InnlentUmboðsmaður Alþingis vill skipta um starf Stjórnarráðið hefur birt á heimasíðu sinni lista yfir þá einstaklinga sem sóttu um embætti dómara við Hæstarétt Íslands. Athygli vekur að Skúli Magnússon, sem verið hefur umboðsmaður Alþingis frá 2021 er meðal umsækjenda. Hægt er að sjá tilkynninguna og umsækjendur hér fyrir neðan: Hinn 1. mars 2024 auglýsti dómsmálaráðuneytið í Lögbirtingarblaði laust til umsóknar embætti dómara við Hæstarétt Íslands. Skipað...
InnlentVörubifreið fauk á hliðina við Ingólfsfjall – Suðurlandsvegur lokaður til austurs Suðurlandsvegur við Ingólfsjall er lokaður til austurs vegna umferðaróhapps. Lögreglan á Suðurlandi sendi frá sér tilkynningu á Facebook rétt í þessu en þar segir að vörubifreið hafi fokið á hliðina og að unnið sé að því að fjarlægja bifreiðina. Því sé Suðurlandsvegur við Ingólfsfjall lokaður til austurs á meðan á aðgerðum stendur. Hjáleið er um Ölfusveg frá Kirkjuferjuvegi inn að...
InnlentVaka marði sigur Vaka marði sigur í kosningum til Stúdentaráðs Háskóla Íslands, hlaut níu fulltrúa en Röskva hlaut átta fulltrúa. Kosningar til Stúdentaráðs og Háskólaráðs Háskóla Íslands fóru fram í gær, 20. mars, og í dag, 21. mars. Stúdentafylkingarnar, Röskva – samtök félagshyggjufólks við Háskóla Íslands og Vaka – félag lýðræðissinnaðra stúdenta, buðu fram á öllum fimm fræðasviðum Háskólans. Niðurstöður kosninga liggja nú...
InnlentÞorsteinn Óli er fallinn frá Þorstenn Óli Sigurðsson tæknifræðingur lést á heimili sínu í Garðabæ mánudaginn 18. mars. Hann fæddist 9. janúar 1957. Eftirlifandi eiginkona hans, Ingileif Sigfúsdóttir, tilkynnti um andlát hans á Facebook. „Eftir erfið veikindi undanfarin ár lést okkar ástkæri Þorsteinn Óli síðastliðinn mánudag. Hans verður sárt saknað og mun lifa í minningu okkar um alla framtíð,“ skrifar hún. Þorsteinn var mikill útivistarmaður...
InnlentRólegur sólarhringur hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu „Þetta gerist öðru hverju en ekki oft því að við erum með um það bil fjögur útköll á sólarhring að meðaltali yfir árið,“ segir í færslu slökkviliðisins á höfuðborgarsvæðinu um að ekkert útkall á dælubíla hafi borist síðastliðinn sólarhring. Þá var einnig með rólegra móti í sjúkraflutningum en farið var 104 flutninga og af þeim töldust 24 til forgangs. Þá...
InnlentSnorri forsetaframbjóðandi trúir ekki á refsingar í málum fíkniefnaneytenda Nýjasti gestur Alkastsins er forsetaframbjóðandinn Snorri Óttarsson. Snorri er fæddur og uppalinn á Akureyri en hefur verið búsettur í Horsens í Danmörku frá árinu 2007. Rétt fyrir hrun fluttu þau hjónin og voru mjög heppin því þau borguðu aðeins 300 þúsund fyrir leigu á 20 feta flutningagám sem hálfu ári seinna hefði kostað nálægt milljón vegna hruns íslensku krónunnar. Snorri...
InnlentFrambjóðandi Röskvu reyndist ókjörgengur: „Mistök hafa átt sér stað“ Uppnám er í stúdentaráðskosningum Háskóla Íslands en komið hefur í ljós að frambjóðandi Röskvu til Háskólaráðs er ekki kjörgengur. Frambjóðandinn er Rakel Anna Boulter en hún er sitjandi forseti stúdentaráðs. Arent Orri J. Claessen, formaður Vöku, staðfesti í samtali við mbl.is að Vaka hafi sent kjörstjórn erindi um að Rakel Anna væri ekki kjörgeng. Mikael Berg Steingrímsson, formaður kjörstjórnar staðfesti...
InnlentHandboltahetja segir Sjálfstæðismenn ljúga: „Sparka í starfsfólk bæjarins“ Geir Sveinsson handboltahetja var árið 2022 ráðinn bæjarstjóri í Hveragerði en í gær var tilkynnt að meirihluti bæjarstjórnar hafi samið við Geir um starfslok hans. Í framhaldi af því nýttu Sjálfstæðismenn tækifærið til að setja út á störf Geirs en Sjálfstæðismenn eru í minnihluta bæjarstjórnar Hveragerðis. „Geir er góður drengur en við höfum séð mörg merki þess að bæjarstjórinn réð...
InnlentAlvotech tapaði 76 milljörðum í fyrra – Róbert Wessman fékk 573 þúsund krónur í laun á dag Róbert Wessman græddi persónulega á tá og fingri á síðasta ári en aðra sögu má segja um fyrirtæki hans, Alvotech, sem tapaði 76,1 milljarði króna. Samkvæmt frétt Heimildarinnar tapaði Alvotech 76,1 milljarði í fyrra, ef miðað er við meðalgengi dals á árinu 2023 en árið á undan tapaði fyrirtækið 73,3 milljörðum. Samanlagt hefur Alvotech því tapað 149,4 milljörðum króna síðustu...
InnlentGeir Sveinsson hættur sem bæjarstjóri – Stirðleiki í samskiptum Fram kom í fréttum í gær að Geir Sveinsson, fyrrum handboltastjarna og bæjarstjóri í Hveragerði hafi verið leystur undan skyldum sínum við bæjarfélagið. Geir og meirihluti bæjarstjórnarinnar hafa náð samkomulagi um starfslokin. Geir Sveinsson var ráðinn bæjarstjóri Hveragerðisbæjar árið 2022, og sat því í sæti bæjarstjórans í rétt tæp tvö ár. Friðrik Sigurbjörnsson, oddviti Sjálfstæðismanna í Hveragerði, sagði í samtali...
InnlentÚtkall vegna elds á sjöttu hæð í þriggja hæða húsi Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst útkall frá borgara í gær. Dælubíll var sendur á vettvang en er þangað var komið passaði lýsingin á byggingunni ekki. Eldviðvörunin sem hafði borist átti sér stað upp á sjöttu hæð en heimilisfangið sem hafði verið gefið upp og slökkviliðið stóð fyrir utan var einungis þrjár hæðir. Engan sakaði. Í kjölfar atviksins brýnir slökkviliðið fyrir fólki...
InnlentHvetja til þess að Kjörís verði sniðgengið: „Styðjum ekki viðbjóðslegt framferði dómsmálaráðherra“ No Borders hreyfingin á Íslandi hvetur til sniðgöngu Kjörís. Flóttamannahjálparhreyfingin No Norders Iceland hvetur nú íbúa landsins til þess að sniðganga Kjörís en færsla frá hreyfingunni birtist á Facebook-síðu hennar í gær. Ástæðan fyrir hvatningunni er sú að Kjörís er fjölskyldufyrirtæki Guðrúnar Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra og vill hreyfingin senda skýr skilaboð um að fólk styðji ekki „viðbjóðslegt framferði dómsmálaráðherra og flokksins...