Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Svandís Svavarsdóttir: „Skiptir máli fyrir pólitíkusa að gleyma ekki að vera manneskjur“

Svandís Svavarsdóttir: „Skiptir máli fyrir pólitíkusa að gleyma ekki að vera manneskjur“

Stjórn­ar­slitum var ekki hótað á nýaf­stöðnum rík­is­stjórn­ar­fundi sem hófst í morgun en ráð­herrar skipt­ust á skoð­unum um mál Yazan Tamimi.

Rík­is­stjórn­ar­fund­ur­inn var hald­inn að beiðni Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar félags­mála­ráð­herra en hann hafði beðið dóms­mála­ráð­herra að fresta brott­vísun á hinum 11 ára gamla palest­ínska Yazan Tamimi, sem er með Duchenne vöðva­hrörn­un­ar­sjúk­dóm­inn, og að mál hans yrði rætt innan rík­is­stjórn­ar­innar. Sem var sem sagt gert í morgun.

Um 300 manns mót­mæltu fyrir utan rík­is­stjórn­ar­fund­inn.

Mannlíf var á staðnum og ræddi við tvo ráð­herra Vinstri grænna eftir rík­is­stjórn­ar­fund­inn en það eru þau Svandís Svav­ars­dóttir inn­við­a­ráð­herra og Guð­mundur Ingi Guð­brands­son félags­mála­ráð­herra.

Góður fundur

Aðspurð hvort hægt væri að kalla fund­inn hita­fund, svar­aði Svandís: „Þetta var bara mjög góður fundur. Við ræddum nátt­úru­lega mörg mál en meðal ann­ars aðdrag­anda brott­vís­unar á sunnu­dags­kvöldið. Dóms­mála­ráð­herra gerði grein fyrir mál­inu og við ræddum það frá ýmsum hliðum.“

Hvað finnst þér um stjórn­sýsl­una í kringum brott­vís­un­ina, að Guðrún Haf­steins­dóttir dóms­mála­ráð­herra hafi tekið fyrir hend­urnar á lög­regl­unni og Útlend­inga­stofnun?

Svandís: „Það er nátt­úru­lega hennar að svara fyrir sína stjórn­sýslu en ég sé ekki betur en um sé að ræða að óska eftir fresti um að ræða mál sem er mjög við­kvæmt og ég held það hljóti að vera eitt­hvað sem er eðli­legt í lýð­ræð­is­ríki að rík­is­stjórnin fái ráð­rúm til að ræða slík mál, sé eftir því óskað.“

Erfitt og snúið mál

En finnst þér per­sónu­lega það sið­ferð­is­lega rangt að vísa Yazan úr landi?

Svandís: „Ég held að það sé ekki til­viljun hversu heitt og við­kvæmt þetta mál hefur verið. Það er ein­stakt. Og það er mjög sér­stakt að barn sem er lang­veikt og fatlað sé í þess­ari stöðu. Ég held að það skýri umræð­una og það hversu vanda­söm og flókið hún hefur verið. Og þann hiti sem er á mál­inu úti í sam­fé­lag­inu, það var ekki að byrja í gær.“

En finnst þér það sið­ferð­is­lega rangt?

Svandís: „Per­sónu­lega finnst mér mál að þessu tagi mjög snúin og mjög erfið. Ég held að það skipti mjög miklu máli fyrir okkur sem erum í póli­tík að gleyma því ekki að vera mann­eskjur.“

Aðspurð hvort hún teldi að verið væri að brjóta á barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna, vildi Svandís ekki svara því hún hafi ekki skoðað það sér­stak­lega.

Niðurstaða fundarins

Munu Vinstri grænir standa vörð um Yazan?

„Ja, núna hefur þessi umræða átt sér stað í rík­is­stjórn og það liggur fyrir að þar með er málið komið aftur til til þess bærðra yfir­valda, meðal ann­ars er sá frestur að renna út, á laug­ar­dag­inn skilst mér, sem tryggir það að hann fái efn­is­lega máls­ferð hér á landi og ég held að það sé mál­inu og fjöl­skyld­unni og sam­fé­lag­inu til góðs.“

Aðspurð um nið­ur­stöðu fund­ar­ins sagði Svandís: „Nið­ur­staðan var sú staðan sem upp er komin kalli á það að málið sé skoðað. Það var beðið um það og það eru ýmsar hliðar á þessu máli. Að hluta til að því sem lúta að hags­munum barna almennt, að hluta til það sem lýtur að stöðu fólks á heil­brigð­is­stofn­unum gagn­vart lög­reglu­að­gerðum og þetta er allt saman til skoð­unar. Og á sama tíma gengur á þennan frest.“

Myndirðu segja að það hrykktir í stoðum rík­is­stjórn­ar­innar?

„Þessi rík­is­stjórn hefur nú margar fjör­urnar sopið og við erum búin að vera saman í þessu í sjö ár og við vitum hvað við getum og við höfum oft leyst flókin mál. Það hefur oft verið okkar styrkur að vera breið rík­is­stjórn og ég held að þetta sé dæmi um slíkt mál.“

Fullorðið fólk sem ræðir málin

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son félags­mála­ráð­herra sagði fund­inn ekki hafa verið hita­fund: „Nei, við ræðum málin en auð­vitað skipt­umst við á skoð­unum og það allt saman en við erum full­orðið fólk og ræðum bara málin.“

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son ræðir við frétta­mann RÚV eftir fund­inn.

Finnst þér per­sónu­lega brott­vísun Yazan sið­ferði­lega röng?

Guð­mundur Ingi: „Já, takk fyrir að spyrja að því. Það sem mig langar að segja er að það eru fjölda­mörg mál sem eru þess eðlis að maður myndi vilja sjá okkur geta tekið á móti og auð­vitað vildi maður vilja sjá okkur geta tekið á móti mjög mörgu fólki en það eru auð­vitað tak­mörk á því og við erum með kerfi sem ákveður hverjum við getum tekið á móti og hverjum ekki. Mér finnst í þessu máli, þess vegna fer ég fram á það, að því sé frestað að brott­vísa þessum ein­stak­lingi. Að fá upp­lýs­ingar um stöð­una í mál­inu. Ég hafði rætt áður í rík­is­stjórn fyrir nokkrum mán­uðum, því þetta kom mér á óvart, þessi brott­vísun, núna rétt áður en ein­stak­ling­ur­inn á rétt á efn­is­legri með­ferð. Mér fannst mik­il­vægt að við myndum taka þessa umræðu og fá skýr­ingar. Það þarf að velta því upp að barnið er inni á deild á Land­spít­al­anum þegar að ráð­ist er í þessa fram­kvæmd, hjúkr­unar og end­ur­hæf­ing­ar­deild fyrir lang­veik börn. Þannig að það var full ástæða til þess að við tækjum umræð­una um þetta sér­staka mál.“

Þakklátur dómsmálaráðherra

Þannig að þú krafð­ist þess ekki að hætt yrði við að vísa Yazan og for­eldrum hans úr landi, heldur að málið yrði skoðað?

Guð­mundur Ingi: „Já, sko. Það var orðið við þeirri beiðni minni sem mér þykir eði­legt að hafi verið gert, að fresta þess­ari aðgerð vegna þess að það þyrfti að taka þessa umræðu um málið inni í rík­is­stjórn vegna þess eðlis sem það er. Og það held ég að hafi verið mik­il­vægt. Það er eina ákvörð­unin sem hefur verið tekin, að fresta þessu og ég er þakk­látur dóms­mála­ráð­herra að hafa brugð­ist jákvætt við því. Þannig að þar stendur málið bara núna.“

Voru skiptar skoð­anir á fund­inum um brott­vísun Yazan?

Guð­mundur Ingi: „Við skipt­umst alltaf á skoð­unum í þess­ari rík­is­stjórn. Við spönnum nú hið póli­tíska lit­róf og í þessu máli eins og mörgum öðrum voru ýmis sjón­ar­mið á lofti og við ræddum þau bara hrein­skiln­is­lega, sem er hollt og gott í góðu sam­starfi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina