InnlentÞráinn er látinn Þráinn Hafstein Kristjánsson veitingamaður er látinn, 84 ára að aldri. Hann bjó í Kanada frá árinu 1972. Hann fæddist 1. ágúst 1940. Foreldrar hans voru Kristján Hafstein Gíslason veitingamaður og Svandís Gísladóttir húsfreyja. Þráinn hóf snemma störf í veitingageiranum. Fyrir tvítugt var hann orðinn yfirþjónn á Hótel Borg. Hann gat sér gott orð í tónlistinni, lék á píanó og sílófón...
InnlentBílþjófurinn setti upp falskar númeraplötur – Hjólreiðamaður ekinn niður og sendur á slysadeild Bílþjófur var á ferð í miðborginni í gær. Eftir að hafa tekið bifreið ófrjálsri hendi hafði hann snör handtök og skipti um númeraplötur. Lögreglan sá þó við ræningjanum. Bifreiðin á fölsku númerunum fannst stuttu síðar í bifreiðastæði. Lögregluskýrsla rituð en óljóst er hvort bíljófurinn skildi eftir sig rekjanleg spor. Aðeins einn hvíldi í fangageymslu lögreglunnar í nótt. Ró var yfir...
InnlentUm 100 nemendur Listaháskólans lögðu niður nám í dag – Ljósmyndir Nemendur Listaháskólans gengu úr tíma kl.11:20, og þau sem nema í byggingu skólans í Laugarnesi, fylktu liði að nýju húsnæði LHÍ við Stakkahlíð þar sem fleiri nemendur höfðu safnast saman. Við Stakkahlíð var flutt ræða, kröfur stúdenta Listaháskólans lesnar upp, og rúmlega 200 undirskriftir afhentar aðstoðarrektor skólans, Þóru Einarsdóttur. Um 100 nemendur Listaháskóla Íslands voru viðstaddir. Hér má sjá ljósmyndir...
InnlentBíll sagður hafa keyrt á unga írska konu á Ítalíu Íslensk kona varð fyrir bíl á ítölsku eyjunni Sikiley í gær samkvæmt ítölskum fjölmiðlum en DV greindi fyrst frá þessu á Íslandi. Konan sem er 22 ára gömul var að labba yfir götu á austurströnd eyjunnar þegar bíll keyrði á hana en hún var í kjölfarið flutt á sjúkrahús í nágrenninu og sagt er að ástand hennar sé alvarlegt. Lögreglan...
InnlentMyndband sýnir lögregluna velta grindverkinu við sendiráðið: „Hættið þessu fucking rugli“ Pétur Eggerz Pétursson gagnrýnir fréttamenn RÚV harðlega í nýlegu myndskeiði sem hann birti á Instagram. Segir hann þá hafa sýnt ranga mynd af mótmælum stuðningsmanna Palestínu og Líbanon fyrir utan bandaríska sendiráðið um helgina. Í myndskeiðinu spyr Pétur hvort fréttamenn RÚV fari ekki yfir heimildir sínar, þar sem sagt hafi verið í kvöldfréttum að rauðri málningu hafi verið skvett á...
InnlentSegir ríkisstjórnina gefa þjóðinni fingurinn:„Löglegt en algjörlega siðlaust sagði maðurinn forðum“ Björn Birgisson segir ástandið á ríkisstjórnarheimilinu vera fáránlegt. Samfélagsrýnirinn frá Grindavík, Björn Birgisson skrifaði færslu eftir að landsfundi Vinstri grænna lauk í gær en hann segir VG hafa fallið á prófinu. Segist hann stöðuna hjá ríkisstjórninni nú vera fáránlega. „VG féll á prófinu og fylgistapið heldur bara áfram. Þingmenn stjórnarflokkanna þriggja eru sammála um tvennt: Annars vegar að ekki komi...
InnlentForsetahjónin í ríkisheimsókn til Danmerkur – Styrkja söguleg tengsl og efla náið samband þjóðanna Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, og Björn Skúlason, eiginmaður hennar, halda í dag til Danmerkur vegna ríkisheimsóknar sem hefst í Kaupmannahöfn á morgun, þriðjudaginn 8. október. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadótttir utanríkisráðherra verður með í för ásamt opinberri sendinefnd. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá forsetaembættinu. Í tilkynningunni kemur fram að hefð sé fyrir því að fyrsta ríkisheimsókn nýs forseta í embætti...
InnlentEngin svör fást um öryggisráðstafanir á Alþingi: „Áhættumatið er í sífelldri endurskoðun“ Hvorki forsætisráðuneytið né embætti ríkislögreglustjóra svara spurningum Mannlífs um öryggismál Alþingis. Lögfræðingurinn Katrín Oddsdóttir vakti athygli á því á dögunum að þingkona hafi tjáð henni að Bjarni Benediktsson forsætisráðherra væri með vopnaða lífverði inni á Alþingi. Þar skrifaði hún meðal annars: „Þar sem ég tuðaði yfir þessu í byrjun fundar af nokkru offorsi sagði þingkonan mér að önnur birtingarmynd óttans...
InnlentAnnar árásarmannanna í Mosó ennþá ófundinn: „Það er náttúrulega allt í blóði“ Annar árásarmannanna sem réðust á ungan föður um miðja nótt á meðan hann svaf í Mosfellsbæ í síðustu viku er ennþá ófundinn en lögreglan á höfuðborgarsvæðinu staðfesti það í samtali við Mannlíf. Eins og Mannlíf greindi frá á föstudaginn átti árásin sér stað á aðfaranótt miðvikudags í síðustu viku og að sögn kærustu mannsins, sem svaf við hlið hans þegar...
InnlentStúdentar fyrir Palestínu kalla til verkfalls í dag: „Háskólayfirvöld á Íslandi þegja þunnu hljóði“ Stúdentar fyrir Palestínu í Háskóla Íslands og í Listaháskóla Íslands, kalla til verkfalls í dag, klukkan 12:00 en þannig vilja þeir mótmæla aðgerðarleysi háskólayfirvalda gagnvart þjóðarmorðinu í Palestínu. Í viðburðarlýsingu frá Stúdentum fyrir Palestínu í Háskóla Íslands á Facebook segir meðal annars: „Mánudaginn 7. október er ár liðið frá því að Ísrael hóf mannskæðasta og hrottalegasta kaflann í 76 ára...
InnlentJódís sér ekki eftir framboðinu: „Ég hef líklega fellt 40 ára gamalt met í gönuhlaupi“ Jódís Skúladóttir sér ekki eftir að hafa boðið sig fram sem varaformaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á landsfundi flokksins um helgina og segist styðja nýkjörna forystu. „Ég hef líklega fellt 40 ára gamalt met í gönuhlaupi í dag en ég sé ekki eftir neinu!“ Þannig hefst Facebook-færsla Jódísar Skúladóttur þingkonu Vinstri grænna sem hún birti í gær, eftir að í...
InnlentFógeti myrti dómara vegna dóttur sinnar – MYNDBAND Fógeti í Whitesburg í Kentucky braut lögin. Réttarhöld yfir fógetanum Shawn Stines hófust fyrir stuttu en hann hefur verið ákærður fyrir morð á dómaranum Kevin Mullins og náðist morðið á upptöku. Stines komst að því að símanúmer dómarans var að finna í síma dóttur Stines og hann var allt annað en sáttur með það. Stines fór inn á skrifstofu dómarans...