InnlentPáll bloggari og kennari: „Þetta samtal er tekið upp, þú verður spurður út í þetta af lögreglu“ Bloggarinn og kennarinn Páll Vilhjálmsson ákvað að henda í eina færslu um blaðamann og skipstjóra: „Síminn hringir hjá Páli skipstjóra Steingrímssyni 20. maí í fyrra kl. 14:56. Páll Steingrímsson. Á línunni er Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans. Daginn eftir ætlar Þórður Snær að birta frétt upp úr stolnum síma skipstjórans. Samtalið er eftirfarandi: Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Kjarnans. Þórður Snær:...
InnlentBlönduðu óvart sykruðum Opal við sykurlausan Opal – Nói Síríus innkallar vöruna frá neytendum Matvælastofnun Íslands sendi frá sér viðvörun til neytenda í dag en varan sem um ræðir er svartur Opal. Varar stofnunin neytendur við einni framleiðslulotu af sykurlausum svörtum Opal frá Nóa og Síríusi vegna mistaka sem urðu gerð við pökkun. Var vörunni dreift í verslanir um allt land. Í þessari framleiðslulotu var sykurlausum svörtum Opal blandað rauðum Opal með sykri. Hefur...
InnlentÁstin á tímum RÚV Fréttakonan Sunna Valgerðardóttir og dagskrárgerðarmaður Guðni Tómasson, bæði á RÚV, eru nýtt par; hafa verið að kynnast betur og betur á undanförnum mánuðum. Guðni Tómasson. Sunna og Guðni vinna hvort í sinni deildinni á RÚV; Sunna starfar á fréttadeildinni og annast hún til dæmis þættina Þetta helst og Heimskviður á gömlu góðu gufunni – Rás 1. Listsagnfræðingurinn Guðni hefur umsjón...
InnlentÍhugar að rukka íslenska nagladekkjanotendur um 20 þúsund á ári Til greina kemur að rukka þá Íslendinga sem nota nagladekk um sérstakt gjald og horfir Umhverfisstofnun til Noregs sem fyrirmynd í þessum efnum sem lið í áætlun um loftgæði. Þar nemur gjaldið 20 krónum yfir veturinn. Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur í loftgæðum hjá Umhverfisstofnun, segir í samtali við Fréttablaðið að til mikils sé að vinna þar sem breytingin myndi draga úr...
InnlentSéra Davíð Þór segir Íslendinga ósanngjarna við Þjóðkirkjuna: „Við viljum ekki vera í neinu stríði“ Séra Davíð Þór Jónsson, sóknarprestur í Laugarneskirkju, telur að landsmenn séu margir hverjir ósanngjarnir gagnvart Þjóðkirkjunni og það skýri meðal annars undanhald kirkjunnar í samfélaginu: „Við höfum orðið vör við að það er töluverð andstaða við kirkjuna. Okkur finnst við ekki njóta sannmælis,“ segir Davíð Þór. Nýlega gagnrýndi Kristrún Heimisdóttir, varaforseti kirkjuþings, þá ákvörðun Davíðs að meina skólabörnum aðgang að...
InnlentÞorsteinn Már þreyttur á þrasinu um Samherja: „Við höfum farið að lögum í þessu eins og öllu öðru“ Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, er orðinn þreyttur á eilífum deilum í íslensku samfélagi þegar kemur að sjávarútvegsfyrirtækjum og greiðslu veiðigjalda. Hann bendir á að í Noregi þurfi fyrirtækin ekki að greiða veiðigjöld. „Hér er orðið mjög þreytandi að hlusta á þessar deilur og reyndar að hluta til nánast annan hvern dag. Um veiðigjöldin já og framtíð sjávarútvegs á Íslandi,...
InnlentSólveig kveður mótmælendur í kút: „Fulltrúar skrifstofuvirkisins og háskólamenntaðar millistéttar“ Hópur kvenna gekk út af jafnréttisþingi og virtust gefa Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni Eflingar, rauða spjaldið er hún hélt erindi sitt á ráðstefnunni í Hörpu í dag. Þessi hópur virðist ekki hafa þekkt Sólveigu Önnu betur en svo að rauða spjaldið minnti hana fremur á rauðan fána alþýðunnar fremur en eitthvað íþróttatengt. Það segir Sólveig sjálf í það minnsta. Sólveig...
Innlent„Þetta er glatað og eitthvað sem maður skammast sín fyrir sem Hafnfirðingur“ „Þetta er okkur Hafnfirðingum ekki til sóma og það á ekkert barn að mæna á göturnar í bænum á meðan önnur börn mæta glöð í skólann,“ segir Símon Birgisson kennari í Hafnarfirði. Hann ritar færslu á Facebook vegna þess að nú eru 39 börn í bænum sem ekki fá skólavist þar. Öll eru þau börn flóttafólks. „Þetta eru ótrúlegar tölur...
InnlentAndrés hæðist að Helga Magnússyni – Hefur tapað 1,4 milljarði og stendur uppi áhrifalaus „Það er eitthvað fallegt og hughreystandi við það að maður sem kaupir fjölmiðil til þess eins að öðlast pólitísk áhrif sitji á endanum uppi með milljarða tap og svipuð áhrif á stjórnmálin eins og duglegur símatímainnhringjandi á Útvarpi Sögu.“ Þetta skrifar Andrés Jónsson, ein helsti almannatengill Íslands, á Twitter og deilir frétt Viðskiptablaðsins þar sem kemur fram að rekstrartap Torgs,...
InnlentSkoðanakönnun Mannlífs: Hvern myndir þú kjósa sem formann Sjálfstæðisflokksins? Landsfundur Sjálfstæðisflokksins verður haldinn núna í byrjun nóvember. Talið er að Guðlaugur Þór eigi vísan stuðning yfir 70 prósenta landsfundarfulltrúa flokksins í Reykjavík og 60 prósent í Kópavogi. Í Hafnarfirði er fylgi Guðlaugs Þór talið vera um 50 prósent. Vert verður að fylgjast náið með en þangað til vörpum við spurningunni til ykkar:
InnlentHulduher Guðlaugs tilbúinn og hefur tryggt fylgi: „Við verðum varir við mikla þreytu í garð Bjarna“ Hulduher Guðlaugs Þórs Þórðarsonar hefur verið virkjaður í þeim tilgangi að bylta forystu Sjálfstæðisflokksins. Undanfarna mánuði hefur verið unnið skipulega að því að tryggja að til landsfundar í byrjun nóvember veljist fulltrúar sem eru andvígir því að Bjarni Benediktsson formaður sitji áfram eftir það sem kallað er „niðurlægingartímabil“ flokksins. Heimildarmaður Mannlífs úr Hulduhernum telur að árangur smölunar sé góður. Hann...
InnlentVerður Guðlaugur næsti formaður Sjálfstæðisflokksins? – Íhugar framboð og svarar ekki fyrirspurnum Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, veltir því nú alvarlegar fyrir sér að bjóða sig fram sem formaður Sjálfstæðisflokksins. Heimildir herma að hann hafi þó ekki tekið lokákvörðun en landsfundur flokksins verður haldinn dagana 4. til 6. nóvember næstkomandi. Guðlaug Þór hefur ekki svarað fyrirspurnum þessa efnis síðustu daga. Ef af þessu verður fer hann fram gegn núverandi formanni...