InnlentLögreglan leitar að tveimur þjófum sem stálu úr verðmætaflutningabíl Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að tveimur þjófum sem brutust inn í bíl í Hamraborg í Kópavogi í gærmorgun. Tilkynning barst á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir stundu en þar er lýst eftir tveimur þjófum sem brutust inn í bifreið í Hamraborg í Kópavogi á tíunda tímanum í gærmorgun og höfðu á brott með sér verulega fjármuni. Skúrkarnir voru á dökkgráum...
InnlentÞorpin eru að verða að verbúðum: „Mun fleiri karlmenn en konur hér fyrir vestan“ „Flestir af þessum erlenda starfsfólki hér áður var kvenfólk, og hlutfallslega voru konur þá mun færri en karlar, og margar af þessum konum sem komu vestur til að vinna í fiski fundu mann fyrir vestan og eignuðust börn og fjölskyldu fyrir vestan. Núna er þetta allt annað við fiskeldið, þar er vinnuaflið sem kemur mest karlmenn og það eru þegar...
InnlentAskja komin á tíma: „Þá verður náttúrulega sprengigos“ Í gær var skjálftahrina við Öskju. Mældist stærsti skjálftinn 3,5 að stærð og átti hann upptök sín í Dyngjufjöllum í norðvesturhluta Öskju. Í samtali við mbl.is segir Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur að skýr teikn séu á lofti sem enda muni með eldgosi: „Við erum náttúrulega búin að vera að bíða eftir henni. Hún er búin að vera að þenja sig í...
InnlentPissaði í húsagarði og ógnaði nærstöddum með hníf Lögreglan í Grafarvogi, Mosfellsbæ og Árbæ sinnti útkalli vegna manns sem var alveg í spreng. Hann stóð í garði íbúahúss og kastaði af sér þvagi. Þegar hann hafði létt á blöðrunni sá hann sér enga aðra kosti færa en að hóta nærstöddum með hníf. Málið í rannsókn hjá lögreglu. Farfuglarnir eru sannarlega farnir að gera vart við sig en í...
InnlentEldur kviknaði í þaki Húsaskóla Eldur kviknaði í þaki Húsaskóla í Grafarvogi í Reykjavík. Samkvæmt frétt Ríkisútvarpsins gengur vel að slökkva eld sem kviknaði í þaki Húsaskóla í Grafarvogi í dag. Rífa þurfti frá þaki skólans til að komast að eldinum, samkvæmt Ásgeiri Halldórssyni aðstoðarvarðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu Segir Ásgeir að einhver börn hafi verið í skólanum þegar eldurinn kviknaði en að þau hafi...
InnlentBaltasar Kormákur: „Ógeðslega sárt að vera gerður að einhverju andliti hestaníðs“ Baltasar Kormákur er mjög ósáttur við að vera gerður að andliti hestaníðs. Sjá einnig: Spænsku hestaníðingarnir í þætti Baltasars ekki reknir frá Ingólfshvoli Leikstjórinn og leikarinn Baltasar Kormákur hefur verið í fréttum um helgina vegna meðferðar spænskra hestaþjálfara sem Baltasar réði til að þjálfa hesta fyrir þættina King and Conqueror, en hann er bæði leikstjóri fyrsta þáttarins og aðalframleiðandi. Líkt...
InnlentLögregluna vantar upplýsingar um bíl – Fólk beðið um að hringja tafarlaust Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir dökkgráum Toyota Yaris, árgerð 2014, með skráningarnúmerið NMA 87 að aftan og SLD 43 að framan. Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir bílsins, eða vita hvar hann er niðurkominn, eru vinsamlegast beðin um að hafa tafarlaust samband við lögreglu í síma 112.
InnlentJón Steinar vill leyfa meintum kynferðisbrotamönnum að spila fyrir Ísland: „Mjög íþyngjandi“ Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, sendi Knattspyrnusambandi Íslands stóra pillu varðandi þær reglur sem sambandið setur leikmönnum. Jóni finnst KSÍ beita ósanngjarnri valdbeitingu en undanfarin ár hafa nokkrir íslenskir leikmenn ekki mátt spila með íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu sökum þess að þeir hafa verið kærðir fyrir kynferðisbrot. „Það er alveg forkastanleg framkoma Knattspyrnusambands Íslands við þá knattspyrnumenn sem hafa verið...
InnlentSpænsku hestaníðingarnir í þætti Baltasars ekki reknir frá Ingólfshvoli Spænsku hestaþjálfararnir sem fengnir voru til að þjálfa hesta fyrir sjónvarpsþættina King and Conqueror sem Baltasar Kormákur framleiðir, voru áður reknir frá öðrum bóndabæ fyrir illa meðferð á hrossunum. Sjá einnig: Ill meðferð erlends kvikmyndatökuliðs á hestum stöðvuð: „Það blæðir ekki undan ofnæmi!!“ Mannlíf fjallaði fyrst fjölmiðla um myndskeið sem sýndi grimmilega meðferð spænskra hestaþjálfara við þjálfun á íslenskum hrossum...
InnlentBarn ekur leigubíl á götum borgarinnar: „Hey stoppaðu bílinn“ Í samfélagsmiðlinum X fer manna á milli myndskeið af barni aka leigubíl. Myndskeiðið var birt á miðlinum aðfaranótt mánudagsins. Í dagbók lögreglu sagði frá tilkynningu vegna barns sem ók á stolinni bifreið í Breiðholti. Ekki er vitað hvort um sama atvik sé að ræða. Á myndskeiðinu stendur: „10 ára krakki að keyra Taxa.“ Þá sér maður hvar ökumaðurinn reynir að...
InnlentLíkamsárás framin af börnum – Unglingar léku lausum hala í Mjóddinni Óskað var eftir aðstoð lögreglu í gær vegna líkamsárásar í 108 Reykjavík. Gerendurnir voru handteknir á staðnum og sleppt að lokinni skýrslutöku, en hvorugur þeirra hefur náð lögaldri. Málið er því unnið í samræði við foreldra og forráðamenn sem og Barnavernd Reykjavíkur. Lögreglan í Garðabæ og Hafnarfirði fékk tilkynningu vegna fullorðins manns sem elti barn á röndum. Leit lögreglu að...
InnlentSegir þjóðina búa við þöggunarmenningu: „Slaufunarmenning er blæbrigði af þessu sama fyrirbæri“ Helgi Hrafn Gunnarsson segir þjóðina búa við „stæka þöggunarmenningu“ í nýrri Facebook-færslu. Fyrrverandi þingmaður Pírata, Helgi Hrafn Gunnarsson steig inn á hálfgert jarðsprengjusvæði á Facebook í dag en þar skrifaði hann um þöggunarmenningu sem hann segir þjóðina búa við. „Við búum við stæka þöggunarmenningu. Hún er ekkert ný og ekki tilkomin úr einhverri einni átt. Við höfum alltaf búið við...