1
Fólk

Selja eitt óhefðbundnasta einbýli Íslands

2
Innlent

Bróðir Margrétar Löf opnar sig um andlát föður síns

3
Innlent

Einar bauð Davíð í hádegismat

4
Menning

Brotthvarf Sölku Sólar hluti af stórum breytingum á Rás 2

5
Innlent

Selfyssingur hótaði að drepa mann fyrir framan fjölskyldu hans

6
Innlent

Varað við salmónellusýkingu í þekktu fæðubótarefni

7
Innlent

Hótanir í Árbænum

8
Heimur

Harrison Ford flutti tilfinningaþrungna ræðu á SAG-verðlaununum

9
Innlent

Erlendur maður gripinn á stað sem hann mátti ekki vera á

10
Heimur

Hulin ráðgáta í Tver-skógum: Saga yfirgefinnar hvelfingar

Til baka

Valur er fótbrotinn og fastur í Afríku

„Oftast hefði verið gott að fá ritlaun en sjaldan hefði það verið jafn gott og nú“

Valur Gunnarsson
Valur GunnarssonValur hefur átt betri daga
Mynd: Facebook-skjáskot

Valur Gunnarsson, blaðamaður og rithöfundur, er í miklum vandræðum í Afríku en í Facebook-færslu í gær birti hann ljósmynd af sér og lýsti raunum sínum.

Rithöfundurinn ævintýralegi hefur verið að undanförnu notið lífsins í Naíróbí, höfuðborgar Kenía, þar sem hann vinnur nú að nýrri bók, en langar nú heim.

„Þá er maður víst fótbrotinn og fastur í Afríku, með lokað kreditkort og langar heim.“ Þannig hefst færsla Vals en hann heldur áfram og segir bankann hafa hafnað yfirdráttarheimildinni og að reikningar hafi komið um mánaðarmótin.

„Oftast hefði verið gott að fá ritlaun en sjaldan hefði það verið jafn gott og nú,“ bætir Valur við að lokum en segir svo að líklega séu fleiri í Afríku sem væru til í að fá laun.

Vissi ekki af fótbrotinu

Mannlíf ræddi við Val og spurði hann út í fótbrotið og stöðuna.

„Ég gerði þau mistök að fara út í búð. Reyndar hafði ég verið á leiðinni allan daginn en það var hellidemba og þegar veðrinu loksins slotaði fór ég út en þá var farið að dimma. Ég vissi ekki að á öllum gangstéttum hér eru stór, ómerkt göt til að safna vatni en komst að því þarna. Ég datt ofan í eitt og krambóleraðist en það gekk yfir. Það var svo ekki fyrr en tveim mánuðum seinna eftir að hafa gengið út um allt að ég komast að því að ég er fótbrotinn og má helst ekki ganga.“

En hvar í Afríku er Valur staddur?

„Ég er að skrifa bók um Bandaríkin á 21. öld og stríðið gegn hryðjuverkum. Það byrjaði hér í Naíróbí, með hryðjuverkaárás árið 1998 sem kostaði 220 manns lífið, og í framhaldinu gerðu Bandaríkin árás á Afganistan. Hér hófst sú atburðarás sem í raun enn sér ekki fyrir endann á og árásin á Íran er framhald af.“

Valur segist hafa liðið mjög vel í Kenía en nú sé kominn tími til að snúa aftur til Íslands.

„Kenía er annars með besta loftslag í heimi, hver dagur er með besta veður sem hægt er að ímynda sér enda erum við upprunalega kenísk dýrategund og hönnuð fyrir þessar aðstæður. Ég ákvað því að hafa hér vetursetu og í einhverri merkingu er maður kominn heim. En nú langar mig aftur til Íslands.“

Tvírukkaður í hraðbanka

Aðspurður út í peningavandræðin segir Valur að mánaðarmót séu alltaf erfið fyrir rithöfunda sem ekki hljóta ritlaun en að yfirleitt reddist þetta. Hann hafi hins vegar lent í vandræðum með hraðbanka í Kenía sem vað til þess að hann var tvírukkaður.

„Mánaðarmót eru ávallt erfið fyrir ritlaunalausa rithöfunda, þá koma reikningarnir inn en engin laun. Þetta hefði samt getað sloppið, nema hvað að ég fór í hraðbanka til að taka út fyrir leigunni. Hraðbankinn hikstaði og fraus en skilaði kortinu svo ég fór annað og tók út fyrir leigunni. Þegar ég svo skoðaði yfirlitið sá ég að ég hafði verið tvírukkaður fyrir færsluna, og þar með var orðið útilokað að borga kredittkortareikninginn.“

Valur grínast með að ritlaunanefndin hafi sennilega „keypt sig inn í Íslandsbanka til að koma höggi“ á hann.

„Ég sótti um yfirdrátt heima en fékk ekki, mig grunar að ritlaunanefnd hafi keypt sig inn í Íslandsbanka til að koma höggi á mig. Í dag fer ég svo í fjórða sinn í afríska bankann til að reyna að fá endurgreitt. Í millitíðinni er ég að fara í gegnum hverjir skulda mér pening, það eru alltaf einhver vangoldin laun einhvers staðar og vantar ekki mikið upp á.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Segir ísraelska leyniþjónustumenn hafa planað sprengjuárásir í Sádí-Arabíu og Katar
Myndband
Heimur

Segir ísraelska leyniþjónustumenn hafa planað sprengjuárásir í Sádí-Arabíu og Katar

„Eru þau ekki á sama bandi?“
Kona ákærð fyrir náttúruspjöll
Landið

Kona ákærð fyrir náttúruspjöll

Bruce Campbell greinir frá krabbameini
Heimur

Bruce Campbell greinir frá krabbameini

Fyrrum unglingalandsliðsmaður fær nýtt og spennandi starf
Peningar

Fyrrum unglingalandsliðsmaður fær nýtt og spennandi starf

Varað við salmónellusýkingu í þekktu fæðubótarefni
Innlent

Varað við salmónellusýkingu í þekktu fæðubótarefni

Samkynhneigðir illa séðir hjá kaþólsku kirkjunni á Íslandi
Innlent

Samkynhneigðir illa séðir hjá kaþólsku kirkjunni á Íslandi

Karl konungur sagður vilja sættast við Harrý
Heimur

Karl konungur sagður vilja sættast við Harrý

Finnskt bjálkahús til sölu á frábærum stað
Myndir
Fólk

Finnskt bjálkahús til sölu á frábærum stað

Erlendur maður gripinn á stað sem hann mátti ekki vera á
Innlent

Erlendur maður gripinn á stað sem hann mátti ekki vera á

Sex bylgjur íranskra eldflauga yfir Ísrael
Heimur

Sex bylgjur íranskra eldflauga yfir Ísrael

Selfyssingur hótaði að drepa mann fyrir framan fjölskyldu hans
Innlent

Selfyssingur hótaði að drepa mann fyrir framan fjölskyldu hans

Macron boðar fjölgun á kjarnorkusprengjuoddum
Heimur

Macron boðar fjölgun á kjarnorkusprengjuoddum

Fólk

Valur er fótbrotinn og fastur í Afríku
Viðtal
Fólk

Valur er fótbrotinn og fastur í Afríku

„Oftast hefði verið gott að fá ritlaun en sjaldan hefði það verið jafn gott og nú“
„Koníaksstofu“-einbýli í Hafnarfirði til sölu
Myndir
Fólk

„Koníaksstofu“-einbýli í Hafnarfirði til sölu

Finnskt bjálkahús til sölu á frábærum stað
Myndir
Fólk

Finnskt bjálkahús til sölu á frábærum stað

„Fjórða valdið dó í Covid”
Fólk

„Fjórða valdið dó í Covid”

Selja eitt óhefðbundnasta einbýli Íslands
Myndir
Fólk

Selja eitt óhefðbundnasta einbýli Íslands

Sölku Sól gert að hætta á Rás 2
Fólk

Sölku Sól gert að hætta á Rás 2

Loka auglýsingu