15:10MenningSakamálið – 15. þáttur: Krókódílamaðurinn á kránni Joseph, Joe Ball, fæddist 7. Janúar árið 1896. Hann var Bandarískur raðmorðingi og gekk undir mörgum nöfnum. Hann var kallaður Krókódílamaðurinn, Slátrarinn frá Elmendorf og Bláskeggur Suður-Texas. Eftir að hafa sinnt skyldu sinni á vígvöllum fyrri heimstyrjaldarinnar gerðist hann bruggari og sá þeim sem efni höfðu á fyrir ólöglegu áfengi. Þegar bannárin runnu sitt skeið upp úr 1930 opnaði hann...
15:38MenningSakamálið – 14. þáttur: Ungverski raðmorðinginn Bela Kiss hafði áhuga á stjörnuspeki, rósarækt og frímerkjum. En þar er ekki öll sagan sögð, því hann var afkastamikill raðmorðingi og sveik fé út úr fórnarlömbum sínum. Honum tókst að sleppa undan armi laganna og svaraði aldrei fyrir ódæði sín. Hlustaðu á allt hlaðvarpið hér.
15:20MenningSakamálið – 14. þáttur: Eiginkona, móðir, morðingi Öllum sem þekktu Audrey Marie Hilley er hulið hví hún framdi ódæði sín. Frank, eiginmaður hennar, dó úr arsenikeitrun og dóttir hennar var við dauðans dyr vegna sams konar eitrunar. Marie tókst að flýja réttvísina í rúmlega þrjú ár, en var að lokum dæmd til lífstíðarfangelsis. Hún hafði ekki hugsað sér að enda líf sitt á bak við lás og...
12:58MenningSakamálið – 13. þáttur: White House morðin Þorpið Tolleshunt D’Arcy í Essex á Englandi varð vettvangur einna hryllilegustu fjöldamorða sem framin hafa verið í Bretlandi. Voðaatburðirnir sem um ræðir áttu sér stað síðla kvölds 6. ágúst og að morgni 7. ágúst árið 1985 á White House-býli Bamber-hjónanna. Sakamál vikunnar fjallar um White House-morðin svonefndu. Hlustaðu á allt hlaðvarpið hér.
14:48MenningSakamálið: Blóðsjúgandi morðinginn Donald rak í rogastans þegar hann sá hve vel skipulögð vinnustofa Haighs var; verkfæri til allra verka sem handlaginn maður kann að taka sér fyrir hendur, logsuðutæki, trésmíðaáhöld og verkfæri járnsmiðs. Í einu horninu stóð stærðar tunna full af sýru og forvitinn gekk McSwan að henni. Hann var að því kominn að spyrja til hverra hluta þetta væri ætlað þegar...
14:53MenningSakamálið – 11. þáttur: Glanspíubaninn „Ég lét þær krjúpa. Það var eins með þær allar, ég hélt þeim í skefjum með skammbyssunni og batt saman öklana á þeim, síðan gerði ég lykkju á reipið og setti það um hálsinn á þeim. Svo stóð ég yfir þeim og tók í endann þar til þær hættu að brjótast um.“ Morðinginn þóttist vera ljósmyndari til að komast yfir...
15:23MenningSakamálið – 9. þáttur: Blóðrauð Jól Rétt fyrir jólin 1987 ákvað Ronald Gene Simmons að losa sig við alla sem hann taldi vilja sér illt. Fyrsta fórnarlambið var eiginkona hans og sex dögum síðar var fjöldi fórnarlambanna kominn upp í sextán. Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér.
16:16MenningSakamálið – 8. þáttur: Piparjómfrúin og hænsnabóndinn Tvö mál urðu fyrir valinu í þennan 8. þátt Sakamálsins. Annarsvegar heyrum við af bræðrum sem voru hreinræktuð óbermi. Þeir voru á meðal auðugustu manna á heimaslóðum sínum, en alkunna var að auður þeirra var ekki tilkominn með ærlegum hætti. Þeir skirrtust ekki við að úthella blóði ef svo bar undir og því fékk fjölskylda ein í Missouri í Bandaríkjunum...
16:11MenningSakamálið – 7. Þáttur: Hver var maðurinn í möttlinum? Aðkoman var hræðileg, rúm Helenu var rjúkandi rúst, koddinn útataður í blóði. Hún lá þar látin og náttfötin hennar orðin að ösku. Önnur hlið líkama hennar var illa brunninn og þrír blóðugir skurðir voru á annarri augabrún hennar. Hver var sekur um þennan hrottalega glæp? Slapp hann úr klóm réttvísinnar? Hver var maðurinn í möttlinum?
15:24MenningSakamálið – 6. þáttur: Hinn góðlátlegi „Don Kíkóti“ Húsvörðurinn hafði fundið bein í ofni á rannsóknarstofunni og þar fundust einnig hnappur, smámynt, og fleiri beinaleifar, þar á meðal kjálkabein. Loks fannst efri bolur; handleggja- og höfuðlaus, loðinn og að hluta til brunninn og blóðugur fatnaður. Borgin iðaði af getgátum vegna hvarfs læknisins og hver fiskisagan á fætur annarri fékk líf og náði flugi. Óhætt er að segja að...
16:20MenningSakamálið – 5. þáttur: Blóðsugan frá Düsseldorf Hann braust inn í krá í Mülheim am Rhein, þar rakst hann á níu ára gamla, sofandi stúlku. Hann kyrkti stúlkuna og skar síðan á háls og fékk, að eigin sögn, sáðlát þegar blóðið draup úr sári barnsins á gólfið. Daginn eftir fór hann á krá, sem var gegnt morðstaðnum, í þeim tilgangi einum að hlusta á fólk ræða ódæðið....
14:24MenningSakamálið – 4. þáttur: Sápugerðarkonan Leonarda Ciunciulli Í ítarlegri yfirlýsingu sagði morðkvendið frá afdrifum eins fórnarlambs síns: „setti ég líkamshlutana í pott, bætti við sjö kílóum af vítissóda, sem ég hafði keypt til að búa til sápu, og hrærði í þangað til allt var orðið að þykkum, dökkum vellingi sem ég hellti í nokkrar fötur sem ég tæmdi í nálæga rotþró.“ Hún beið þar til blóðið hafði...