InnlentHann var handtekinn skammt frá staðnum og tókst lögreglu að endurheimta lyklana Sex ökumenn voru handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna á höfuðborgarsvæðinu; þrír urðu að gista fangageymslur vegna brots gegn lögreglusamþykkt Reykjavíkur þar sem þeir sköpuðu ónæði á miðborgarsvæðinu vegna ölvunar. Þrjár líkamsárásir voru skráðar á tímabilinu; af þeim voru tvær tengdar skemmtanahaldi. Lögregla var kölluð til í þremur aðskildum verkefnum í vesturbæ Reykjavíkur þar sem tilkynnt...
InnlentHildur vandar Degi ekki orlofskveðjurnar: „Eðlilegt að fólk rísi upp á afturlappirnar“ Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, segist líta á orlofsmál Dags B. Eggertssonar, fyrrverandi borgarstjóra Reykjavíkur, mjög alvarlegum augum en Dagur fékk 9,7 milljónir króna greiddar vegna orlofs við starfslok sem borgarstjóri. Þar er um að ræða samkvæmt upplýsingum borgarritara, uppsafnað sumarfrí að hluta í 10 ára borgarstjóratíð hans. Hún taldi eðlilegt að kalla eftir upplýsingum með hvaða hætti uppgjörum...
Innlent80 prósent lesenda telja illa staðið að menntamálum á Íslandi Miklar umræður hafa átt sér stað undanfarnar vikur um stöðu íslenska menntakerfisins og þá sérstaklega á grunnskólastigi en Ásmundur Einar Daðason menntamálaráðherra hefur mátt þola mikla gagnrýni fyrir starf sitt. Sumir telja að íslenskt menntakerfi hafi aldrei staðið jafn höllum fæti meðan aðrir telja að skoða þurfi málið betur. Mannlíf spurði lesendur sína hvernig þeim þætti staðið að menntamálum á...
InnlentStelpurnar okkar hafa aldrei svifið hærra Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu hefur náð nýjum hæðum á heimslista FIFA en listinn var gefinn út morgun. Ísland er í 13. sæti listans og fer upp um eitt sæti frá því að listinn var gefinn út seinast. Nokkuð ljóst er að 3-0 sigur landsliðsins á Þýskalandi hefur hjálpað mikið til að hífa liðið upp um sæti en liðið sigraði einnig...
InnlentLögreglan lýsir eftir ökumanni sem keyrði á stúlku: „Ók rakleiðis af vettvangi“ Lögreglan lýsir eftir ökumanni sem keyrði á unglingsstúlku í Kópavogi í fyrradag. Ökumaðurinn sem keyrði á stúlkuna flúði af vettvangi og aðrir ökumenn sáu ekki ástæðu til að athuga með líðan hennar eftir að keyrt var á hana. Hægt er að lesa tilkynningu lögreglu hér fyrir neðan „Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns bifreiðar sem ók á unglingsstúlku á Vatnsendavegi í...
InnlentÓskar matreiðslumeistari hefur lifað lengur en læknar þorðu að vona: „Þakklátur fyrir það sem ég á“ Matreiðslumeistarinn Óskar Finnsson greindist með banvænt heilakrabbamein árið 2019 og sögðu læknar honum að hann ætti innan við tvö ár eftir. „Það eru komin fjögur ár,“ sagði Óskar í viðtali um málið á RÚV. „Þetta er búin að vera skrítin ganga. Mjög skrítin.“ Í kjölfar þess að hann fékk greininguna ákvað Óskar að breyta algjörlega um mataræði. „Þegar ég stóð...
InnlentAlbert gengur til liðs við Fiorentina – Fyrirtaka í nauðgunarmáli hans í lok ágúst Íslenski knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson er að ganga til liðs við ítalska liðið Fiorentina. Albert mun gangast undir læknisskoðun og skrifa undir samning í dag. Liðið endaði í 8. sæti í efstu deild Ítalíu á seinasta tímabili en liðið hefur endað í kringum miðja deild undanfarin áratug en náð ágætis árangri í Evrópukeppnum. Sumir töldu að Albert myndi ekki færa sig...
InnlentGanga gegn þjóðarmorði Ísrael á morgun: „Ekki eitt lík var í heilu lagi“ Á morgun klukkan 14:00 verður gengin mótmælaganga frá Hallgrímskirkju niður á Austurvöll en tilgangur göngunnar er að mótmæla þjóðarmorði á Palestínubúum en greint hefur frá því að í kringum 40 þúsund Palestínubúar hafi verið drepnir á Gaza af Ísraelsher. Þegar á Austurvöll er komið mun Kristín Sveinsdóttir ávarpa fundinn og Kristín Eiríksdóttir les ljóð eftir Mosab Abu Toha en samtökin...
InnlentFjórir þjófar og skemmdarvargur – Bormaður í heimahúsi hélt auga sínu Nóttin var róleg hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og bar fátt annað til tíðinda en það þjófar voru á stangli. Einn slíkur var staðinn að verki í matvöruverslun og löggan kom að málum. Bíljófur náði að krækja sér í bifreið. Þá gerðu skemmdarvargar sig heimakomna í sameign fjölbýlishúss. Óljóst er hvort tekst að hafa hendur í hári skemmdarvarga. Þriðji þjófurinn var...
InnlentHvernig finnst þér staðið að menntamálum á Íslandi í dag? Miklar umræður hafa átt sér stað undanfarnar vikur um stöðu íslenska menntakerfisins og þá sérstaklega á grunnskólastigi en Ásmundur Einar Daðason menntamálaráðherra hefur mátt þola mikla gagnrýni fyrir starf sitt. Sumir telja að íslenskt menntakerfi hafi aldrei staðið jafn höllum fæti meðan aðrir telja að skoða þurfi málið betur. Því spyr Mannlíf lesendur sína: Hvernig finnst þér staðið að menntamálum...
InnlentBenedikt biðlar til Grindvíkinga að sofa ekki í bænum: „Þetta er spurning um öryggi“ Benedikt Gunnar Ófeigsson, fagstjóri aflögunarmælinga á Veðurstofu Íslands, biðlar til Grindvíkinga um að vera ekki að sofa í bænum en talið er að gosið gæti á hverri stundu. „Það hefur verið talsverð skjálftavirkni síðasta sólarhringinn en það gengur nú stundum í hviðum. En frá viku til viku er hún vaxandi,“ sagði Benedikt við Vísi um málið en taldar eru líkur...
InnlentStefán segir Íslendinga setja sig á háan hest: „Til marks um okkar eigin þroska“ Sagnfræðingurinn Stefán Pálsson birti fyrr í dag nokkuð áhugaverðar vangaveltur á samfélagsmiðlinum Facebook um íslenskan húmor en kveikjan að hugleiðingum Stefáns er bókin Spegill íslenskrar fyndni sem hún Þórunn Valdimarsdóttir skrifaði. „Ótrúlega mikið af íslenskum gamanmálum í gömlum blöðum gengur út á skæting, þar sem ungir strákar, venjulegir bændur eða ótíndir skrítlingar svara kennurum, prestum eða pólitíinu fullum hálsi –...