Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Eldur heldur fyrirlestur á ráðstefnu „haturssamtaka“: „Þátttaka mín samræmist gildum mínum“

Eldur heldur fyrirlestur á ráðstefnu „haturssamtaka“: „Þátttaka mín samræmist gildum mínum“
Eldur Smári, for­maður Sam­tak­anna 22.

Eldur Smári Krist­ins­son, for­maður Sam­tak­anna 22, mun halda erindi á ráð­stefn­unni The Bigger Picture sem fer fram í Portúgal næstu helgi.

Ráð­stefnan er á vegum Genspect sam­tak­anna en þau hafa verið harð­lega gagn­rýnd fyrir níð í garð trans fólks og hafa hin virtu mann­rétt­inda­sam­tök Southern Poverty Law Center sagt Genspect vera hat­urs­sam­tök. Þá hafa Samtökin 22 einnig verið kölluð hat­urs­sam­tök. Anna Krist­jáns­dóttir, ein fyrsta trans kona Íslands, hefur sagt að eina sem sam­tökin hafi á stefnu­skrá sinni sé að hat­ast út í trans fólk. Samtökin 22 segj­ast hins vegar vera bar­áttu­sam­tök fyrir homma og les­b­íur en tæp­lega 300 sam­kyn­hneigðir ein­stak­lingar skrif­uðu undir bréf í fyrra þar sem var sagt að sam­tökin töl­uðu ekki fyrir hönd þeirra og væru ekki í raun ekki hags­muna­sam­tök fyrir sam­kyn­hneigt fólk.

Þá hefur Eldur verið sak­aður um að hvatt Uglu Stefaníu Krist­jönu Jóns­dóttur, trans konu og aktí­vista, að fremja sjálfs­víg en hann neit­aði því við­tali við Heim­ild­ina.

Tekur mannréttindasamtök ekki alvarlega

Mannlíf hafði sam­band við Eld til að spyrja hann út í ráð­stefn­una og erindi hans.

„Mér finnst ekk­ert um það,“ sagði Eldur þegar hann var spurður hvað honum fynd­ist um að Southern Poverty Law Center flokki Genspect sem hat­urs­sam­tök. „Ég veit ekki til þess að neinn með viti taki Southern Poverty Law Center alvar­lega á síð­ustu árum.“

En hvernig kom það til að Eldur haldi erindi á þess­ari ráð­stefnu?

„Ég hef í krafti for­mennsku minnar hjá Sam­tök­unum 22 sem eru eina hags­muna­fé­lag lesbía og homma á Íslandi [inn­skot blaða­manns – Samtökin 78 eru einnig hags­muna­sam­tök homma og lesbía á Íslandi] átt í góðum sam­skiptum við Genspect eins og er raunin með fleiri félög bæði hér­lendis og erlendis. Til að mynda hefur Genspect (og fleiri félög) setið með okkur á nefnd­ar­fundum á Alþingi svo dæmi séu tekin. Ég er beð­inn um að ávarpa ráð­stefn­una í Portugal m.a. vegna snið­göngu fjöl­miðla á mál­þingi okkar sem átti að vera í fyrra, snið­göngu fjöl­miðla á WPATH lek­anum sem við áttum hlut­deild að m.a. í sam­vinnu við Genspect og héldum blaða­manna­fund um í Reykja­vík í vor.“

Segist vera heið­ar­leg mann­eskja

„Þessi þátt­taka mín sam­ræm­ist gildum mínum sem sam­kyn­hneigðs karl­manns og sem heið­ar­legri mann­eskju full­kom­lega,“ sagði Eldur þegar hann var spurður út í hvernig það sam­ræm­ist gildum sam­taka sem segj­ast berj­ast fyrir rétt­indum homma og lesbía að for­maður þeirra tali á þess­ari ráð­stefnu.

„Grunn­gildi Genspect eru mjög í takti við okkar. Genspect hefur fimm grunn­gildi sem eru í fyrsta lagi að ein­ungis gagn­reyndum með­ferðum sé beitt og að rann­sóknir stand­ist kröfur vís­inda­sam­fé­lags­ins. Í öðru lagi eru þau póli­tískt óflokks­bundin. Í þriðja lagi hvetja þau til frjálsrar og opinnar umræðu þar sem fjöl­breyti­leiki skoð­ana fær að njóta sín. Þau eru einnig á móti allri for­ræð­is­hyggju og í fimmta lagi er verndum og upp­lýst sam­þykki lyk­il­at­riði í starfi þeirra. Á þess­ari ráð­stefnu eru fjöl­margir mjög þekktir ein­stak­lingar sem koma fram og það er mik­ill heiður bæði fyrir mig per­sónu­lega og fyrir Samtökin 22 að fá að ávarpa þessa ráð­stefnu.“

En um hvað er fyr­ir­lest­ur­inn?

„Erindið mitt heitir „A country captured by Queer Theory. Dangers of Self-ID“ eða Land í fjötrum Hinseg­in­fræða. Ógnin af lögum um kyn­rænt sjálf­ræði. Í erindi mínu fer ég um víðan völl um íslenskt sam­fé­lag og sýni í máli og myndum hvernig æðstu stofn­anir, stjórn­sýsla og ýmis­leg hags­muna­sam­tök hafa verið tekin yfir af hug­mynda­fræð­ingum og sam­fé­lags­sátt­málar og stefnur settar úr skorðum,“ sagði Eldur að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ