InnlentYfirframleiðandi Kveiks yfirheyrður af lögreglu í símamáli Páls: „Ég hef ekkert að fela“ Arnar Þórisson, yfirframleiðandi fréttaskýringaþáttarains Kveiks og Þóra Arnórsdóttir, samskiptastjóri Landsvirkjunnar og fyrrverandi ritstjóri Kveiks, voru nýerið yfirheyrð í símamáli Páls Steingrímssonar skipstjóra. Samkvæmt heimildum Mannlífs snýr rannsóknin að því hvort sími Páls hafi verið brotinn upp í höfuðstöðvum Ríkisútvarpsins og gögnum úr símanum deilt á aðra fjölmiðla. Gögnin sem síminn geymdi urðu grunnurinn að umfjöllun fjölmiðla um Skæruliðadeild Samherja. Ríkisútvarpið...
InnlentNafn stúlkunnar sem fannst látin á sunnudagskvöld Stúlkan sem fannst látin á sunnudagskvöld hét Kolfinna Eldey Sigurðardóttir. Kolfinna Eldey var 10 ára og var búsett í Reykjavík. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. Faðir hennar hringdi á lögregluna á sunnudagskvöld og sagðist hafa banað dóttur sinni. Var hann þá staddur á Krýsurvíkurvegi en þegar lögreglan og sérsveit ríkislögreglustjóra mætti á vettvang fannst Kolfinna þar látin. Faðir...
InnlentSéra Hjalti Jón um Yazan: „Hvað stoðar manninn að eignast allan heiminn en glata sálu sinni?“ Um 300 manns mætti á samstöðufund með hinum 11 ára gamla Yazan Tamimi við Hverfisgötu 4, þar sem ríkisstjórnarfundur hófst klukkan 8:15 í morgun. Mótmælin fóru friðsamlega fram en kór söng nokkuð falleg lög „til að kenna ráðherrum kærleika“ á milli þess sem kallað var slagorð á borð við „Yazan á heima hér“ og „öll börn eru okkar börn“. Þá...
InnlentSvandís Svavarsdóttir: „Skiptir máli fyrir pólitíkusa að gleyma ekki að vera manneskjur“ Stjórnarslitum var ekki hótað á nýafstöðnum ríkisstjórnarfundi sem hófst í morgun en ráðherrar skiptust á skoðunum um mál Yazan Tamimi. Ríkisstjórnarfundurinn var haldinn að beiðni Guðmundar Inga Guðbrandssonar félagsmálaráðherra en hann hafði beðið dómsmálaráðherra að fresta brottvísun á hinum 11 ára gamla palestínska Yazan Tamimi, sem er með Duchenne vöðvahrörnunarsjúkdóminn, og að mál hans yrði rætt innan ríkisstjórnarinnar. Sem var...
InnlentKölski fékk 50 þúsund króna sekt Þrjá verslanir í Múlunum hafa verið sektaðar af Neytendastofu fyrir ófullnægjandi verðmerkingar en greint er frá þessu á heimasíðu Neytendastofu. Á henni kemur fram að Neytendastofa hafi meðal annars skoðað ástand verðmerkinga hjá verslunum sem staðsettar eru í Ármúla og nærliggjandi götum. Farið var í 50 verslanir og kannað hvort söluvörur væru verðmerktar. Í fyrri skoðun voru gerðar athugasemdir við...
InnlentSigríður Björk heldur starfinu Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri mun halda áfram sem ríkislögreglustjóri næstu fimm árin og veður staðan því ekki auglýst laust til umsóknar, Þetta kemur fram í skriflegu svari aðstoðarmanns Guðrúnar Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra, við fyrirspurn Morgunblaðsins, en sé staðan ekki auglýst framlengist skipunartíminn sjálfkrafa samkvæmt lögum en Sigríður var skipuð í embættið þann 16. mars 2020 og hefði þurft að tilkynna henni...
InnlentLeituðu árgangurslaust að Incze í nótt Lögreglan og björgunarsveitir leituðu að Illes Benedek Incze nótt en ekkert hefur sést til hans síðan klukkan þrjú seinustu nótt. Leitað var í og kringum Vík í Mýrdal en leitarskilyrði á svæðinu voru ekki góð en að sögn björgunarsveita hefur leitin ekki borið árangur. Bæði hundar og drónar voru notaðir í leitinni í nótt. Lögreglan hvetur þá sem hafa einhverjar...
InnlentBorgin siðferðislega vafasöm í nýrri auglýsingu: „Erfitt er að nota mynd af raunverulegu fólki“ Reykjavíkurborg notaði nýverið myndir teiknaðar af gervigreind til að auglýsa laus störf hjá sveitarfélaginu en í henni er verið að leita eftir hjúkrunarfræðingi í heimahjúkrun. Notkun á slíkum myndum þykir mjög umdeild, sérstaklega meðal listamanna og lögfræðinga, en margir sérfræðingar telja að brot á höfundarrétti sé að ræða þegar slíkar myndir eru notaðar því forritin sem búa til myndirnar skanna...
InnlentMótmælt harklega fyrir utan fund ríkisstjórnarinnar: „Yazan á heima hér“ – MYNDBAND Nú standa yfir hávær mótmæli fyrir utan fund ríkisstjórnarinnar sem fer fram á Hverfisgötu en mikill fjöldi mótmælenda hefur safnast fyrir utan til að mótmæla meðferð stjórnvalda á Yazan Tamimi. Yazan Tamimi er 11 ára gamall drengur sem glímir við sjaldgæfan vöðvarýrnunarsjúkdóm en til stendur að vísa honum af landi brott. Í gær var farið með Yazan upp á Keflavíkurflug...
InnlentMál Soffíu litlu í Helgafellsskóla á borði bæjarstjóra: „Við tökum málinu mjög alvarlega“ „Málefni einstaklinga í Helgafellsskóla eru á viðkvæmu stigi og ég er ekki tilbúin að ræða málefni einstakra nemenda. Við tökum málinu mjög alvarlega og erum að leita allra leiða til lausna,“ segir Regína Ástvaldsdóttir, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, í skriflegu svari til Mannlífs vegna Soffíu, stúlkubarnsins sem var tekið úr Helgafellsskóla vegna eineltis sem það varð fyrir af hendi bekkjarbróður. Drengurinn...
InnlentReykspólað í Reykjavík Lögreglan átti fremur náðuga nótt. Þó var nokkuð um ölvun og þrír fengu gistingu í fangaklefum lögreglunnar og svara til saka með nýjum degi. Hæst bar eftir nóttina að bifreiðum var reykspólað í úthverfi Reykjavíkur. Þá var einnig tilkynnt um aðfinnsluvert háttarlag í Kópavogi þar sem einnig var reykspólað með tilheyrandi gauragangi. Þeir hurfu á braut í báðum tilvikum áður...
InnlentLögreglan og björgunarsveitir leita að Illes Benedek Incze – Fólk hvatt að hringja í 112 Lögreglan og björgunarsveitir leita að Illes Benedek Incze en ekkert hefur sést til hans síðan klukkan þrjú seinustu nótt. Leitað er í og kringum Vík í Mýrdal en leitarskilyrði á svæðinu eru ekki góð. Lögreglan hvetur þá sem hafa einhverjar upplýsingar um málið að hafa samband við 112.