InnlentUnnustan minnist Lúðvíks Péturssonar: „Hann var kletturinn minn og hversdagsleikinn“ Unnusta Lúðvíks Péturssonar minnist hans í Facebook-færslu. Minningarathöfn um Lúðvík Pétursson var haldin í Langholtskirkju í dag, föstudaginn 9. febrúar, en hann týndist í Grindavík 10. janúar sl. þegar hann var að vinna við að fylla sprungur fyrir Náttúruhamfaratryggingar Íslands. Unnur og Lúðvík á ættarmóti á Minniborg í Grímsnesi með fjölskyldu Lúðvíks Lúðvík var alinn upp á Kjalarnesi og gekk...
InnlentÁhöfnin á Ottó N Þorlákssyni gefur Grindvíkingum starfsmannasjóð sinn: „Skorum á aðrar áhafnir“ Áhöfnin á Ottó N Þorlákssyni tilkynnti í gær á Facebook að hún hafi ákveðið að gefa starfsmannasjóð sinn til Rauða kross Íslands til styrktar Grindvíkingum. Starfsmannasjóður er alls 600.000 krónur en áhöfnin á Ottó N Þorlákssyni frá Vestmannaeyjum hefur ákveðið að gefa Rauða krossinum peninginn svo styrkja megi Grindvíkinga í raunum þeirra. Þá skorar áhöfnin á áhöfna á Dala-Rafni til...
InnlentEfling styrkir Solaris um milljón krónur: „Sameinuð getum við bjargað mannslífum“ Stjórn Eflingar hefur ákveðið að styrkja samtökin Solaris um 1.000.000 króna en styrkurinn verður notaður til að hjálpa samtökunum við að sækja þá Palestínubúa sem fengið hafa dvalarleyfi hér á landi en eru fastir á Gaza. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, skrifaði færslu í dag á Facebook þar sem hún tilkynnir að stjórn Eflingar hafi tekið þá ákvörðun í gær...
InnlentMaður lést í umferðaslysi á Reykjanesbraut Umferðaslysið sem varð á Reykjanesbraut þriðjudaginn 30. janúar var banaslys. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu að maðurinn sem lést hét Eiríkur Örn Jónsson en hann lætur eftir sig unnustu og fjögur börn. Alls hafa nú sjö látist í umferðinni á Íslandi það sem af er ári. Mannlíf sendir fjölskyldu og vinum Eiríks innilegar samúðarkveðjur.
InnlentGrindvískur hundur á hrakhólum – Gripinn af bjargvætti „Í dag er Matti okkar, elsku prinsinn, 16 ára,“ segir Laufey Fjóla Hermannsdóttir í færslu á Facebook. Matti er border collie blanda frá Grindavík og jafnframt einn elsti hundur sveitarfélagsins. Hann ásamt fjölskyldu sinni lenti á hrakhólum í kjölfar jarðhræringanna á Reykjanesskaga og þurftu þau að yfirgefa heimili þeirra. Fjölskyldan, sem telur fimm manns auk Matta og tveggja katta, fékk...
InnlentHelgi Seljan sýnir klærnar – Lögreglan vildi ekki bjarga smábarni úr læstum bíl Lögreglan í Reykjavík sinni ekki útkalli þar sem óskað var eftir hjálp við að ná tveggja ára barni út úr læstri bifreið. Þetta fullyrðir Helgi Seljan blaðamaður í harðorðum og beinskeyttum leiðara Heimildarinnar. „Fyrir ekki svo löngu gerðist það að barn á leikskólaaldri læsti sig óvart inni í bíl við leikskóla í borginni. Þeir í hópi viðstaddra sem voru komnir...
InnlentKaldavatnslaust á Keflavíkurflugvelli Kalt vatn farið af Keflavíkurflugvelli og á svæðinu umhverfis. Þau telja Ásbrú og Háaleitishlaði. Bilun í stofnlögn veldur kaldavatnsleysinu. Sigrún Inga Ævarsdóttir, upplýsingafulltrúi hjá HS Veitum, greinir frá við fréttastofu RÚV, að bilunin sé ótengd eldgosinu. Vonir standa til að kalda vatnið verði komið aftur á eftir um klukkan 11.
InnlentStarfsfólk og verktakar HS veitna unnu þrekvirki í nótt „Starfsmenn HS Orku og verktakar eru komnir langleiðina með að tengja nýju hjáveitulögnina við Njarðvíkurlögnina sunnanmegin við varnargarðinn,“ segir í færslu frá félaginu á samskiptamiðlinum Facebook. Um það vil 20 manns unnu í alla nótt við að koma heitu vatni aftur á Suðurnesjum. Þá segir að unnið hafi verið við báða enda lagnarinnar næturlangt og að bjartsýni ríki um að...
InnlentAlmannavarnir ríkisins keyptu 100 hitablásara Heitavatnslaust er á Reykjanesskaga eftir að hraun flæddi yfir heitavatnsæðina í gær. Nístingskuldi er á svæðinu og þurftu íbúar að reiða sig á rafmagnsofna og hitablásara til að halda híbýlum sínum heitum. Almannavarnir ríksins keyptu hitablásara og afhenty í gærkveldi. „Þessir blásarar sem voru keyptir, sem voru um hundrað, voru afhentir aðgerðastjórn á Suðurnesjum til að koma til þeirra sem...
InnlentÖssur er látinn Össur Kristinsson, stofnandi stoðtækjafyrirtækisins Össurs hf., er látinn. Hann lést á Landspítalanum á þriðjudaginn síðastliðinn, áttræður að aldri. Morgunblaðið greindi frá. Össur fæddist 5. nóvember 1943 og ólst upp í Laugarneshverfi í Reykjavík. Árið 1971 stofnaði Össur hið þjóðþekkta stoðtækjafyrirtæki. Í dag starfa um 4000 manns hjá fyrirtækinu. Árið 2005 stofnaði Össur fyrirtækið Rafnar og starfaði þar allt til dauðadags....
InnlentÖkuníðingur gripinn á 158 km/klst innanbæjar Einn var stöðvaður á brjálæðislegum hraða af lögreglunni í nótt, eftir því sem fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Viðkomandi var á nær tvöföldum hámarkshraða eða 158 km/klst þar sem hámarkshraði var 80 km/klst. Atvikinu sinntu lögreglumenn í stöð 4, sem sinnir Árbæ, Grafarholti, Grafarvogi, Norðlingaholti, Mosfellsbæ, Kjósarhreppi og á Kjalarnesi. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að ökumaðurinn...
InnlentHefur þú séð Daníel Loga? Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Daníel Loga Matthíassyni, 23 ára. Síðast er vitað um ferðir hans í Krónunni á Fiskislóð úti á Granda. Lýsing: Daníel Logi er með dökkt krullað sítt hár bundið í hnút. Hann er klæddur í svarta úlpu, hvítri rúllukragapeysu, ljósbrúnum buxum og svörtum skóm. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Daníels Loga eru beðnir um...