InnlentÍslensk kona handtekin í Belgíu fyrir rán sem hún framdi fimm árum fyrr:„Gjörsamlega hulin ráðgáta“ Í mars árið 1999 var íslensk kona sem búið hafði lengi í Belgíu, handtekin og hneppt í fangelsi vegna gamals brots sem hún framdi. Konan, sem ekki var nafngreind í fjölmiðlum, hafði árið 1994 hlotið þriggja ára fangelsisdóm fyrir rán sem hún framdi í Belgíu árið 1992. Fimm árum síðar var hún handtekin og hneppt í fangelsi svo hún gæti...
InnlentAlmannavarnir með áríðandi tilkynningu Almannavarnir ríkisins biðla til íbúa Suðurnesja að nota rafmagn sem allra minnst á næstunni. Áríðandi tilkynning frá Almannavörnum birtust á Facebook rétt í þessu en þar er biðlað til íbúa Suðurnesja að nota alls ekki meira rafmang til húshitunar, en sem nemur einum litlum hárblásara. Ef ekki er farið eftir þeim fyrirmælum, er hætta á skemmdum í þeim hverfum. Þá...
InnlentGjall fellur út lofti – Varhugavert að handfjatla Tilkynningar hafa borist að gjall falli til jarðar í Grindavík. „Ástæða þess að gjóska fellur nú til jarðar í Grindavík, 3-5 km frá gossprungunni er samspil af hæð kvikustrókanna, vindaáttar, hitauppstreymis frá hraunbreiðunni og lágum lofthita,“ segir í nýrri færslu frá Veðurstofunni. Bent er á að fyllstu varúðar skal gæta þegar gjall er handleikið. Auðveldlega er hægt að skera sig...
InnlentHraun hefur flætt yfir heitavatnsæðina – Gripið til sparnaðaraðgerða Hraunið sem flæðir úr nýjasta eldgosinu á Reykjanesskaga hefur nú farið yfir hitaveituæð sem leiðir vatn til Reykjanesbæjar og annarra sveitarfélaga á Reykjanesinu. Búast má við að nú verði heitavatnslaust næstu sólarhringa miðað við orð forstjóra HS Veitna en blaðamaður Mannlífs náði ljósmyndum af gufustrókinum sem gnæfir á himni en hann myndaðist er hraun flæddi yfir heitavatnsæðina sem leiðir vatn...
InnlentMenn sem unnu að gerð varnargarðanna sluppu með skrekkinn í morgun: „Við vorum heppnir núna“ Starfsmaður sem vinnur á jarðýtu við gerð varnargarða við Svartsengi, segist heppinn að eldgosið í morgun hafi ekki komið upp á sama stað og síðast. Einungist liðu um 10 mínútur frá því að hann fékk boð um rýmingu og þar til eldgosið hófst. Jón Ágúst Gunnarsson, sem starfað hefur að undanförnu á jarðýtu við að koma upp varnargörðum við Svartsengi,...
InnlentÞakkar RÚV fyrir að óhlýðnast fjölmiðlabanni Úlfars: „Viðmælendur skýrðu vel hug sinn og líðan“ Björn Birgisson þakkar Ríkisútvarpinu fyrir að óhlýðnast valdboði Úlfars Lúðvíkssonar lögreglustjóra á Suðurnesjum. Samfélagsrýnirinn orðheppni frá Grindavík, Björn Birgisson, skrifaði Facebook-færslu í morgun þar sem hann þakkar Ríkisútvarpinu fyrir að taka viðtal við „sómafólk í Grindavík“, þrátt fyrir fjölmiðlabann lögreglustjórans Úlfars Lúðvíkssonar. Segir Björn að hann hafi lesið athugasemdir á Facebook við frétt RÚV, sem ekki slógu í gegn hjá...
InnlentSvartasta sviðmyndin í kortunum – Yfirvofandi heitavatnsleysi á öllum Reykjanesskaga „Þetta er það sem við höfum kallað svartasta sviðsmyndin og hún er hreinlega í kortunum núna. En við vitum ekki núna hversu langt hraunflæðið mun ná,“ sagði Páll Erland, forstjóri HS Veitna í samtali við Kristján Má Unnarsson, fréttamann Stöðvar 2. Hraun flæðir nú yfir Grindavíkurveg við Bláa-lóns-afleggjarann og í átt að hitaveituæð sem leiðir vatn til Reykjanesbæjar og annarra...
InnlentÓgnandi lögreglumaður bannaði myndatöku frá Reykjanesbraut: „Áfram, áfram“ Lögreglubifreið með sírenum og ljósum stöðvaði fyrir aftan bifreið blaðamanns Mannlífs á Reykjanesbraut í morgun. Bifreiðin var kyrrstæð á vegöxlinni í þeim tilgangi að taka nokkrar myndir af eldgosinu við Stóra-Skógfell. Eftir örstutt stopp birtist lögreglubifreið og stöðvaði aftan við bifreiðina. Eins og vaninn er þá fór ökumaður út úr bifreiðinni til að hafa tal af lögreglunni sem vildi ekkert...
InnlentThorberg náði fyrstu myndunum af eldgosinu: „Við byrjum að draga og þá blossar þetta bara upp“ Thorberg Einarsson stýrimaður er við þorsk-og ýsuveiðar rétt utan við Grindavík. Hann varð vitni að því þegar eldgosið hófst í morgun. Hann náði þess auki fyrstu ljósmyndunum af eldgosinu. Aðspurður hvort hann vilji deila myndunum með lesendum Mannlífs segir hann: „Já, en ég veit ekki hvort ég get sent þær strax. Ég er bara úti á dekki að vinna á...
InnlentSjötta eldgosið á Reykjanesskaga – Samantekt fyrri gosa Eldgos á Reykjanesskaga hófst á sjötta tímanum í morgun. Á síðastliðnum þremur árum eða frá mars 2021 hafa sex eldgos verið. Það lengsta varði í hálft ár, það stysta 44 klukkustundir. Geldingardalir, 19. mars 2021 Fyrsta gosið hófst í Geldingardölum 19. mars 2021. Markaði það upphaf eldgosatímabils á Reykjanesskaganum, sem enn stendur yfir. Eldgosið stóð yfir í hálft ár. Merardalir,...
InnlentHeppileg staðsetning gossins „Hraunið heldur sér uppi á heiðinni og getur kannski sett smá þrýsting á varnargarðana í Svartsengi,“ segir Þorvaldur Þórðarson í samtali við RÚV um staðsetningu eldogssins og telur hana vart geta hafa verið heppilegri. Hann telur líkur leiða á að núverandi gos verði í styttri kantinum. Eldgosið sem hófst í morgun minnir margt á gosið sem hófst í desember síðastliðnum....
InnlentBláa lónið rýmt í snarhasti Bláa lónið hefur verið rýmt auk allra athafnasvæða vegna skjálfta í kjölfar eldgoss við Sundhnjúkagígaröð, segir í tilkynningunni frá Bláa lóninu. „Við viljum þakka gestum góðan skilning, starfsmönnum fagleg vinnubrögð og viðbragðsaðilum gott samstarf,“ segir í tilkynningunni frá framkvæmdastjóra Bláa lónsins. Gestir sendir á önnur hótel og starfsfólk til síns heima. Allar teljandi starfstöðvar í Svartsengi verða lokaðar í dag.