InnlentVeðurstofan varað við skriðum og grjóthruni á Vestfjörðum og Snæfellsnesi Nú varar Veðurstofa Íslands við auknum líkum á skriðum og grjóthruni á Vestfjörðum; einnig á Snæfellsnesi – vegna mikillar úrkomu og leysinga vegna hlýnandi veðurs. Kemur fram að gular viðvaranir eru í gildi á Breiðafirði og Vestfjörðum, þar til seint annað kvöld. Í tilkynningu Veðurstofu segir að spá geri ráð fyrir vætu víða um landið í dag; búist sé við...
InnlentMótmælt við bandaríska sendiráðið – MYNDIR! Fjöldi fólks mótmælti stefnu Bandaríkjastjórnar í málefnum minnihlutahópa fyrir utan bandaríska sendiráðið sem er staðsett við Engjateig í Reykjavík. Voru það samtökin No Borders Iceland, Trans Ísland, Rauða regnhlífin, Solaris og MFÍK sem boðuðu til mótmælanna. Í fréttatilkynningu segir að samtökin fordæmi framferði Bandaríkjastjórnar í málefnum trans fólks; kvenna sem og fólks á flótta. Þá fordæma samtökin einnig áform Donalds...
InnlentBýður sig fram til formanns Siðmenntar – Hvatinn er vaxandi ásókn andhúmanískra afla Fyrrverandi þingmaður Pírata – Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir – hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns Siðmenntar – sem er félag siðrænna húmanista á Íslandi. Í tilkynningu frá henni segir að hvatinn að framboðinu sé vaxandi ásókn andhúmanískra afla er kalli á samstöðu þeirra sem trúa á húmaníska hugsjón. Arndís var á þingi fyrir Pírata árin 2021–2024 – en...
InnlentBaldvin bætti metið og varð Norðurlandameistari – Til alls líklegur á Evrópumótinu í mars Norðurlandameistaramótið í frjálsíþróttum fer fram í Espoo í Finnlandi og teflir Ísland fram sameiginlegu liði með gömlu nýlenduherrunum, Danmörku, gegn liðum frá Finnlandi, Svíþjóð sem og Noregi. Íslendingurinn Baldvin Þór Magnússon hefur verið nánast óstöðvandi að undanförnu; bætti á dögunum Íslandsmetin í 3.000 metra og 1.500 metra hlaupum. Íslandsmetið Baldvins í 3.000 metrunum frá því um daginn er 7:45,13 mínútu;...
InnlentUppgjör Einars: „Ég var sakaður um að tala ekki fyrir stefnu meirihlutans“ Einar Þorsteinsson borgarstjóri fór yfir erfitt samstarf meirihlutans í borginni á kjörtímabilinu í þættinum á Sprengisandi á útvarpsstöðinni Bylgjunni. Sagðist Einar vera sáttur við þá ákvörðun sína að slíta samstarfinu, þótt útlit sé fyrir að hann verði ekki sjálfur með í nýjum meirihluta. Í viðtalinu sagði Einar að eftir sveitastjórnakosningarnar hafi honum hugnast vel að mynda meirihluta sem væri frekar...
InnlentSkilaboð Hildar til Ingu Sæland eru skýr: „Dyr okkar sjálfstæðismanna standa enn opnar“ Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins skrifar á Facebook-síðu sinni um þau tíðindi að Einar Þorsteinsson borgarstjṕri skyldi sprengja meirihlutann. Einar Þorsteinsson borgarstjóri Reykjavíkur „Upp er komin flókin staða en við slíkar aðstæður er ábyrgðarhluti að mynda starfhæfan meirihluta um mikilvæg verkefni. Sjálfstæðisflokkurinn er sannarlega reiðubúinn að axla þá ábyrgð og taka til hendinni við stjórn borgarinnar. Fimmtán mánuðir eru eftir af...
InnlentIngvar Sigurðsson valinn besti leikarinn í Frakklandi Lokathöfn alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Clermont-Ferrand í Frakklandi var haldin með pompi og prakt í gærkvöld; þar var tilkynnt að Ingvar E. Sigurðsson hefði hlotið verðlaun hátíðarinnar sem besti leikarinn fyrir hlutverk sitt í myndinni O (Hringur) í leikstjórn Rúnars Rúnarssonar og framleidd af Heather Millard. O (Hringur) er ljóðræn frásögn af manni sem vill standa sig en hans helsta hindrun...
InnlentGul viðvörun gefin út á norðvesturhorninu sem og miðhálendinu Veðurstofan spáir sunnan átta – fimmtán metrum á sekúndu; fimmtán til tuttugu í vindstrengjum á norðvestanverðu klakanum. Boðiðer upp á Slyddu eða snjókomu með köflum; síðar rigning en úrkomulítið verður norðaustanlands. Veður fer frekar hlýnandi; hiti fjórar – átta gráður seinnipart dagsins. Á morgun er svo spáð sunnan tíu – átján metrum á sekúndu; með rigningu eða súld – léttskýjað...
InnlentDópaður olli umferðaróhappi – Aðili handtekinn vegna sölu og dreifingu fíkniefna Aðili var handtekinn í hverfi 101 vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna og einnig brot á vopnalögum. Þá var aðili undir áhrifum fíkniefna haldtekinn valdur að umferðaróhappi í sama hverfi. Svo var ökumaður undir áhrifum áfengis; sviptur ökuréttindum. Aðili var tekinn höndum í hverfi 103 vegna líkamsárásar, og var vistaður í fangaklefa. Aðili var handtekinn í hverfi 220 – vegna sölu...
InnlentHauslaus fór húsavillt – Fékk lögreglufylgd heim að dyrum Lögreglustöð 1 – sem er Austurbær – Miðbær – Vesturbær og Seljarnarnes: Þar var tilkynnt um aðila sem var að stofna til slagsmála á kaffihúsi í hverfi 105. Hafði lögregla afskipti af aðilanum – og svo gekk hann sína leið. Einnig voru höfð afskipti af ökumanni sem ók undir áhrifum áfengis og annarra fíkniefna; var ökumaður laus úr haldi lögreglu...
InnlentSegir Guðrúnu hafa „gaman að því að tala um sjálfstæðisstefnu en framfylgir sérhagsmunastefnu“ Lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson fer ekki fögrum orðum um Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrrverandi dómsmálaráðherra; hann segir um nýtilkomið framboð hennar til formanns Sjálfstæðisflokksins að hér sé „augljóslega einn af þessum dæmigerðu sjálfstæðismönnum sem finnst gaman að tala um sjálfstæðisstefnuna en framfylgir síðan sérhagsmunastefnu í raunheimum.“ Sveinn Andri bætir því við að „Guðrún talaði mikið um frelsi og frjálsa samkeppni og nefndi...
InnlentGuðrún vill ekki sitja í aftursætinu og býður sig fram: „Við þurfum að finna aftur okkar kjarna“ Þingmaður og fyrrverandi dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins – Guðrún Hafsteinsdóttir – býður sig fram til formanns flokksins. Þetta tilkynnti Guðrún á fjölmennum fundi í Salnum í Kópavogi í dag og sagði hún í ræðu sinni að flokkurinn væri í vanda sem og á krossgötum. Guðrún segist vera tilbúin til að leiða flokkinn út úr þessum hremmingum. Fram kemur á fréttavefnum Vísi að...