
Tveir unglingar, 16 ára stúlka og 15 ára drengur, hafa játað að hafa banað afa og ömmu stúlkunnar í bænum Villers-Semeuse í norðausturhluta Frakklands, að því er saksóknarar greindu frá í gær.
Stúlkan bjó hjá afa sínum og ömmu, sem voru lögráðamenn hennar. Borgarstjóri bæjarins lýsti fórnarlömbunum sem virkum og vel metnum meðlimum samfélagsins.
Samkvæmt saksóknaranum, Francois Schneider, hafði stúlkan skipulagt verknaðinn fyrirfram og fékk kærasta sinn til að taka þátt. Drengurinn komst inn á heimilið um helgina, og upp komst um veru hans á mánudagsmorgni þegar amma stúlkunnar fann hann í herbergi hennar.
Í kjölfarið réðst stúlkan á ömmu sína, 71 árs, með hnífi. Þegar afi hennar, 74 ára, kom henni til aðstoðar, stakk drengurinn hann. Samkvæmt upplýsingum saksóknara hlutu fórnarlömbin samtals ellefu stungusár.
Lögregla fann lík þeirra í kjallara hússins á þriðjudagsmorgni. Unglingarnir voru handteknir síðar sama dag á iðnaðarsvæði í nágrenninu, eftir að hafa keypt þrjá dýra farsíma með peningum sem þeir höfðu fundið á heimilinu.
Stúlkan sagði við yfirheyrslur að amma hennar hefði slegið hana vegna andstöðu við samband hennar við drenginn.
Stúlkan á yfir höfði sér allt að 30 ára fangelsisdóm ef hún verður ekki dæmd sem ólögráða, en drengurinn gæti hlotið allt að 20 ára dóm.
Komment