InnlentNöfn hjónanna sem urðu fyrir skotárásinni á Blönduósi – „Erfiðara en orð fá lýst“ Hjónin sem urðu fyrir skotárásinni á Blönduósi síðastliðinn sunnudagsmorgunn eru þau Eva Hrund Pétursdóttir og Kári Kárason. Eva Hrund lést í árásinni og Kári liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir að hann var skotinn í kviðinn. Brynjar Þór Guðmundsson varð Evu Hrund að bana og stórslasaði Kára í skotaárásinni. Hann fannst sjálfur látinn á vettvangi og hefur lögreglan gefið út...
InnlentUppnám á Reykjanesbraut – Fjögurra bíla árekstur Mikil umferðarteppa hefur myndast á móts við Álverið í Straumsvík nú í morgunsárið. Að sögn vegfaranda sem staddur var á Reykjanesbrautinni upp úr klukkan átta er bílaröðin nú orðin margir kílómetrar. „Það er fjögurra bíla árekstur þar,“ sagði varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu í samtali við Mannlíf nú í morgun. Bætti hann við að engin slys urðu á fólki við áreksturinn....
InnlentDrukkinn maður þaut um bæinn á rafskútu – Sváfu ölvunarsvefni í Vesturbænum Lögregla var kölluð út vegna rafskútuslyss skömmu eftir klukkan tvö í nótt. Líklegt er að maðurinn hafi verið talsvert mikið drukkinn þegar hann ók skútunni en er málið í vinnslu hjá lögreglunni. Um það bil klukkustund áður gerði lögregla sér ferð í austurborgina. Þar hafði athugull íbúi tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir. Tuttugu mínútur í tvö stöðvaði lögregla ökumann sem grunaður...
InnlentHálfsystkini talin hafa á laun eignast barn og fyrirfarið því: Hann varð aldrei samur Sólborg Salína Jónsdóttir (1864–1893) og Sigurjón Einarsson (1869–?) Hið svokallaða Sólborgarmál kemur fyrir í dómabókum í janúarbyrjun 1893. Hálfsystkinin Sólborg Salína Jónsdóttir 29 ára og Sigurjón Einarsson 24 ára, voru vinnuhjú á Svalbarði í Þistilfirði og eru talin að hafa á laun eignast barn og fyrirfarið því. Upphaf Sólborgarmálsins var síðla hausts 1892. Þá barst að Héðinshöfða bréf til Benedikts...
InnlentTolli kveður nafna sinn: „Þrátt fyrir þessi áföll lifði alltaf í hjarta hans ljós“ „Í dag fylgi én nafna mínum og frænda Þorláki Víkingi Morthens til grafar en hann féll frá fyrir nokkru. Þorlákur nafni átti við andleg veikindi að etja lengst af en þaug veikindi fékk hann sem afleiðingu af áföllum sem dundu á honum frá bernsku og fram á fullorðins ár.“ Þetta skrifar myndlistarmaður Þorlákur Kristinsson Morthens, betur þekktur sem Tolli, á...
InnlentBlóðugir menn handteknir við leikskólann Mánabrekku: Ófremdarástand við Eiðistorg um hábjartan dag Lögregla stöðvaði um fimmleytið í dag í það minnsta tvo menn sem slógust harkalega rétt við leikskólann Mánabrekku á Seltjarnarnesi, skammt frá Eiðistorgi. Mennirnir eru sagði hafa verið alblóðugir eftir átökin. Fréttablaðið birtir myndband af atvikinu og greinir frá því að auk lögreglu hafi sjúkrabíll komið á vettvang. Svo virðist sem þrír menn hafi ógnað þeim fjórða. Lögregla verst allra...
InnlentÁsdísar-samsæri Þórarins eins og að rífast við mann á typpinu: „Æ, viltu ekki fara í buxur?“ Blaðamaðurinn Jakob Bjarnar Grétarsson segist ekkert botna í meiningum rithöfundarins Þórarins Leifssonar um að Jakob standi að baki reikningi Ásdísar Óskar Valsdóttur á Goodreads, hvar bók Þórarins hafði fengið slaka umsögn. Ásdís hefur sjálf stigið fram og lýst furðu yfir því að vera sögð einhver önnur en hún sjálf. Jakob Bjarnar segir enga forsögu að baki málinu; Þórarinn sé einfaldlega...
InnlentSenda Húnvetningum samúðarkveðjur: „Þið eigið hug minn allan“ Fulltrúar sveitastjórna á Austurlandi hafa í morgun sent íbúum Húnabyggðar samúðarkveðjur vegna harmleiksins á Blönduósi aðfaranótt sunnudags, þar sem tveir létust og sá þriðji illa haldinn á sjúkrahúsi eftir skotárás í heimahúsi. Austurfrétt segir frá málinu. Í morgun sendi bæjarráð Fjarðabyggðar, frá fundi sínum, hugheilar samúðarkveðjur til sveitastjórnar og íbúa Húnabyggðar. „Hugur okkar er með ykkur öllum og sérstaklega þeim...
InnlentFjölskylda Brynjars óskar eftir tillitssemi: „Við biðjum fyrir því að Kári nái heilsu“ Fjölskylda Brynjars Þórs óskar eftir skilningi og virðingu á einkalífi sínu og Brynjars. Biður hún einnig fyrir Kára sem liggur þungt haldinn á gjörgæslu. Brynjar Þór Guðmundsson er, líkt og fram hefur komið í fjölmiðlum, hinn meinti árásarmaður í harmleiknum á Blönduósi um síðastliðna helgi. Hefur honum verið lýst sem dagfarsprúðum manni sem ekki hafi verið líklegur til slíkra voðaverka....
InnlentUpplifa einmannaleika – sofa ekki nóg og drekka orkudrykki daglega: „Það er áhyggjuefni“ „Það er áhyggjuefni hversu stór hluti íbúa upplifa andlega og líkamlega heilsu sína slæma og það er ákveðin stigmögnun í hópi þeirra sem upplifir einmanaleika.“ Þetta segir Harpa Þorsteinsdóttir, verkefnastjóri lýðheilsumála hjá Reykjavíkurborg í fyrirspurnum borgarinnar um niðurstöður lýðheilsuvísa Reykjavíkurborgar, sem birtir árlega niðurstöður sínar en þetta verkefni var fyrst sett í gang 2019. Hægt er að nálgast allar upplýsingar...
InnlentMinningarathöfn um Harald Loga haldin í dag: „Vonum að hann hafi það gott í draumalandinu“ Minningarathöfn um Harald Loga Hrafnkelsson, sem lést af slysförum á heimili sínu á Tenerife fyrr á árinu, fer fram í dag. Minningarathöfnin verður haldin í dag, á 50 ára afmælisdegi Haraldar Loga. Segist ekkja hans, Drífa Björk Linnet, vonast til að sjá sem flesta „svo við getum fagnað lífi þessa yndislega eiginmanns míns sem við elskuðum svo heitt,“ í færslu...
InnlentFasteignamarkaðurinn kólnar – Ekki færri kaupsamningar í sjö ár Í nýjustu mánaðarskýrslu hagdeildar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar kemur fram að kaupsamningar um íbúðarhúsnæði hafi ekki verið færri síðan í aprílmánuði árið 2015, ef miðað er við sex mánaða hlaupandi meðaltal. Íbúðir seljast síður mikið yfir ásettu verði. Það eru því blikur á lofti á fasteignamarkaðnum, en í skýrslunni segir að fyrstu merki kólnunar geri nú vart við sig. Á höfuðborgarsvæðinu...