InnlentUnglingur laminn í höfuðið með skóflu Tilkynning barst til lögreglunar í nótt vegna um slagsmála í samkvæmi í Kópavogi. Mikill æsingur var á vettvangi er lögreglan bar að garði. Einn gesturinn var fluttur á slysadeild eftir að hafa verið laminn í höfuðið með skóflu. Barnavernd gert viðvart um málið, þar sem þolandi er ekki orðinn sjálfráða. Samkvæmt dagbók lögreglunar á höfuðborgarsvæðinu var þó nokkurt annríki. Talsvert...
Innlent„Hann mun koma ferskur til baka“ Víðir Reynisson er kominn í veikindaleyfi frá störfum sínum sem sviðstjóri Almannavarna. Í samtali við Vísir.is staðfestir samskiptastjóri Almannavarna, Hjördís Guðmundsdóttir fregnirnar. Mikið hefur mætt á Víði enda hefur hann verið áberandi vegna starfa sinna, jafnt nú vegna náttúruhamfaranna sem dynja á Reykjanesskaga sem og í Covid faraldrinum. Óljóst er hversu lengi hann verður frá störfum. Þá hafa einnig langvarandi...
InnlentBúast má við að heitavatnsleysið vari í viku Upplýsingafundur Almannavarna ríkislögreglustjóra var haldinn í dag. Honum stýrði Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri Almannavarna. Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku, og Páll Erland, forstjóri HS Veitna fóru yfir stöðuna á Reykjanesskaga. Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku benti á að í nótt hafi verið hafist undirbúningur við nýja lögn. Í dag var hafist handa...
InnlentHópur mótmælenda hindrar útgönguleið lögreglu – MYNDIR Mannlífi barst ábending um að hópur mótmælenda hafi nú blokkað tvær útgönguleiðir lögreglubíla við lögreglustöðina við Hlemm. Á stöðinni er talið að palestínsk fjölskylda sé innandyra, hjón og fullorðinn sonur þeirra sem lögregla hyggst senda úr landi. Þau eiga ættingja hér á landi en ekki rétt á fjölskyldusameiningu. Í frétt á Vísi segir að fjöldi vopnaðra sérsveitarmanna hafi ráðist inn...
InnlentBrimborg axlar samfélagslega ábyrgð – Rafbílaeigendur greiða heimataxta í hraðhleðslu Brimborg sendi frá sér tilkynningu þess efnis að lækkað hefur verið verðið á hraðhleðslustöð þeirra á Flugvöllum 8 í Reykjanesbæ. Taxtinn er nú hinn sami og rafbílaeigendum býðst í heimahleðslu eða 18.9 krónur per kílówatt stund. Í tilkynningunni segir: „Almannavarnir mælast til að rafbílaeigendur hlaði ekki heimavið í núverandi ástandi og hvetja frekar til þess að nota hraðhleðslu eða almenningshleðslur....
InnlentBendir á ískaldan raunveruleika: „Þegar innviðaráðherra áttar sig á því hvað einkavæðing þýðir“ Kristinn Hrafnsson, blaðamaður, bendir á þá alvarlegu stöðu og skökku mynd sem ríkir nú á Reykjanesi, í nýrri færslu á Facebook. Hann birtir með færslu sinni skjáskot úr frétt af mbl.is frá 8. febrúar síðastliðnum þar sem Sigurður Ingi Jóhannsson innviðarráðherra er spurður um helstu veikleika sem eru í stöðunni vegna stöðunnar á Reykjanesi. Sigurður Ingi svarar: „Þeir snúa kannski...
InnlentBæjarstjórar funda með aðgerðarstjórn: „Grafalvarleg staða og það er orðið býsna kalt“ „Þetta er náttúrulega grafalvarleg staða og það er orðið býsna kalt. Fólk er farið að finna mjög fyrir ástandinu,“ segir Gunnar Axel Axelsson bæjarstjóri Voga. Hann og aðrir bæjarstjórar á Suðurnesjum funda nú með aðgerðastjórn Almannavarna. Eftir að hjáveitulögnin gaf sig með þeim afleiðingum að ekki tókst að koma heitu vatni aftur á Reykjanesið. Blaðamaður mbl.is náði tali af Gunnari...
InnlentBörnin komin heim til pabba síns: „Svo fór ég í snjóslag við þessi börn“ Fyrir skemmstu tóku þrjár íslenskar konur sig til og flugu til Egyptalands og sóttu fjölskyldu frá Gaza. Þar eru fjölskyldurnar sem hafa fengið dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli fjölskyldusameiningar staddar. Konurnar brugðust við því neyðarástandi og eru nú fyrstu börnin komin heim. „Í gær fylgdist ég með Emad vini mínum knúsa börnin sín og konu í fyrsta sinn í fimm...
InnlentFramferði ljósmyndara RÚV um að kenna: „Það er nú þannig“ Mikil óánægja hefur verið meðal fjölmiðlafólks vegna skertu aðgengi í Grindavík. Blaðamannafélagið hefur stefnt ríkinu til viðurkenningar á rétti blaðamanna til að stunda störf á svæðinu. Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, sat undir svörum blaðamanns í viðtali hjá Morgunblaðinu. Lögreglustjóri hefur fram til þessa og ekkert gefið út vegna gagnrýni blaðamanna. Hann segir í viðtalinu: „Þetta fór […] ekki vel...
InnlentUnglingar vopnaðir exi léku lausum hala Hópur unglinga lék starfsfólk og viðskiptavini verslunar, í austurborg Reykjavíkur, grátt í gær. Síendurteknar tilkynningar barst lögreglu vegna atgangs og almennra leiðinda. Þegar lögreglan mætti fyrst á staðinn hafði hópurinn tvístrast. Einhverju síðar barst önnur tilkynning um hópamyndun ungmenna fyrir utan verslunina. Þeirra á meðal var einn vopnaður exi. Sá hinn sami var handtekinn af lögreglu og fluttur á lögreglustöð...
InnlentHeitavatnslaust á Reykjanesi í einhverja daga Í tilkynningu frá HS Orku segir að hjáveitulögnin undir hrauninu sé farin í sundur. Unnið hefur verið dag og nótt við að koma aftur heitu vatni á svæði en svo virðist sem hjáveitulögnin hafi brostið endanlega þegar aukið var við vatnsdælinguna klukkan 22:30 í gærkveldi. Þá segir:„Staðsetningin er undir miðju hrauni, á þeim kafla þar sem það er þykkast, og...
InnlentÍsbjarnaárásin á Eldjárnsstöðum – Þegar hundar björguðu ábúendum og guldu með lífi sínu Frostaveturinn mikla 1918 var einn af bændunum á Eldjárnsstöðum á Langanesi á Norðurlandi Eystra, Kristján Jónsson að sækja vatn í brunn, örlítinn spöl frá þríbýlinu. Þegar Kristján var kominn álengdar tók hann eftir hvítri skeppnu á stærð við væna kind, að því er honum sýndist í fyrstu. Þegar skepnan tekur eftir honum gerir hún sig breiðari og hleypur til móts...