1
Peningar

Einn ríkasti Íslendingurinn tapaði háum fjárhæðum

2
Fólk

Selja pínulítið einbýli á ofurverði

3
Pólitík

Telur að óvinsældir ríkisstjórnarinnar muni aukast hratt

4
Innlent

Íslenskur leigubílsjóri furðar sig á að vera í Epstein-skjölunum

5
Pólitík

Hildur vill ekki sjá grænlenska fánann við ráðhúsið

6
Heimur

Leynibarn Epsteins í nýjum skjölum

7
Fólk

Selja einbýli með bílastæði fyrir 15 bíla við húsið

8
Minning

Ingi Kristján Pétursson er látinn

9
Innlent

Kári brjálaður út í Morgunblaðið

10
Minning

Pétur Bjarnason er fallinn frá

Til baka

Tveir starfsmenn hjúkrunarheimilisins Hraunbúða handteknir vegna andláts

Yfirmaður á stofnuninni tvívegis áður sakaður um kynferðislega áreitni

Vestmannaeyjar
VestmannaeyjarTveir starfsmenn eru í haldi lögreglu
Mynd: Í eigu Vestmannaeyjabæjar.

Tveir starfsmenn sjúkrastofnunar í Vestmannaeyjum hafa nú verið handteknir vegna rannsóknar á grunsamlegu andláti á sjúkrastofnuninni.

Samkvæmt heimildum Mannlífs er sjúkrastofnunin hjúkrunar- og dvalarheimilið Hraunbúðir. Þar er heimild er fyrir 32 hjúkrunarrýmum, tveimur dvalarrýmum og einu hvíldarrými.

Hraunbúðir
HraunbúðirStarfsfólk Hraunbúða er í sjokki
Mynd: Facebook

Mannlíf hefur reynt að ná tali af fjölda manns vegna málsins sem bera ábyrgð tengda málinu og stofnunum sem viðkoma því, þar á meðal Jóni Gunnari Þórhallssyni, yfirlögregluþjóni hjá lögreglunni á Suðurlandi, sem fer með rannsókn málsins, deildarstjóra og hjúkrunarforstjóra Hraunbúða.

Þegar þetta er skrifað hefur Heilbrigðisstofnun Suðurlands, sem Hraunbúðir heyra undir, ekki gefið neinar upplýsingar um málið og ekki næst í yfirmenn stofnunarinnar.

Starfsmaður hjúkrunarheimilisins sagði aðspurður starfsfólkið vera í sjokki, en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. „Já, væntanlega,“ svaraði starfsmaðurinn. Ekki náðist samband við yfirmenn, sem fyrr segir.

Fram hefur komið að rannsakað sé andlát vegna lyfjagjafar. Samkvæmt heimildum Mannlífs eru málefni Hraunbúða altöluð í Vestmannaeyjum, bæði árangur með sjúklinga og starfsmannamál.

Tvisvar kvartað yfir yfirmanni Hraunbúða

Heimildir Mannlífs herma að tveir starfsmenn hafi kvartað áður undan kynferðislegri áreitni frá kvenkyns yfirmanni hjúkrunarheimilisins en DV sagði frá málinu í apríl árið 2024.

Samkvæmt frétt DV kvartaði ungur karlkyns starfsmaður heimilisins undan kynferðislegri áreitni árið 2023 og það sama gerði ungur kvenkyns starfsmaður Hraunbúða árið 2024.

Kvenkyns starfsmaðurinn fór mikinn á TikTok á sínum tíma þar sem hún sagði frá áreitninni en hefur nú eitt þeim myndskeiðum. Þar sagði hún meðal annars:

„Þú gekkst langt yfir mörk sem yfirmaður með því að fokking káfa á mér og reyna að fokkings slumma upp í mig.“

Bæði málin komu upp á skemmtun starfsmanna Hraunbúða en í hvort skiptið var yfirmanninum sagt upp eða færður í starfi. Hún fór þó í sex vikna leyfi eftir að seinna málið kom upp en snéri eftir það aftur til starfa.

Samkvæmt heimildum DV var mikil ólga meðal starfsfólks Hraunbúða vegna málanna.

Yfirmaður á Hraunbúðum sagði hins vegar í Facebook-viðtali við Heilbrigðisstofnun Suðurlands í september 2024 að starfsandi væri „einstakur“.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Kynna fyrstu gervigreindarauglýsingu Super Bowl
Myndband
Heimur

Kynna fyrstu gervigreindarauglýsingu Super Bowl

Dýrar auglýsingar í Super Bowl hafa lengi verið hefð
Svara engu um trans hatur í Háskóla Íslands
Innlent

Svara engu um trans hatur í Háskóla Íslands

Skæð fuglainflúensa greinist í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu
Innlent

Skæð fuglainflúensa greinist í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu

Glæfralegir ferðamenn komu sér í lífshættu á Kanarí
Myndband
Heimur

Glæfralegir ferðamenn komu sér í lífshættu á Kanarí

Mikil ánægja með árangur landsliðsins
Sport

Mikil ánægja með árangur landsliðsins

Nær helmingur Norðmanna vill ekki að Mette-Merit verði drottning
Heimur

Nær helmingur Norðmanna vill ekki að Mette-Merit verði drottning

Selja einbýli með bílastæði fyrir 15 bíla við húsið
Myndir
Fólk

Selja einbýli með bílastæði fyrir 15 bíla við húsið

Ingi Kristján Pétursson er látinn
Minning

Ingi Kristján Pétursson er látinn

Tjón eftir slys í Hafnarfirði
Innlent

Tjón eftir slys í Hafnarfirði

Leit stendur yfir að 84 ára móður Savönnuh Guthrie í Arizona
Heimur

Leit stendur yfir að 84 ára móður Savönnuh Guthrie í Arizona

Hildur vill ekki sjá grænlenska fánann við ráðhúsið
Pólitík

Hildur vill ekki sjá grænlenska fánann við ráðhúsið

Var árangur handboltalandsliðsins ásættanlegur?
Könnun
Sport

Var árangur handboltalandsliðsins ásættanlegur?

Kári brjálaður út í Morgunblaðið
Innlent

Kári brjálaður út í Morgunblaðið

Innlent

Svara engu um trans hatur í Háskóla Íslands
Innlent

Svara engu um trans hatur í Háskóla Íslands

Efni gegn trans fólki sagt í dreifingu
Stjórnvöld styrkja Sýn og Símann um tugi milljóna
Innlent

Stjórnvöld styrkja Sýn og Símann um tugi milljóna

Tveir starfsmenn hjúkrunarheimilisins Hraunbúða handteknir vegna andláts
Innlent

Tveir starfsmenn hjúkrunarheimilisins Hraunbúða handteknir vegna andláts

Skæð fuglainflúensa greinist í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu
Innlent

Skæð fuglainflúensa greinist í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu

Tjón eftir slys í Hafnarfirði
Innlent

Tjón eftir slys í Hafnarfirði

Kári brjálaður út í Morgunblaðið
Innlent

Kári brjálaður út í Morgunblaðið

Loka auglýsingu