Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ólafur Aron um árásina á Menningarnótt: „Ísköld tuska beint framan í andlitið á okkur“

Ólafur Aron um árásina á Menningarnótt: „Ísköld tuska beint framan í andlitið á okkur“

Ólafur Aron Sveins­son, mark­þjálfi og nudd­ari segir aug­ljóst að í jarð­vegi íslensks sam­fé­lags séu að vaxa hlutir sem við viljum ekki næra frekar. Ólafur, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, segir nýlegan atburð á Menn­ing­arnótt hafa verið ískalda tusku framan í and­litið á okkur öllum. Það séu í gangi umbreyt­ingar í sam­fé­lag­inu sem krefji okkur öll til að líta inn á við og gera betur:

„Við erum að horfa á mjög mik­inn hrist­ing í sam­fé­lag­inu okkar og und­ir­liggj­andi tölur sem sýna mikla van­líðan, erf­ið­leika og afteng­ingu. Það er kúnst að finna jafn­vægið á milli þess að veita þessum hlutum athygli, án þess að sog­ast of mikið inn í þá. Að horfa fyrst of fremst á sjálfan sig og hvernig maður geti tekið ábyrgð á sjálfum sér, en á sama tíma að stinga ekki höfð­inu í sand­inn gagn­vart ljótum hlutum bæði á Íslandi og í heim­inum öllum. Á end­anum er leiðin til þess að stunda sjálfs­vinnu og jafn­væg­is­stilla tauga­kerfið, þannig að maður geti gert gagn fyrir aðra og sam­fé­lagið sitt. Fyrir mig per­sónu­lega er algjört lyk­il­at­riði að ná jafn­vægi í tauga­kerfið og finna teng­ingu við sjálfan mig,“ segir Ólafur Aron, sem segir líka mik­il­vægt að horfa til þess að Íslend­ingar séu sam­eig­in­lega að vinna úr áföllum fyrri kyn­slóða og erf­iðum lífs­skil­yrðum:

„Það er ekki langt síðan við bjuggum við þannig aðstæður að tæki­færi til að vera í ein­hvers konar úrvinnslu á til­finn­ingum voru nán­ast engin. Við verðum að muna að þaðan erum við að koma og það tekur tíma fyrir okkur að þroskast út úr þeim hörðu lífs­skil­yrðum sem við komum frá. Birt­ing­ar­myndin er stundum þessi skautun eða pól­aris­er­ing sem við horfum upp á og í því er oft öll mennska farin úr umræð­unni. Við og hinir og hinir eru slæmt fólk, án þess að við setjum okkur í þeirra spor.“

Í þætt­inum ræða Sölvi og Ólafur Aron um nýlega atburði á Íslandi sem hafa hrist sam­fé­lagið og hvernig hægt sé að nota þessa atburði til þess að læra og gera betur:

„Mín við­brögð við þessum atburði á Menn­ing­arnótt var að þetta var ekki bara köld, heldur ísköld tuska beint framan í and­litið á okkur. Þetta ger­ist á mennning­arnótt í höf­uð­borg­inni okkar. Við erum að horfa á kyn­slóð­irnar sem eru að koma upp á eftir okkar kyn­slóð og verðum að spyrja okkur hvernig er sam­fé­lagið okkar að mót­ast. Ég á sjálfur dóttur á svip­uðum aldri og stúlkan sem dó og maður hefur fylgst með henni fara í gegnum skóla­kerfið og séð hvernig skil­yrði fyrir krakka á þessum aldri til að blómstra og stíga inn í kraft­inn sinn eru oft tak­mörkuð. Við getum gert margt miklu betur þegar kemur að mennta­kerf­inu, upp­eldi og því hvernig sam­fé­lagið almennt er að taka á móti unga fólk­inu okkar. Þessi atburður hreyfir við öllu því sem maður hefur hugsað bæði um börnin sín og líka það sem maður upp­lifði sjálfur í sinni barn­æsku og ung­lings­árum. Eftir að hafa lesið skrif frá for­eldrum þess­arrar stelpu hugsar maður fyrst og fremst hvort þessi atburður geti orðið til þess að bjarga manns­lífum. Og það hvort við getum notað þennan atburð til að skoða hvert við erum að fara sem sam­fé­lag. Auðvitað vill maður ekki alhæfa neitt, en til­finn­ingin er að það sé ein­hver afteng­ing í sam­fé­lag­inu okkar sem við verðum að horfast í augu við og vinna í að laga.“

Ólafur Aron hefur mikið velt fyrir sér hug­tak­inu menn­ingu og hvernig við höfum til­hnein­gingu til að fara í ákveð­inn ,,mono-kúltur”, þar sem allir eru steyptir í sama mót:

„Það mætti líta á menn­ingu eða kúltúr sem ein­hvers konar jarð­veg og spurn­ingin er hvað er að vaxa í jarð­veg­inum? Það er eitt­hvað að grass­era í jarð­vegnum okkar sem við verðum að skoða og takast á við. Það er í mínum huga frekar aug­ljóst að við erum ekki með frjóan opinn jarð­veg til heil­brigðrar skil­yrða til vaxtar eins og staðan er núna. Inni í þannig aðstæðum fara hlutir að vaxa sem við getum öll verið sam­mála um að við viljum ekki. Mann­legar þarfir okkar eru ekki að fá það braut­ar­gengi sem þær þurfa í þeim aðstæðum sem við höfum búið til í þessum mónó-kúltúr. Þegar við förum dýpra í að skoða slæma og nei­kvæða hegðun sjáum við að hún kemur yfir­leitt frá ótta og van­mætti. Spurn­ingin er hvort það sé ekki hægt að tjá van­mátt­inn með öðrum hætti. Ég vil sjá okkur kom­ast á þann stað að horfa á ofbeld­is­hegðun sem birt­ing­ar­mynd á van­mætti og kom­ast þannig lengra en að horfa bara á yfir­borðið. Með því að dýpka okkur á þann hátt eigum við mögu­leika á að byrja að koma í veg fyrir að þessi hegðun eigi sér yfir höfuð stað. Ef við erum bara föst í að tala um vont fólk munum við bara end­ur­taka hlut­ina aftur og aftur,“ segir Ólafur, sem vill meina að fyrsta skrefið sé að stíga skref inn í teng­ingu:

„Mín til­finn­ing er sú að lausn­irnar þurfi ekki að vera svo flóknar. Fyrsta skrefið er að horfa aftur til ákveð­inna grunn­þátta sem við erum komin langt út fyrir og farin að fara á mis við. Eins og til dæmis bara teng­ing við nátt­úr­una með reglu­legum hætti. Lausn­irnar liggja meira í ein­fald­leik­anum en við höldum. Þar náum við að tengja okkur aftur og þegar afteng­ingin byrjar að minnka fara alls konar góðir hlutir að ger­ast. Við eigum alla mögu­leika á að þroskast saman og kom­ast upp á næsta stig sem sam­fé­lag.“

Hægt er að nálg­ast við­talið við Ólaf og öll við­töl og pod­köst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð