Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Þakkar RÚV fyrir að óhlýðnast fjölmiðlabanni Úlfars: „Viðmælendur skýrðu vel hug sinn og líðan“

Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri Suðurnesja
Úlfar Lúð­víks­son, lög­reglu­stjóri Suð­ur­nesja

Björn Birg­is­son þakkar Rík­is­út­varp­inu fyrir að óhlýðn­ast vald­boði Úlfars Lúð­víks­sonar lög­reglu­stjóra á Suð­ur­nesjum.

Sam­fé­lags­rýn­ir­inn orð­heppni frá Grinda­vík, Björn Birg­is­son, skrif­aði Facebook-færslu í morgun þar sem hann þakkar Rík­is­út­varp­inu fyrir að taka við­tal við „sóma­fólk í Grinda­vík“, þrátt fyrir fjöl­miðla­bann lög­reglu­stjór­ans Úlfars Lúð­víks­sonar. Segir Björn að hann hafi lesið athuga­semdir á Facebook við frétt RÚV, sem ekki slógu í gegn hjá honum. „Viðtalið var gott og við­mæl­endur skýrðu vel hug sinn og líðan í öllum þessum hama­gangi sem er að koll­varpa öllu dag­legu lífi í 4000 manna byggð. Sú atburða­rás er það frétt­næm­asta sem er að ger­ast í land­inu.

Í umræddri athuga­semda­röð var í raun ekk­ert minnst á þann kjarna máls­ins sem mestu máli skiptir. Stjórn­un­ina, boðin og bönnin sem Grind­vík­ingum og frétta­mönnum er ætlað að hlýða. Mest voru þetta leið­inda upp­hróp­anir og ásak­anir.“

Segir Björn að Úlfar hafi verið að gera frétta­mönnum erfitt að nálg­ast Grind­vík­inga í þeirra hremm­ingum og segir stríðs­frétta­menn fá meiri aðgang í stríðum en fjöl­miðlar fá nú að Grinda­vík.

„En Úlfar lög­reglu­stjóri hefur verið með alla sína tíu fingur í að gera frétta­mönnum erfitt að nálg­ast þolendur á sínum heima­velli, fólkið í Grinda­vík, og bæinn sem slíkan til að gera fólki grein fyrir því sem hefur gerst og er að ger­ast í máli og myndum.Að sinna vinn­unni sinni.Stríðs­frétta­menn hafa miklu meira aðgengi að hættu­legum svæðum en inn­lendir og erlendir frétta­menn að Grinda­vík!Allir vita svo að aðgengi heima­manna að húsum sínum og eigum hefur verið tak­markað langt umfram nauð­syn.“

Þá segir Björn að vís­inda­menn hafi með mik­illi nákvæmni náð að segja fyrir um stað­setn­ingu og tíma­setn­ingu síð­ustu þriggja eld­gosa og að Grinda­vík­ur­bær hafi meira og minna verið lok­aður frá fyrsta gos­inu, á meðan Bláa lónið hafi staðið opið að mestu. „Bláa lónið er miklu nær upp­tökum þess­ara eld­gosa!“ segir Björn og segir bæði Bláa lónið og hita­veitu­mann­virkin á svæð­inu vera varin með varn­ar­görðum en að það sé Grinda­vík einnig. Segir hann að allt þetta hafi leitt til þess að Blaða­manna­fé­lag Íslands hafi lagt fram kæru á hendur lög­reglu­stjór­anum.

„Þetta, ásamt ýmsu öðru, hefur leitt til þess að Blaða­manna­fé­lag Íslands hefur kært lög­reglu­stjór­ann fyrir hans stjórn­un­ar­hætti í tengslum við ham­far­irnar í Grinda­vík.Slík kæra er algjört eins­dæmi – en hún er ekki sett fram af ein­hverri léttúð.Það sem RÚV gerði var að sinna lög­bundnu hlut­verki sínu.Að upp­lýsa og fræða almenn­ing um heitasta mál­efni lands­ins í dag.Fyrir það ber að þakka.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum