InnlentDrukkinn ökumaður á hægum flótta með lögguna á hælunum – Dópsalar með hníf, rafvopn og piparúða Lögregla hóf eftirför þegar ökumaður hlýddi ekki merki um að stöðva í umferðinni. Ökumaðurinn ók þó ekki yfir hámarkshraða og reyndi ekki að flýja lögreglu. Kallað var eftir liðsauka og ökuþórinn var að lokum króaður af. Hann gaf lögreglu þá skýringu að hafa verið að leita að stað til þess að stöðva bifreiðina. Mælingar leiddu í ljós að hann var...
InnlentSenegali í Skagafirði Tindastóll hefur samið við Omoul Sarr um að leika með liðinu á komandi tímabili í Bónusdeild kvenna í körfubolta, en þetta kemur fram á karfan.is. Omoul er fertug að aldri; hún er 190 sentimetrar á hæð; senegalskur/spænskur framherji/miðherji er kemur til Tindastóls frá Freseras í Mexíkó; hefur hún einnig áður leikið fyrir félög á Spáni, í Ekvador, í Frakklandi, í...
InnlentDagbjört Rúnarsdóttir dæmd í tíu ára fangelsi Dagbjört Guðrún Rúnarsdóttir var í gær dæmd í Héraðsdómi Reykjavíkur í tíu ára fangelsi fyrir líkamsárás en Mbl.is greindi fyrst frá málinu. Dagbjört var upphaflega ákærð fyrir að hafa orðið sambýlismanni sínum að bana í Bátavogi í Reykjavík eftir að hafa beitt hann ofbeldi daganna 22. og 23. september á síðasta ári en maðurinn var á sextugsaldri Hún var þó...
InnlentNýr varðturn Dalslaugar kostar borgina tugi milljóna: „Staðsetning laugarvarða var óheppileg“ Miklar framkvæmdir standa nú yfir í Dalslaug í Úlfarsárdal, nýjustu sundlaug Reykjavíkur, en hún opnaði í lok ársins 2021 við mikla gleði sundáhugamanna. Nokkuð óvenjulegt verður þó að teljast að svo miklar framkvæmdir standi yfir í svo nýrri sundlaug en þessi nýja bygging verður varðturn laugarvarða. „Það er verið að færa aðstöðu laugarvarða úr núverandi varðturni sem er staðsettur við...
InnlentGlúmur: „Vissulega erfiðir tímar en þeir eru að baki“ Glúmur Baldvinsson segir að stólar séu mikilvægir. „Einsog fram hefir komið á undanförnum sólarhring tel ég stól afar mikilvægt fyrirbæri; vilji menn á annað borð sitja.“ En ekki bara stólar: „Skrifborð er einnig gagnlegt vilji menn ekki sitja auðum höndum. Því hafi maður aðgang að stóli og skrifborði er hægt að skrifa. Einsog til dæmis FB statusa að lágmarki.“ Glúmur...
InnlentBaldvin bætti eigið Íslandsmet en fer ekki á Ólympíuleikanna: „Gott að vinna hlaupið mitt“ Hlauparinn knái Baldvin Þór Magnússon bætti eigið Íslandsmet á móti í Bretlandi í gær en hann keppti í 1500 metra hlaupi á mótinu. Hljóp hann 1500 metra á 3:39,90 mín og bætti því Íslandsmetið um tæpa hálfa sekúndu en RÚV greindi frá þessu. „3.40 er ákveðin múr sem mig er búið langa rjúfa lengi þannig það er mjög góð tilfinning...
InnlentLygaútkall olli slysinu á Miklubraut – Lögreglumaður beinbrotinn Betur fór en áhorfðist í gærkvöldi þegar pallbíll klessti á lögreglubíl í forgangsakstri á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar en þrír slösuðust í árekstrinum og var einn þeirra almennur borgari. Þá þurfti að klippa einn lögreglumann úr lögreglubifreiðinni. SJÁ NÁNAR: Alvarlegt slys á mótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar – Fjöldi lögreglumanna og akreinum lokað „Líðan þeirra sem fluttir voru á sjúkrahús er...
InnlentFjölskylda Sigurðar óskar eftir aðstoð: „Margt smátt gerir eitt stórt“ Þann 22. júlí lést tónlistarmaðurinn Sigurður Kristinsson Æsland en hann er þekktastur fyrir að hafa verið í Sniglabandinu þar sem hann spilaði á trommur og gítar. Sigurður, sem glímdi við erfið og langvarandi veikindi, lætur eftir eiginkonu og fimm börn. Yngstu börn hans eru fötluð og þurfa mikla umönnun. Fram undan er erfiður tími fyrir fjölskylduna og hefur Snædís Ósk...
InnlentRisahvalur hvolfdi báti – MYNDBAND Veiðimenn undan ströndum New Hampshire í Bandaríkjunum eru heppnir að vera lifandi eftir að hnúfubakur stökk upp úr sjónum og lenti á báti þeirra með þeim afleiðingum að bátinn hvolfdi en atvikið átti sér stað á þriðjudagsmorgun. Vinirnir Ryland Kenney og Greg Paquette voru um borð og var Kenney aðeins nokkra metra frá hvalnum þegar hann stökk upp. Talið er...
InnlentGítarleikari Sniglabandsins látinn Sigurður Kristinsson, gítarleikari Sniglabandsins, er látinn, aðeins 59 ára að aldri. Hann fæddist 7. desember 1964 og lést 22. júlí síðastliðinn eftir erfið veikindi.Sigurður var einn af stofnendum Sniglabandsins og lék í fyrstu á trommur en varð síðar gítarleikari þeirrar vinsæluu hljómsveitar.Hann var þekktur akstursíþróttamaður og keppti í rallýkrossi. Sigurður lærðií kerfisfræði og starfaði í nokkur ár að tölvutækni. Sigurður...
InnlentLögregla stöðvaði hörkudeilur um eignarhald á ketti – Rúðubrjótur réðst á blokk í miðborginni Lögreglan fékkst við afar sjaldgæft mál í gærkvöld þar sem allt var komið í hund og kött vegna deilu um eignarhald á gæludýri. Ágreiningurinn stóð um kött og reynist vera óleysanlegur án aðkomu lögreglunnar þar sem báðir töldi sig eiga köttinn. Rannsókn á vettvangi leiddi í ljós hvor hinn raunverulegi eigandi var. Báðir einstaklingar töldu sig réttmætan eiganda kattarins. Rannsókn...
InnlentSex manna áhöfn hætt komin þegar mikil eldsprenging varð í bát þeirra – Yfirbyggingin varð alelda Í byrjun febrúar 1996 var áhöfn rækjuskipsins Kofra frá Súðavík hætt komin þegar eldur kviknaði djúpt út af Vestfjörðum. Vélstjóri bátsins varð fyrstur var við eldinn sem kviknaði í vélarrúminu. Sá hann fljótt að ljóst væri að ekki þýddi að berjast við eldinn. Skömmu síðar varð gríðarleg eldsprengja í vélarrúminu en við sprenginguna varð yfirbyggingin alelda. Allir sex áhafnarmeðlimir skipsins...