Suðurlandsvegur við Ingólfsjall er lokaður til austurs vegna umferðaróhapps.
Lögreglan á Suðurlandi sendi frá sér tilkynningu á Facebook rétt í þessu en þar segir að vörubifreið hafi fokið á hliðina og að unnið sé að því að fjarlægja bifreiðina. Því sé Suðurlandsvegur við Ingólfsfjall lokaður til austurs á meðan á aðgerðum stendur. Hjáleið er um Ölfusveg frá Kirkjuferjuvegi inn að Selfossi. Búast má við að vegurinn verði lokaður fram undir hádegi.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir