Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Framferði ljósmyndara RÚV um að kenna: „Það er nú þannig“

Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri Suðurnesja
Úlfar Lúð­víks­son, lög­reglu­stjóri Suð­ur­nesja

Mikil óánægja hefur verið meðal fjöl­miðla­fólks vegna skertu aðgengi í Grinda­vík. Blaða­manna­fé­lagið hefur stefnt rík­inu til við­ur­kenn­ingar á rétti blaða­manna til að stunda störf á svæð­inu. Úlfar Lúð­víks­son, lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum, sat undir svörum blaða­manns í við­tali hjá Morg­un­blað­inu.

Lög­reglu­stjóri hefur fram til þessa og ekk­ert gefið út vegna gagn­rýni blaða­manna. Hann segir í við­tal­inu:

„Þetta fór […] ekki vel af stað, þegar starfs­maður RÚV reyndi að kom­ast inn á yf­ir­gefið heim­ili. Það fór gríð­ar­lega illa í Grind­vík­inga. Þá voru aðgerðir við­bragðs­að­ila gagn­rýnd­ar af Grind­vík­ing­um sem öðrum.“

Atvikið sem umræðir er þegar ljós­mynd­ari á vegum RÚV reyndi að finna sér leið inn í yfir­gefið hús í Grinda­vík í óþökk hús­ráð­anda. Upp komst um atvikið í gegnum við­vör­un­ar­kerfi sem skrá­setti ljós­myndar­ann taka í hún­inn og leita síðar að lykli undir blóma­pottum.

Birti mynd­band af inn­brot­stil­raun ljós­mynd­ara RÚV: „Reyndi að opna hurðir og leit­aði svo að lykli“

„Þetta voru vond skila­boð inn í sam­fé­lagið og þessi ein­stak­ling­ur skemmdi klár­lega fyr­ir öðru fjöl­miðla­fólki vegna nei­kvæðrar upp­lif­un­ar fólks og umræðu. Það er nú þannig. Hann setti blett á óheppi­leg­um tíma, þegar eng­inn Grind­vík­ing­ur var inni í bænum,“ útskýrir Úlfar en atvikið vakti mikla reiði meðal íbúa.

Í við­tal­inu er Úlfar spurður hvort honum finn­ist hann hafa gert allt sem hann gat fyrir blaða­menn sem leggja metnað í að skrá­setja sög­una. Hann seg­ist ekki vita það með vissu en að honum þyki sagan ágæt­lega skráð.

„ … blaða­menn og ljós­mynd­ar­ar hafi sinnt því verk­efni með ágæt­um að segja frá og mynda þá at­b­urði sem staðið hafa yfir hér á Reykja­nesi und­an­far­in ár, þrátt fyr­ir tak­mark­an­ir á aðgengi.“

Telur formann misskilja hugtök

Formaður Blaða­manna­fé­lags­ins, Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, hefur kallað eftir gögnum er varða ákvarð­ana­töku lög­reglu vegna máls­ins. Aðspurður hvort hann ætli að verða að beiðni for­manns svarar Úlfar:

„Ég á eft­ir að skoða það. En ég held að hún sé að mis­skilja þarna hug­tök eins og rit­skoðun og tján­ing­ar­frelsi. Við sjá­um til með mín við­brögð.“

Inntur eftir hvort hann telji mál­flutn­ing Sigríðar Daggar byggðan á mis­skiln­ingi svarar Úlfar:

„Erfitt að segja en ei­lít­ill storm­ur í vatns­glasi að mínu mati.“

„Blaða­manna­fé­lag­inu er frjálst að gera það sem það vill gera. Ég hef marg­sagt í sam­skipt­um mín­um við fjöl­miðla­fólk að ég er hérna með 3.800 Grind­vík­inga sem orðnir eru flótta­menn í eig­in landi. Þó að ekki hafi borist skrif­leg beiðni um að halda fjöl­miðlum frá íbúð­ar­göt­um er það sam­talið sem leiðir mann að þeirri niður­stöðu,“ svarar Úlfar vegna stefnu Blaða­manna­fé­lags­ins.

Þá segir Úlfar að ákvarð­anir lög­reglu séu meðal ann­ars byggðar á ákvæðum almanna­varna­laga.

„Ég geri mér al­veg grein fyr­ir því hverju fjöl­miðlar sækj­ast eft­ir en stund­um eru bara ákveðnar grens­ur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum