól, hafa ekki aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu og verða sífellt berskjaldaðri fyrir ofbeldi.“

Hún segir að „tíðni mæðradauða fer hækkandi, einkum vegna skorts á öruggri fæðingarþjónustu, lyfjum og nauðsynlegri umönnun. Staðan er grafalvarleg.“

Stella færir í tal að „þrátt fyrir ólýsanlegar aðstæður halda UN Women störfum sínum áfram á Gasa. Þar fer fram mikilvægt samstarf við staðbundin kvennasamtök, sem gegna lykilhlutverki í dreifa hjálpargögnum, miðla fræðslu og veita sálfélagslegan stuðning. Þar að auki byggja þær upp viðnámsþrótt í samfélögum sem nú berjast fyrir tilveru sinni.“

Hún ljær máls á því að starfið felist „ekki eingöngu í að bregðast við afleiðingum átaka, heldur einnig í því að leggja grunninn að enduruppbyggingu. Mikilvægt er að tryggja aðkomu kvenna og að tekið sé mið af þörfum þeirra, bæði á meðan neyðarástand ríkir og við enduruppbygginguna.“

Stella nefnir að umfang þjáningarinnar og skortsins á Gasa sé langt umfram þau úrræði sem og það fjármagn sem kvennasamtök og hjálparstofnanir hafa yfir að ráða að svo stöddu:

„Skertur stuðningur ógnar lífsnauðsynlegri þjónustu, líkt og ný skýrsla UN Women bendir á. Án verulegrar aukningar á aðgengi að mannúðaraðstoð, fjármögnun og stuðningi er ljóst að óteljandi mannslíf eru í húfi. UN Women taka undir kröfu aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um skilyrðislaust vopnahlé, óhindraðan aðgang að mannúðaraðstoð, og skilyrðislausa lausn allra gísla og þeirra sem hafa verið handtekin af handahófi, án dóms og laga.“

Að endingu segir Stella að „í febrúar 2025 greindi tímaritið The Lancet frá því að líklegt sé að dauðsföll í Gasa hafi verið vanmetin um allt að 41 prósent. Niðurstöðurnar byggja bæði á skráðum dauðsföllum og svonefndum umfram dauðsföllum – þ.e. dauðsföllum sem hafa hugsanlega ekki verið skráð vegna hruns í heilbrigðisþjónustu og skráningarkerfum á svæðinu. UN Women byggði á þessari aðferðafræði við gerð áætlunar sinnar. Höfundur er framkvæmdastýra UN Women á Íslandi.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Billie Eilish hraunar yfir Elon Musk
Heimur

Billie Eilish hraunar yfir Elon Musk

„Helvítis aumkunarverða tíkarpíkuraggeit.“
17 ára stúlka myrt er hún verndaði bróður sinn fyrir árásarmanni
Heimur

17 ára stúlka myrt er hún verndaði bróður sinn fyrir árásarmanni

Snorri veður í blaðamann Vísis
Pólitík

Snorri veður í blaðamann Vísis

Snorri sagði frá andláti föður síns á útgáfutónleikum í gær
Menning

Snorri sagði frá andláti föður síns á útgáfutónleikum í gær

Skipulögðum brotahópum fjölgað um helming á Íslandi
Innlent

Skipulögðum brotahópum fjölgað um helming á Íslandi

Sigur Íslands aldrei í hættu
Sport

Sigur Íslands aldrei í hættu

Þrjótur skvetti málningu á bíla
Innlent

Þrjótur skvetti málningu á bíla

Lítil þyrla nauðlenti á akri
Heimur

Lítil þyrla nauðlenti á akri

Tvö Múlaborgarmál felld niður - eitt fer fyrir dóm
Innlent

Tvö Múlaborgarmál felld niður - eitt fer fyrir dóm

Mainz tapar máli gegn leikmanni sem studdi Palestínu opinberlega
Sport

Mainz tapar máli gegn leikmanni sem studdi Palestínu opinberlega

Miðflokkurinn sat hjá í atkvæðagreiðslu um réttindi fatlaðs fólks
Pólitík

Miðflokkurinn sat hjá í atkvæðagreiðslu um réttindi fatlaðs fólks

Innlent

Skipulögðum brotahópum fjölgað um helming á Íslandi
Innlent

Skipulögðum brotahópum fjölgað um helming á Íslandi

Vaxandi spenna í alþjóðamálum hefur leitt til aukinna tengsla brotahópa við hryðjuverkahreyfingar og erlend ríki.
Leikskólastarfsmaðurinn ákærður
Innlent

Leikskólastarfsmaðurinn ákærður

Þrjótur skvetti málningu á bíla
Innlent

Þrjótur skvetti málningu á bíla

Tvö Múlaborgarmál felld niður - eitt fer fyrir dóm
Innlent

Tvö Múlaborgarmál felld niður - eitt fer fyrir dóm

Hellti bjór yfir slasaðan hjólreiðamann
Innlent

Hellti bjór yfir slasaðan hjólreiðamann

Loka auglýsingu