InnlentLilja heldur íslenskunni á lofti: „Við tökum þessu stóra verkefni fagnandi“ Menningar- og viðskiptaráðherra skrifaði í gær undir nýjan samning við sjálfseignarstofnunina Almannaróm um að gegna hlutverki miðstöðvar máltækni á Íslandi til ársins 2027. Almannarómur heldur utan um framkvæmd Máltækniáætlunar 2 fyrir hönd ráðuneytisins og vinnur markvisst að því að tryggja að íslensk tunga verði gjaldgeng í öllum samskiptum sem byggja á tölvu- og upplýsingatækni segir í tilkynningu frá Stjórnarráðinu. Samningurinn...
InnlentJón vonast eftir afsökunarbeiðni frá hreppsnefndinni: „Á miklu frekar von á nýrri gusu af óhróðri“ Jón Jónsson þjóðfræðingur á Hólmavík á Ströndum segist glaður með niðurstöðu úttektar KPMG þar sem hann er hreinsaður af ásökunum um fjárdrátt úr sveitarsjóði Strandabyggða. „Ég er fjarska glaður yfir að það sé komin þessi niðurstaða varðandi ásakanir um meinta sjálftöku mína úr sveitarsjóði. Hér á Ströndum hafa verið miklar tröllasögur á flugi og mér hefur sárnað hvað margt fólk...
InnlentÓlafur Aron um árásina á Menningarnótt: „Ísköld tuska beint framan í andlitið á okkur“ Ólafur Aron Sveinsson, markþjálfi og nuddari segir augljóst að í jarðvegi íslensks samfélags séu að vaxa hlutir sem við viljum ekki næra frekar. Ólafur, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar, segir nýlegan atburð á Menningarnótt hafa verið ískalda tusku framan í andlitið á okkur öllum. Það séu í gangi umbreytingar í samfélaginu sem krefji okkur öll til að...
InnlentNiðurlæging og afhroð Sjálfstæðisflokksins heldur áfram – Flokkurinn minni en Miðflokkurinn Fylgishrun Sjálfstæðisflokksins heldur áfram ef litið er til nýrrar skoðanakönnunar Gallup. Flokkurinn er nú sá þriðji stærsti með einungis 14 prósenta fylgi. Samfylking er sem fyrr stærst með 26 prósent fylgi og hefur dalað. Hástökkvarinn í könnuninni er Miðflokkurinn sem mælist með 19 prósenta fylgi og hefur þannig lagt Sjálfstæðisflokkinn að baki sér. Ríkisstjórnin mælist með minna fylgi en nokkur...
InnlentPróflaus kona og farþegi með dóp Nóttin var róleg hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og glæpamenn héldu að mestu kyrru fyrir. Brotlegir ökumenn voru helst á ferli. Maður í annarlegu ástandi missti stjórn á sér og lagðist í skemmdarverk. Hann var handtekinn í austurborginni og gistir í fangageymslu þar til dagur rís. Eldur varð laus í skrifstofuhúsnæði við Fellsmúla. Engin slys urðu á fólki en umtalsverðar skemmdir....
InnlentJón Jónsson hreinsaður af ásökunum: „Niðurstaðan er afdráttarlaus“ Niðurstöður úttektar endurskoðunarfyrirtækisins KPMG á greiðslum til Jóns Jónssonar, fyrrverandi nefndarmanns í hreppsnefnd Strandabyggðar, hafa nú verið kunngjörðar. Jón Jónsson er þar hreinsaður af öllum ásökum um fjárdrátt. „Nú liggur fyrir skýrsla frá KPMG um greiðslur úr sveitarstjóði sem tengjast sjálfum mér, fyrirtækjum sem ég á eða sat í stjórn hjá á meðan ég var í sveitastjórn 2010-14 og í...
InnlentMeirihluta finnst eðlilegt að KSÍ selji áfengi Í sumar ákvað að Reykjavíkurborg að leita til hagsmunaaðila um reglur borgarinnar sem snúa að áfengissölu íþróttamannvirkjum hennar en eins og staðan er í dag er það bannað í reglum borgarinnar. Þó hafa verið veitt leyfi fyrir áfengissölu í íþróttamannvirkjum borgarinnar á undanförnum árum og er hægt að nefna KSÍ í því samhengi en sambandið hefur selt áfengi á landsleikjum...
InnlentBandaríkjamaður dró upp piparúða við Hlemm og hótaði mæðgum: „Palestína er ekki til“ Lögreglan hefur ekki enn yfirheyrt mann sem dró upp piparúða og ógnaði mótmælendum fyrir utan lögreglustöðina á Hverfisgötu 3. september síðastliðinn. Þann 3. september veittist Bandaríkjamaður sem giftur er íslenskum manni, að lítilli palestínskri stúlku og móður hennar fyrir utan lögreglustöðina á Hverfisgötu, með fúkyrðum. Þegar íslensk kona, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, sem stödd var á mótmælunum sem haldin...
InnlentOrmar er fallinn frá Ormar Þór Guðmundsson arkitekt er látinn en hann var 89 ára gamall. Mbl.is greinir frá andláti hans. Ormar fæddist á Akranesi árið 1935 og var elstur í hópi fimm systkina en foreldrar hans voru Pálína Þorsteinsdóttir og Guðmundur Björnsson. Eftir að hafa lokið framhaldsskólagöngu á Ísland hélt hann til Stuttgart í Þýskalandi þar sem hann lærði arkitektúr í Tækniháskólanum í...
InnlentForvarnardagurinn 2024 haldinn í Ingunnarskóla Málþing Forvarnardagsins verður haldið í Ingunnarskóla, Maríubaug 1 í Grafarholti á morgun klukkan 10:00. Miðvikudaginn 2. október verður Forvarnardagurinn 2024 settur í 19. sinn með málþingi í Inngunnarskóla. Forvarnardagurinn er haldinn á hverju hausti og er þá sjónum beint sérstaklega að ungmennum í 9. bekk grunnskóla og á fyrsta ári í framhaldsskóla. Skólar skrá sig til þátttöku og vinna verkefni...
InnlentFingralöng kona handtekin og færð á lögreglustöð – Tónelskur íbúi í Breiðholti fékk tiltal Búðaþjófar settu lit sinn á síðdegið í gær. Þjófarnir voru víða um borgina á ferli við iðju sína og komst upp um nokkra þeirra. Fingralöng kona var staðin að verki við þjófnað í verslun í austurborg Reykjavíkur. Konan reyndist ekki vera samvinnuþýð og var handtekin og flutt á lögreglustöðina við Hverfisgötu. Tekin var skýrsla af búðaþjófinum sem síðan var látinn...
InnlentHalldór um ástæðuna fyrir afsögninni: „Það á að vera gaman að starfa í flokknum sem maður er í“ Halldór Auðar Svansson segir ástæðuna fyrir því að hann hafi nú sagt af sér formennsku í framkvæmdarstjórn Pírata, eftir aðeins þriggja vikna setu, sé sú að það hafi ekki verið gaman að vera formaður þeirrar stjórnar. Sagt var frá því fyrr í dag að Halldór Auðar Svansson, varaþingmaður Pírata hafi hætt sem formaður framkvæmdarstjórnar en aðeins er tæpur mánuður síðan...