
Árás á sjúkrahús í Súdan varð að minnsta kosti 64 manns að bana og særði 89 til viðbótar, að því er Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) greindi frá í gær. Þrettán börn eru meðal þeirra látnu.
Forstjóri WHO, Tedros Adhanom Ghebreyesus, sagði að árásin á föstudag hefði beinst að El-Daein kennslusjúkrahúsinu í höfuðborg Austur-Darfur og bætti við að „nægu blóð hafi verið úthellt“ og tími væri kominn til að binda enda á nær þriggja ára stríðið í landinu.
Sjúkrahúsið „varð fyrir árás sem varð að minnsta kosti 64 manns að bana, þar á meðal 13 börnum, tveimur kvenkyns hjúkrunarfræðingum, einum karlkyns lækni og fjölda sjúklinga,“ sagði hann á X.
Mannréttindasamtökin Emergency Lawyers í Súdan sögðu að sjúkrahúsið hefði orðið fyrir árás dróna frá her landsins.
Vopnaðir sveitir Rapid Support Forces (RSF) ráða yfir stórum hluta Darfur í vesturhluta landsins, en herinn hefur yfirráð í austur-, mið- og norðurhluta Súdan.
Átta starfsmenn heilbrigðisþjónustu eru meðal særðra og varð sjúkrahúsið fyrir miklu tjóni, meðal annars á barnadeild, fæðingardeild og bráðamóttöku. Það er nú óstarfhæft vegna skemmda, sem hefur valdið „alvarlegri röskun á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu,“ að sögn Tedros.
WHO vinnur nú með staðbundnum heilbrigðisaðilum að því að bæta úr brýnni þörf, meðal annars með því að auka getu annarra sjúkrastofnana til að sinna slösuðum og útvega nauðsynleg lyf og búnað.
Mikið mannfall
El-Daein, sem er undir stjórn RSF, hefur ítrekað orðið fyrir árásum hersins sem reynir að ýta sveitunum til baka. Nýleg árás á markað í borginni olli miklum eldsvoða.
Her Súdan sagði í yfirlýsingu að hann fylgdi alþjóðalögum og sakaði RSF um að ráðast reglulega á heilbrigðis- og þjónustumannvirki.
Mannúðarskrifstofa Sameinuðu þjóðanna í Súdan sagðist vera „hneyksluð á árásinni.“. Sjúkrahús hafa ítrekað verið skotmörk frá því stríðið hófst í apríl 2023.
Samkvæmt gögnum WHO hafa nú yfir 2.000 manns látist í árásum á heilbrigðisþjónustu í stríðinu. Alls hafa 2.036 manns farist í 213 slíkum árásum.
Tedros sagði árásirnar hafa bæði tafarlausar og langvarandi afleiðingar fyrir samfélög sem þegar glíma við skort á heilbrigðisþjónustu.
„Heilbrigðisþjónusta ætti aldrei að vera skotmark. Friður er besta lækningin,“ sagði hann.
Ástandið versnar
Árásir á heilbrigðisþjónustu hafa orðið mannskæðari með hverju ári. Árið 2023 létust 38 manns í 64 árásum, árið eftir létust 200 í 72 árásum, en árið 2025 létust 1.620 í 65 árásum.
Drónaárásir eru nú daglegt brauð í stríðinu og hafa kostað fjölda mannslífa, sérstaklega í suðurhluta landsins.
Sameinuðu þjóðirnar segja átökin hafa kostað tugþúsundir mannslífa og hrakið yfir 11 milljónir manna frá heimilum sínum. Meira en 33 milljónir eru nú háðar neyðaraðstoð.
„Nóg er komið. Nægu blóð hefur verið úthellt og nóg þjáning hefur verið lögð á fólk,“ sagði Tedros.
„Tími er kominn til að draga úr átökunum og tryggja vernd almennra borgara, heilbrigðisstarfsfólks og hjálparstarfsmanna.“

Komment