InnlentAlfons færir sig yfir til Birmingham Íslenski landsliðsmaðurinn Alfons Sampsted er að yfirgefa lið sitt Twente í Hollandi og gengur til liðs við Birmingham á Englandi og talið undirritun samnings sé aðeins formsatriði. Samkvæmt fjölmiðlum í Hollandi æfði Alfons ekki með Twente í dag og verður ekki hluti af leikmannahóp liðsins sem mætir NEC í fyrstu umferð hollensku úrvalsdeildarinnar á morgun. Það er nokkuð ljóst að...
InnlentEgill Þorri og Þóra Jóhanna sækjast eftir embætti yfirdýralæknis – Allir umsækjendur vinna hjá MAST Fjórir einstaklingar sóttu um starf yfirdýralæknis en embættið var auglýst laust 5. júlí og rann umsóknar frestur út 28. júlí en svo vill til að allir umsækjendur eru starfsmenn MAST Hér fyrir neðan má sjá lista umsækjenda Brigitte Brugger – sérgreinadýralæknir Egill Þorri Steingrímsson – dýralæknir Vigdís Tryggvadóttir – sérgreinadýralæknir Þóra Jóhanna Jónasdóttir – sérgreinadýralæknir Matvælaráðherra skipar í embættið eftir...
Innlent14 prósent lesenda Mannlífs ætla að taka þátt í Hinsegin dögum Á þriðjudaginn voru Hinsegin dagar settir en þeir hafa verið haldnir síðan 1999 í Reykjavík með fjölbreyttri dagskrá. Margir telja Gleðigönguna hápunkt daganna en hún verður gengin á laugardaginn. Í henni sameinast lesbíur, hommar, tví- og pankynhneigðir, trans fólk, intersex fólk og aðrir hinsegin einstaklingar ásamt fjölskyldum sínum og vinum til að staðfesta tilveru sína og minna á baráttumál sín....
InnlentPrettyboitjokko biðst afsökunar á nauðgunargríni: „Ég fordæmi allt kynferðisofbeldi“ Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason, oft kallaður Patrik eða Prettyboitjokko, hefur beðist afsökunar á brandara sem hann sagði í útvarpsþættinum Veislunni á FM957 fyrir rúmri viku. Veislan hefur verið tekin af dagskrá á FM957 en Patrik var einn af stjórnendum þáttarins. Ekki liggur fyrir hvort sú gagnrýni sem kom í framhaldi brandarans hafi haft áhrif á þá ákvörðun en þátturinn hafði verið...
InnlentMóðir dó eftir að dætur hennar rákust á hana á sæþotu Frönsk 48 ára móðir lést af slysförum þegar sæþota hennar og 16 ára tvíburadætra hennar rákust saman. Móðirin var með eiginmanni sínum á þotunni en dæturnar á annarri en atvikið átti sér stað þann 4. ágúst í Gironde í suðvesturhluta Frakklands. Hún fékk alvarlegt höfuðhögg og lést nokkrum klukkustundum eftir komu á sjúkrahús. Bæði maðurinn og dæturnar sluppu með minniháttar...
InnlentHvergerðingar mæta hatursfólki af hörku: Bærinn málaður í þágu hinseginfólks Hvergerðingar eru komnir í stórsókn gegn hatursfólki sem málaði slagorð yfir regnbogafána í bænum sem málaður hafði verið hinseginfólk til heiðurs. Í gærmorgun mætti íbúum í Hveragerði sú ömurlega sjón að níðyrði og tákn á borð við nasistafánann höfðu verið krotuð á fánann. Viðbrögðin urðu þau að íbúar sameinuðust um að mál enn stærri fána og gefa þannig skemmdarvörgunum ælangt...
InnlentBörn á húsþaki Lögreglan átti þriðju nóttina í röð náðugar stundir. Fátt bar til tíðinda annað en drukknir og dópaðir ökumenn sem sumir voru jafnvel réttindalausir. Einn var læstur inni í fangaklefa eftir slíkt atvik. Búðaþjófur var staðinn að hnupli í matvöruverslun. Hann reyndist vera samvinnuþýður og var mál hans fgreitt á vettvangi. Drengir stunduðu háskaleik á þaki grunnskóla. Lögregla mætti á staðinn...
InnlentLagt til að ríkið greiði 440 milljónir og Grindavíkurbær 30 milljónir Viðgerðir á innviðum í Grindavík, sem og hækkun sjóvarna og frekari jarðkönnun í bænum eru hluti af aðgerðaáætlun er Grindavíkurnefndin svokallaða hefur sent Innviðaráðuneytinu. Áætlaður kostnaður vegna þeirra er nærri hálfur milljarður.Grindavíkurnefndin telur að forsendur til þess að hægt verði að aflétta lokunum til Grindavíkur með öruggum hætti séu afar nauðsynlegar viðgerðir á innviðum; gatnakerfi sem og lögnum. Eldgos í...
InnlentAlbert sagður á leið til Fiorentina Íslenski knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson er sagður vera nálægt því að ganga til liðs við ítalska knattspyrnuliðið Fiorentina en viðræður eru sagðar á lokastigi í ítölskum fréttamiðlum. Liðið endaði í 8. sæti í efstu deild Ítalíu á seinasta tímabili en liðið hefur endað í kringum miðja deild undanfarin áratug en náð ágætis árangri í Evrópukeppnum. Sumir töldu að Albert myndi ekki...
Innlent„Að henda fjölskyldu inn í brennandi hús er svívirðilegt og siðlaust“ Helgi Guðnason, forstöðumaður í Fíladelfíu í Reykjavík, ritar pistil um fjölskyldur frá Venesúela sem senda á aftur til heimalandsins. Helgi Gu.ðnason „Í komandi viku ætla íslensk stjórnvöld að smala fjölskyldum frá Venesúela í flugvélar og senda beint í fangið á ólögmætum stjórnvöldum þar í landi. Nicolas Maduro, sem er eftirlýstur fyrir fíkniefnasmygl og sakaður af Sameinuðu þjóðunum um glæpi gegn...
InnlentUng börn ein heima þegar eldur blossaði upp í íbúð í Laugardalnum Mikill eldur blossaði upp í einu herbergi í íbúð á Hallgerðargötu á Kirkjusandi í Laugardalnum fyrr í dag en samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu voru ung börn ein heima. Þrátt fyrir það slasaðist enginn en herbergið er sagt verið mikið skemmt og vinnur slökkviliðið nú að reykræstingu á vettvangi en búið er að slökkva eldinn. Ekki liggur fyrir um eldsupptök að...
InnlentÆtlar þú að taka þátt í Hinsegin dögum? Á þriðjudaginn voru Hinsegin dagar settir en þeir hafa verið haldnir síðan 1999 í Reykjavík með fjölbreyttri dagskrá. Margir telja Gleðigönguna hápunkt daganna en hún verður gengin á laugardaginn. Í henni sameinast lesbíur, hommar, tví- og pankynhneigðir, trans fólk, intersex fólk og aðrir hinsegin einstaklingar ásamt fjölskyldum sínum og vinum til að staðfesta tilveru sína og minna á baráttumál sín....