InnlentEnn bólar ekkert á úrslitum undankeppna Söngvakeppninnar – Í fyrra birtust tölurnar 6. mars Nú, meira en mánuði eftir að undenkeppnir Söngvakeppni sjónvarspins fóru fram, hefur Ríkisútvarpið ekki ennþá birt niðurstöður úrslitanna. Undankeppnirnar fyrir Söngvakeppni sjónvarpsins fóru fram 17. febrúar og 24. febrúar en meira en mánuði síðar hafa úrslitin ekki verið kynnt, það er að segja tölfræðin. Samkvæmt heimildum Mannlífs hafa þátttakendur undankeppninnar ekki enn fengið að sjá lokatölur kosninganna. Kona sem sendi...
InnlentGló hættir rekstri: „Við þökkum ykkur kærlega fyrir viðskiptin í gegnum árin“ Í dag skellir veitingastaðurinn Gló í lás og hættir starfsemi eftir 17 ára rekstrarsögu. Viðskiptablaðið greindi frá því í dag að veitingastaðurinn Gló, sem hefur að undanförnu rekið tvo staði, í Fákafeni 11 og í Austurstræti 17, hætti rekstri í dag. Mun Saffran taka við rekstri veitingastaðana en vörumerkið Gló mun lifa áfram. „Við þökkum ykkur kærlega fyrir viðskiptin í...
InnlentLögreglan óskar eftir aðstoð borgarbúa: „Fólk láti vita um grunsamlegar mannaferðir“ Páskavikan er ein mesta ferðahelgi Íslands á hverju ári og því ljóst að mörg hús verði tóm á höfuðborgarsvæðinu, hvort sem fólk hefur ákveðið að skella sér til útlanda eða út á land. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar því eftir aðstoð borgarbúa sem verða eftir í borginni til að hringja í lögregluna ef þeir sjá eitthvað grunsamlegt. Þá hvetur lögreglan fólk...
InnlentKærunni lekið: „Hneykslaður á að Læknafélag Íslands skuli opna póstinn frá henni fullan af skít“ Talsvert hefur verið fjallað um rifrildi og svívirðingar þegar upp úr sauð á milli kvennréttindakonunnar Hildar Lilliendahl Viggósdóttur og Eyþórs Jónssonar læknis, á Facebook-hópnum; Stafsetningaperrinn. Hildur tilkynnti í gær á X-inu, fyrrum Twitter, að kæran sem hún lagði inn til Siðanefndar Læknafélagsins hafi verið lekið, og telur sig vita frá hverjum lekinn stafaði, og ætla má á skrifunum Hildar að...
InnlentRíkisbankinn leynir kaupskjölum: „Landsbankinn er undanþeginn upplýsingalögum“ Fáir hlutir hafa valdið jafn miklu uppnámi í samfélaginu það sem af er ári og bindandi kauptilboð sem Landsbankinn gerði í tryggingarfélagið TM fyrr í mánuðinum. Margir hafa gagnrýnt tilboðið harkalega og er Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir fjármálaráðherra einn af þeim gagnrýnendum en hún telur ekki rétt að banki sem er í ríkiseigu sé að kaupa tryggingarfélag. Lilja Björk Einarsdóttir,...
InnlentBiskupsritari verður bæjarstjóri Lagt verður til af meirihlutanum í bæjarstjórn Hveragerðis að Pétur Georg Markan verði skipaður bæjarstjóri. Mun hann taka við keflinu af fyrrum handboltastjörnunni Geir Sveinssyni. Í lok síðustu viku var starfslokasamningur Geirs samþykktur og hann gaf frá sér yfirlýsingu þess efnis að vera feginn að sleppa undan eitraðri menningu minnihlutans. Pétur G. Markan er þjóðinni þekktur sem biskupsritari og hefur...
InnlentDrakk óvart eitur í vinnunni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greinir frá vinnuslysi sem henti í hverfi 105 er þyrstur einstaklingur drakk eiturefni í misgripum fyrir vatn. Var hann fluttur á slysadeild en ekki er vitað um frekari líðan hans. Þá barst tilkynning vegna hnífaáráasar í póstnúmeri 103. Reyndi meintur árásarmaður að flýja undan lögreglu á tveimur jafnfljótum, en mislukkaðist það hrapalega. Hann var færður í fangavist....
InnlentBjarg féll á dreng í Kópavogi – Drulla bjargaði lífi hans Um kvöldmatarleytið einn sunnudag í september árið 2000 virðist sem lukkudísirnar hafi vakað yfir níu ára dreng í Kópavoginum. Drengurinn var að koma úr sundi með jafnöldrum sínum er hann hjólaði í gegnum nýbyggingahverfi í Kópvogi. Hjólaði hann fram hjá stórum steini er hann féll á hann. Steinninn rann niður brekku og drengurinn með og fóru þeir báðir fram af...
InnlentTöskurnar sem stolið var í Hamraborg fundnar – Búnar litasprengjum Búið er að finna töskurnar sem stolið var úr peningaflutningsbíl við Hamraborg í gærmorgun. Litasprengjur voru í töskunum. Sjá einnig: Lögreglan leitar að tveimur þjófum sem stálu úr verðmætaflutningabíl Samkvæmt frétt mbl.is eru töskurnar sjö sem stolið var úr peningaflutningabíl við Hamraborg í gærmorgun komnar í leitirnar en það var vegfarandi sem átti leið um Esjumela eftir hádegi í gær,...
InnlentHlunkur fór í megrun: „Þorðum ekki að lofa honum stærri“ Hlunkur í nýrri mynd. Breytingar hafa verið gerðir á Hlunki, einum vinsælasta íspinna Íslands, og er hann kominn með breytt útlit en breytingarnar hafa það í för með sér að hann hefur minnkað um 10 millilítra en hann var áður 100 millilítrar. „Hlunkurinn verður 90 millilítrar en aðalbreytingin er í forminu á honum,“ segir Elías Þór Þorvarðarson, sölu- og markaðsstjóri...
InnlentSteinunn og Baltasar sættast: „Hestarnir eru nú í góðri umsjá hestavina“ Steinunn Árnadóttir og Baltasar Kormákur áttu gott spjall um hestaníðsmálið og hafa nú sæst. Organistinn, hestakonan og baráttukonan Steinunn Árnadóttir hefur verið dugleg undanfarin ár að benda á slæma meðferð á dýrum en í fyrra var hún valin Vestlendingur ársins fyrir að vera „málsvari málleysingjanna“. Hún er ein af þeim fjölmörgu sem deildi myndskeiði sem sýndi hræðilega meðferð spænskra hestaþjálfara...
InnlentTil mikils að vinna fyrir Ísland í kvöld – Möguleiki á milljörðum Það er til mikils að vinna fyrir Knattspyrnusamband Íslands ef íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu sigrar lið Úkraínu í kvöld en liðin spila um laust sæti á evrópumóti landsliða sem fer í sumar. Liðin sem komast á mótið fá öll 9,25 milljónir evra í verðlaunafé fyrir árangurinn en það er um það bil 1,4 milljarðar íslenskra króna. Þá munu lið fá...