Að minnsta kosti 22 manns slösuðust þegar farþegalest fór út af sporinu í Ulyanovsk-héraði, í Rússland í dag, að því er yfirvöld greindu frá. Enginn lést í slysinu.
Samkvæmt upplýsingum fór sjö vagnar lestarinnar af sporinu um 900 kílómetra austur af Moskvu. Lestin var á leið frá Chelyabinsk í Úralfjöllum til höfuðborgarinnar.
Svæðisstjóri héraðsins staðfesti atvikið og sagði sjónvarpsmyndir sýna vagna liggja á hliðinni. Þá sagði svæðisstjóri Chelyabinsk, Alexei Teksler, að ekki hefði orðið manntjón.
„Enginn lést,“ skrifaði Teksler á samskiptamiðlinum Telegram. Hann bætti við að tveir farþegar hefðu hlotið beinbrot en um tuttugu hefðu orðið fyrir minniháttar áverkum, þar á meðal barn sem hlaut mar á fæti.
Orsök slyssins liggur ekki fyrir að svo stöddu. Rannsókn hefur verið hafin á mögulegum brotum á öryggis- og rekstrarreglum járnbrauta, að sögn rússnesku rannsóknarnefndarinnar, sem hefur sent fulltrúa á vettvang.
Samkvæmt upplýsingum frá lestaryfirvöldum voru 412 farþegar um borð í lestinni þegar slysið varð.

Komment