InnlentHjónin í Bolungarvík létust eftir veikindi: „Ekki talið hafa borið að með saknæmum hætti“ Hjón sem fundust látin í Bolungarvík þann 27. maí létust eftir langvarandi veikindi að sögn lögreglu. Eftir að hjónin fundust fór mikil rannsókn í gagn en stutt eftir það var tilkynnt að ekki hafi verið talið að andlát þeirra hafi borið að með saknæmum hætti. Nú hefur réttarlæknisfræðileg rannsókn á þeim farið og samkvæmt henni létust hjónin eftir langvarandi veikindi...
InnlentEldur heldur fyrirlestur á ráðstefnu „haturssamtaka“: „Þátttaka mín samræmist gildum mínum“ Eldur Smári Kristinsson, formaður Samtakanna 22, mun halda erindi á ráðstefnunni The Bigger Picture sem fer fram í Portúgal næstu helgi. Ráðstefnan er á vegum Genspect samtakanna en þau hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir níð í garð trans fólks og hafa hin virtu mannréttindasamtök Southern Poverty Law Center sagt Genspect vera haturssamtök. Þá hafa Samtökin 22 einnig verið kölluð haturssamtök....
InnlentSkotvopn og fíkniefni fundust við húsleit á Bakkafirði – Tveir handteknir en sleppt sama dag Fíkniefni og skotvopn fundust við húsleit á Bakkafirði á mánudaginn. Lögreglan á Norðurlandi eystra fór síðastliðinn mánudag í lögregluaðgerð á Bakkafirði vegna gruns um framleiðslu fíkniefna og vopnalagabrot. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar á Facebook. Tveir aðilar voru handteknir í aðgerð lögreglunnar en báðum sleppt að loknum skýrslutökum, síðar sama dag. Við húsleit fannst töluvert magn af meintum fíkniefnum,...
InnlentKínverskur lögreglumaður lést í bílslysinu við Fossá – Eiginkonan flutt á sjúkrahús Maðurinn sem lést í bílslysinu við Fossá á Skaga í gær er lögreglumaður frá Hong Kong. Eiginkona mannsins er einnig lögreglumaður en hún með honum í bílnum. Vísir segir frá málinu og vitnar í kínverska fréttamiðilinn South China morning post en þar segir að hjónin hafi verið í fríi hér á landi og hafi tekið bíl á leigu svo þau...
InnlentEiginkona Páls segir Þóru hafa tekið við símanum – Upptaka varpar ljósi á þátt Ríkisútvarpsins Þóra Arnórsdóttir, fyrrverandi ritstjóri Kveiks, átti beina aðild að innbroti í síma Páls Steingrímssonar skipstjóra, samkvæmt framburði fyrrverandi eiginkonu skipstjórans. Samkvæmt því sem eiginkonan segir þá rændi hún símanum af Páli sem lá meðvitundarlaus á sjúkrabeði á Landspítalanum. Hún hélt með símann rakleiðis í höfuðstöðvar Ríkisútvarpsins þar sem hún segist hafa afhent símann. Arnar Þórisson aðalframleiðandi Kveiks, tók við símanum...
InnlentÓvissa með framtíð tívolís í Hveragerði í kjölfar lögreglutilkynningar Ekki hefur veirð tekin ákvörðun hvort Taylors Tivoli Iceland verði á Blómstrandi dögum á næsta ári að sögn Sigríðar Hjálmarsdóttur, menningar, atvinnu og markaðsfulltrúa Hveragerðis, en Mannlíf greindi frá því í ágúst að móðir hefði leitað til lögreglunar á Suðurlandi og tilkynnt starfsmenn þess fyrir að ráðist á barn hennar. Lögreglan á Suðurlandi staðfesti í samtali við Mannlíf í ágúst...
InnlentHefur þú áhyggjur af verðlagsþróun á Íslandi? Hækkandi verð á ýmsum vörum hefur til verið umræðu hjá mörgum á Íslandi undanfarna mánuði og telja sumir að eitthvað stórt verði að gera til þess að hinn venjulegi íbúi landsins geti hreinlega lifað sómasamlegu lífi. Aðrir eru á því að þó að ástandið hafi vissulega verið betra þá hafi ríkisstjórnin tekið jákvæð skref í átt að stuðla að lægra...
InnlentHrappur flúði vettvang eftir slys Óvenjulítið var frétta í dagbók lögreglunnar í nótt en hér fyrir neðan er samantekt af því helsta Þrír voru handteknir skömmu eftir að brotist hafði verið inn í verslun. Aðilarnir eru grunaðir um að hafa brotið rúðu í verslun í hverfinu og haft á brott með sér vörur. Þá var lögregla kölluð til vegna umferðaróhapps þar sem einn aðili fór...
InnlentHildur í nauðvörn hjá borgarstjórnarflokknum – Flokkurinn er „ósamstígur og stefnulaus“ Hildur Björnsdóttir, leiðtogi borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna, er í nauðvörn vegna afstöðu sinnar til uppfærðs sáttmála um Borgarlínu. Á fundi borgarstjórnarflokksins í fyrradag var harkalega deilt um afstöðu Hildar sem ein borgarfulltrúa stendur með áformum um Borgarlínu. Heimildir Mannlífs herma að allt sé á suðupunkti og skýr vilji til þess að Hildur víki sem leiðtogi. Þetta ástand er þvert á það sem...
InnlentMaður sem féll í Hlauptungufoss fannst látinn Upp úr klukkan eitt í dag barst lögreglu tilkynning um alvarlegt slys nálægt Hlauptungufoss í Brúará í Bláskógabyggð á Suðurlandi en maður er sagður hafa fallið í fossinn klukkan 13:00. Samkvæmt frétt RÚV hafa björgunarsveitir verið kallaðar út auk tveggja þyrla Landhelgisgæslunnar. Samkvæmt Ásgeiri Erlendssyni, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar kallaði lögreglan eftir aðstoð þyrlusveitarinnar. Hafa tvær þyrlur verið sendar á vettvang en...
InnlentÓsætti vegna úthýsingu Glímudeildar Njarðvíkur: „Staðfestir illvilja þess einstaklings“ Mikill styr hefur staðið um ákvörðun Íþrótta- og tómstundafulltrúa Reykjanesbæjar um að úthýsa Glímudeild Njarðvíkur úr bardagahöllinni á Iðavöllum. Í gær birtist færsla á Facebooksíðu Glímudeildarinnar þar sem farið er ofan í saumana á málinu. Færsla sem birtist á Facebook-síðu Glímudeildar Njarðvíkur í gær hefur vakið athygli en þar er sagt frá því hvernig Íþrótta- og tómstundafulltrúi Reykjanesbæjar með stuðningi...
InnlentSvandís býður sig fram til formanns – Vill flýta kosningum Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra ætlar að gefa kost á sér til formennsku Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs á landsfundi flokksins sem haldinn verður 4. til 6. október. Svandís tilkynnti ákvörðun sína við fréttastofu RÚV rétt í þessu, að loknum ríkisstjórnarfundi. Þá sagðist hún vilja flýta alþingiskosninum fram til vorsins en að öllu óbreyttu eiga kosningar að fara fram næsta haust. Í gær...