HeimurPalestínskur embættismaður gagnrýnir atkvæði Ísraela gegn tveggja ríkja lausninni Hussein al-Sheikh, embættismaður palestínsku heimastjórnarinnar, segir að höfnun Knesset – þings Ísraels á sjálfstæðri Palestínu „staðfesti kynþáttafordóma hernámsríkisins og lítilsvirðingu þess við alþjóðalög og alþjóðlegt lögmæti, og kröfu þess um þá nálgun og stefnu að viðhalda hernáminu að eilífu.“ Þau lönd heimsins sem eru hikandi við að samþykkja ríki Palestínu „verða að viðurkenna það strax“ til að vernda tveggja ríkja...
HeimurNetanyahu hafnar kröfum um opinbera rannsókn á árásinni 7. október: „Fyrst vil ég sigra Hamas“ Í ræðu til ísraelskra þingmanna í Knesset, ísraelska þinginu, vísaði Benjamin Netanyahu á bug kröfum um stofnun ríkisrannsóknarnefndar á árásunum 7. október og sagði „Fyrst vil ég sigra Hamas“. Það er sífellt verið að kalla eftir opinberri rannsókn á mannskæðri árás vopnaðra palestínskra hópa. Ísraelski herinn birti í síðustu viku niðurstöður úr fyrstu innri rannsókn sinni sem viðurkenndi „alvarleg mistök...
HeimurFlórensbúar æfir yfir kynferðistilburðum ferðalangs með frægri styttu – MYNDIR Kvenkyns ferðalangur hefur vakið reiði eftir að hún var nöppuð við að þykjast eiga í kynferðismökum við styttuna af Bakkusi í Flóens. Ljóshærð kona, sem ekki hefur verið nafngreind né hefur verið sagt hvers lensk er, hefur sætt mikilli gagnrýni fyrir að sýna „virðingarleysi“ eftir að hún klifraði upp að styttu Giambologna af Bakkusi og kyssti hinu fræga ítölku styttu....
HeimurCrooks var lagður í einelti og þótti afleit skytta -Myndband náðist af honum rétt fyrir skothríðina Banatilræðismaður Donalds Trump, Thomas Matthew Crooks, var neitað um inngöngu í riffilklúbb menntaskólans síns, að hluta til vegna þess að hann þótti léleg skytta. Hinn tvítugi Crooks, sem skotinn var til bana af leyniskyttu á laugardaginn, eftir að hann hóf skothríð á kosningafund Donalds Trump í Pennsylvaníu, reyndi að komast inn í riffilklúbb menntaskólans síns, samkvæmt Frederick Mach, sem nú...
HeimurLík Jay Slater líklega fundið: „Krufning og réttarrannsóknir munu fylgja í kjölfarið“ Björgunarsveitarfólk sem leitað hefur að breska unglingnum Jay Slater á Tenerife hafa nú fundið lík af dreng en enn á eftir að staðfesta að það sé af Slater. „Sönnunargögn benda sterklega“ til þess að líkamsleifarnar séu af hinum 19 ára Jay Slater, sögðu spænsk yfirvöld við Sky News. Líkið „virðist vera af Jay Slater“ segja samtökin LBT Globat, sem hjálpar...
HeimurSkotmaðurinn í Pennsylvanínu vann á hjúkrunarheimili – Faðir hans keypti riffilinn sem notaður var Thomas Matthew Crooks er nafn þess sem reyndi að drepa Donald Trump í gær með rifli en hæfði forsetann fyrrverandi í eyrað. Þá drap hann einn áhorfanda og særði tvo alvarlega, áður en leyniskytta leyniþjónustunnar skaut hann til bana. En hver var þessi tvíugi maður? Hann var frá Bethel Park í Pennsylvaníu, um 70 kílómetra frá staðnum þar sem banatilræðið...
HeimurShannon Doherty er fallin frá Leikkonan Shannon Doherty er látin eftir erfiða baráttu við krabbamein. Hún var 53 ára. Shannon Doherty, sem er þekktust fyrir hlutverk sín í þáttunum Beverly Hills 90210 og Charmed lést á laugardaginn. „Það er með þungu hjarta sem ég staðfesti fráfall leikkonunnar Shannen Doherty,“ sagði Leslie Sloane, langvarandi kynningarfulltrúi leikkonunnar, við ET í yfirlýsingu. „Laugardaginn 13. júlí tapaði hún baráttu...
HeimurRichard Simmons lést í gær: „Hafið það sem allra fallegast“ Bandaríska heilsuræktargoðsögnin Richard Simmons lést í gær, 76 ára að aldri. Lögreglan brást við símtali frá ráðskonu Richard Simmons í gærmorgun, og þegar lögreglan mætti á vettvang var Simmons úrskurðaður látinn, samkvæmt NBC News. Heilsuræktargoðsögnin, sem hélt sig frá kastljósinu síðustu árin, lést degi eftir 76 ára afmæli sitt. Ekki er búið að staðfesta dánarorsökina en líklegt þykir að hann...
HeimurMaðurinn sem skaut Trump var tvítugur Repúblikani – Drap einn og særði tvo alvarlega Yfirvöld hafa birt nafn mannsins sem skaut á Donald Trump á kosningafundi hans í Butler, Pennsylvaniu í gær. Hann var skráður í Repúblikanaflokkinn. Einn áhorfandi lést og tveir eru alvarlega slasaðir á spítala eftir að maður skaut fimm skotum á kosningafundi Donald Trump í Pennsylvaniu í gær. Trump fékk skot í eyrað og var drifinn í burtu af leyniþjónustufólki. Skotmaðurinn...
HeimurKynlífsþerapistinn Dr. Ruth er látin: „Ekkert er áhugaverðara en kynlíf“ Dr. Ruth Westheimer, hinn virti og ófeimni kynlífsmeðferðarfræðingur er látin, 96 ára að aldri. Í yfirlýsingu til ET sagði upplýsingafulltrúi hennar, Pierre Lehu,: „Börn Dr. Ruth K. Westheimer eru sorgmædd að tilkynna andlát móður sinnar, hins alþjóðlega fræga kynlífsþerapista, rithöfundar, spjallþáttastjórnanda, prófessors og munaðarleysingja helfararinnar.“ Yfirlýsingin hélt áfram: „Hún lést friðsamlega á heimili sínu í New York borg 12. júlí...
HeimurDr. Smith: „Ekkert getur búið þig undir að verða vitni að því sem Palestínumenn hafa mátt þola“ Hams Smith, bráðalæknir sem sneri nýlega heim frá Gaza, segist aldrei hafa orðið vitni að neinu eins hrikalegu og það sem hann sá á Gaza-svæðinu á öllum ferli sínum á átakasvæðum. „Enginn getur undirbúið sig nægilega fyrir það sem palestínskir heilbrigðisstarfsmenn og Palestínumenn á Gaza hafa mátt þola á síðustu níu mánuðum,“ sagði Smith við Al Jazeera. „Ég hef starfað...
HeimurMaður handtekinn fyrir að standa upp í miðju flugi og míga á gólfið – MYND Maður var handtekinn um borð í flugvél American Airlines flugfélagsins eftir að hann gerði sér lítið fyrir og meig á gólf vélarinnar, fyrir framan aðra flugfarþega. Ljósmyndir af karlkyns farþega um borð í flugvél hafa verið í dreifingu á netinu undanfarið en þar sést ungur maður létta á sér fyrir framan aðra flugfarþega. Flugvélin er í eigu American Airlines og...