1
Heimur

Ekkja mannsins sem lést útskrifuð af sjúkrahúsi

2
Pólitík

Skiltin sem Ari Edwald sá ekki

3
Innlent

Guðmundur Stefán og Íris Anna vilja stýra skóla

4
Pólitík

Guðmundur Ingi hættur í Flokki fólksins

5
Innlent

Askja innkallar KIA-bíla

6
Heimur

Leikkonan Ruby Rose sakar Katy Perry um kynferðislegt áreiti

7
Innlent

Maður metinn öryrki eftir að full kona ók yfir fót hans

8
Fólk

Blaðamaður Morgunblaðsins selur útsýnisíbúð í Árbænum

9
Heimur

Maður grunaður um að myrða tvíbura

10
Innlent

Ákærður fyrir fíkniefni í verbúð

Til baka

„Við deilum ekki sviði með þjóðarmorðingjum“

Kristinn Hrafnsson og Auður Jónsdóttir bætast í hóp þekktra Íslendinga sem vilja að Ísland taki ekki þátt í Eurovision á næsta ári.

Ísrael Eurovision YUVAL Raphael
Yuval RaphaelRaphael tók þátt fyrir Ísrael í Eurovision á þessu ári
Mynd: AFP

Gríðarleg pressa er nú á stjórn RÚV vegna þeirrar ákvörðunar sem hún þarf að taka á morgun vegna Eurovision. Þarf stjórnin að segja af eða á með þátttöku Íslands í keppninni á næsta ári en nú þegar hafa fjögur Evrópulönd dregið sig úr keppninni vegna þátttöku Ísraels.

Félag tónskálda og textahöfunda hvöttu stjórn RÚV til þess að sniðganga keppnina í gær og Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, vill einnig að Ísland dragi sig úr Eurovision. Páll Óskar Hjálmtýsson, Helga Möller og Björk Guðmundsdóttir hafa einnig þrýst á RÚV varðandi málið. Þá hefur verið boðaður samstöðufundur fyrir utan bækistöðvar RÚV í Engihjallanum klukkan 14:30 á morgun, rétt áður en fundur stjórnarinnar hefst. Og nú hafa Kristinn Hrafnsson og Auður Jónsdóttir bæst í hóp þeirra sem vilja að stjórn RÚV taki þá ákvörðun að Ísland taki ekki þátt í Eurovision á meðan Ísrael keppir þar.

Kristinn, sem er ritstjóri Wikileaks, skrifaði færslu í dag þar sem hann segir að ákvörðun stjórnarinnar sé hreint ekki erfið:

„Stjórn RUV mun víst á morgun taka formlega ákvörðun um þátttöku í Eurovision. Ég reikna með að sú stjórn hafi oft þurft að taka erfiðar ákvarðanir en þessi er ekki ein af þeim. Það er útilokað annað en að sniðganga þessa keppni. Spánverjar, Slóvenar, Hollendingar og Írar hafa nú þegar sagt sig frá henni og Pólverjar og fleiri þjóðir ákveða sig síðar í mánuðinum. Við deilum ekki sviði með þjóðarmorðingjum.“

Auður Jónsdóttir, rithöfundur og fjölmiðlakona skrifaði einnig færslu í dag þar sem hún segir að þátttaka í Eurovision yrði hrein og bein gaslýsing í hugum margra hér á landi.

„Ég vona svo innilega að stjórn RÚV útiloki þátttöku Íslendinga í Eurovision. Svo margir finna til vanmáttar gagnvart þessu kerfisbundna þjóðarmorði að þátttaka væri hrein og bein gaslýsing í hugum margra hér á landi. Ef niðurstaðan verður önnur er víst fátt annað í spilunum en að fara í setuverkfall við RÚV með kaffi á brúsa og prjóna – og norpa þar sem áminning. Getur einhver lánað mér kuldagalla?“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Verðlaunaleikstjóri selur í Þingholtunum
Myndir
Fólk

Verðlaunaleikstjóri selur í Þingholtunum

Húsið var byggt árið 1932
Sjö gistu fangageymslur lögreglu en ekkert að frétta
Innlent

Sjö gistu fangageymslur lögreglu en ekkert að frétta

Guðmundur Ingi hættur í Flokki fólksins
Pólitík

Guðmundur Ingi hættur í Flokki fólksins

Guðmundur Stefán og Íris Anna vilja stýra skóla
Innlent

Guðmundur Stefán og Íris Anna vilja stýra skóla

Leikkonan Ruby Rose sakar Katy Perry um kynferðislegt áreiti
Heimur

Leikkonan Ruby Rose sakar Katy Perry um kynferðislegt áreiti

Skiltin sem Ari Edwald sá ekki
Myndir
Pólitík

Skiltin sem Ari Edwald sá ekki

Maður metinn öryrki eftir að full kona ók yfir fót hans
Innlent

Maður metinn öryrki eftir að full kona ók yfir fót hans

Ekkja mannsins sem lést útskrifuð af sjúkrahúsi
Heimur

Ekkja mannsins sem lést útskrifuð af sjúkrahúsi

Maður grunaður um að myrða tvíbura
Heimur

Maður grunaður um að myrða tvíbura

Ákærður fyrir fíkniefni í verbúð
Innlent

Ákærður fyrir fíkniefni í verbúð

Innlent

Ákærður fyrir fíkniefni í verbúð
Innlent

Ákærður fyrir fíkniefni í verbúð

Sjö gistu fangageymslur lögreglu en ekkert að frétta
Innlent

Sjö gistu fangageymslur lögreglu en ekkert að frétta

Guðmundur Stefán og Íris Anna vilja stýra skóla
Innlent

Guðmundur Stefán og Íris Anna vilja stýra skóla

Maður metinn öryrki eftir að full kona ók yfir fót hans
Innlent

Maður metinn öryrki eftir að full kona ók yfir fót hans

Loka auglýsingu