Lögregla sinnti fjölbreyttum verkefnum á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt, þar á meðal rannsóknum á þjófnuðum, ölvunartengdum útköllum og umferðareftirliti.
Tilkynnt var um þjófnað úr sundklefa og er málið í rannsókn. Einnig barst lögreglu tilkynning um þjófnað í Hafnarfirði
Í póstnúmeri 105 var lögregla kölluð til vegna einstaklings sem svaf í stigagangi. Viðkomandi reyndist undir áhrifum áfengis og var vísað á brott. Síðar sama dag var tilkynnt um nakinn einstakling á gangi í sama hverfi. Sá reyndist verulega ölvaður, gaf ekki upp persónuupplýsingar og var handtekinn og vistaður í fangaklefa.
Ökumaður var handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis. Hann var fluttur á lögreglustöð, blóðsýni tekið og sleppt að því loknu.
Þá var tilkynnt um umferðarslys í Hafnarfirði. Um var að ræða eignatjón en engin slys urðu á fólki.
Lögregla hafði einnig afskipti af einstaklingi sem settist inn í farþegasæti bifreiðar meðan eigandi hennar sat undir stýri. Einstaklingurinn varð árásargjarn, meðal annars með því að hrækja í hár eiganda bifreiðarinnar. Viðkomandi reyndist verulega ölvaður og var vistaður í fangageymslu í þágu rannsóknar.
Við umferðareftirlit voru skráningarmerki tekin af fjórum bifreiðum þar sem þær voru óskoðaðar. Þá voru fjórir ökumenn sektaðir fyrir að tala í farsíma undir stýri og eiga þeir von á sekt.


Komment