Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Hálfsystkini talin hafa á laun eignast barn og fyrirfarið því: Hann varð aldrei samur

Sólborg Salína Jóns­dóttir (1864–1893) og Sigurjón Einarsson (1869–?) Hið svokallaða Sólborgarmál kemur fyrir í dómabókum í janúar­byrjun 1893. Hálf­systkinin Sólborg Salína Jóns­dóttir 29 ára og Sigurjón Einarsson 24 ára, voru vinnuhjú á Svalbarði í Þistil­firði og eru talin að hafa á laun eignast barn og fyrir­farið því.

Upphaf Sólborgar­málsins var síðla hausts 1892. Þá barst að Héðins­höfða bréf til Benedikts sýslu­manns. Í þessu bréfi skýrði hrepp­stjóri frá því, að sá orðrómur væri almennur í sveitinni að vinnukona á prests­setrinu Svalbarði sem hét Sólborg 29 ára hefði síðari hluta sumars fætt barn í dul og komið því fyrir.

Þá hefðu margir, þóst sjá þess merki, að hún væri vanfær, en síðan hefði henni horfið þykktin. Tilgátur manna væru, að hálf­bróðir stúlkunnar Sigurjón, sem einnig var heimilis­fastur á Svalbarði, kynni að hafa verið faðir barnsins.

Einar Benediktsson sonur sýslu­manns tók að kanna málið, varð fljótt ljóst, að samdráttur þeirra hafði lengi verið á allra vitorði, ekki aðeins á Sval­barðs­heimilinu, heldur um alla sveitina. Einn dag um haustið bar svo við, að hún veiktits, en um sama leyti varð heimilis­fólk þess vart, að henni hvarf þykktin. Þetta kom eins og reiðar­slag yfir Sval­barðs­heimilið og alla sveitina. Enginn hafði búist við því, að þau systkinin gripu til hinna verstu óyndis­úrræða.

Sólborg og bróðir hennar voru ákærð fyrir að hafa borið út barn sitt. Einar Benediktsson, þá nýútskrifaður lögfræðingur var fenginn til að dæma í málinu og það fór ekki betur en svo að annar sakborningurinn í málinu deyr í höndunum á honum. Þar tókst Sólborgu að innbyrða refaeitur og kom Einar að henni í áköfum krampa­gráti og seinna um nóttina var hún örend.

Ljóst er að þessi lífs­reynsla lagðist þungt á skáldið og magnaðist myrkfælni hans mjög við atvikið. Að loknu Sólborgar­málinu lét Einar ferja sig yfir Þistil­fjörð. Þegar kom að því að innheimta tollinn segir ferju­maðurinn í stríðni: „Ætlið þér ekki að greiða fyrir stúlkuna líka?“ Og án orða, tók Einar upp pyngju sína og greiddi fyrir Sólborgu. Hann varð aldrei samur maður eftir. Hann þjáðist upp frá þessu af myrkfælni og mátti aldrei einn vera. Hann taldi Sólborgu fylgja sér og ásækja sig í svefni. Einar lést 12. janúar 47 árum síðar, en þann 4. mars 1893 var Sigurjón dæmdur til tíu ára betrunar­húss­vistar.

Ekki er það síst vegna þáttar skáldsins fræga Einars Benedikts­sonar. Það kom í hans hlut að dæma í málinu og hafa grimm örlög hálf­systkinanna Sólborgar og Sigurjóns, á Svalbarði í Þistil­firði undir lok 19. aldar reynst þjóðinni drjúgt umræðu­efni í gegnum tíðina. Svo mikil að þau hafa komið við sögu í mörgum verkum, en útvarps­leikrit var gert um morðið

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Maðurinn hefur áður hlotið dóma fyrir umferðarlagabrot og var fyrr á árinu dæmdur í níu mánaða fangelsi fyrir akstur án ökuréttar.
Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta