Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Hulduher Guðlaugs tilbúinn og hefur tryggt fylgi: „Við verðum varir við mikla þreytu í garð Bjarna“

Hulduher Guðlaugs Þórs Þórðar­sonar hefur verið virkjaður í þeim tilgangi að bylta forystu Sjálfstæðis­flokksins. Undan­farna mánuði hefur verið unnið skipulega að því að tryggja að til lands­fundar í byrjun nóvember veljist fulltrúar sem eru andvígir því að Bjarni Benediktsson formaður sitji áfram eftir það sem kallað er „niður­lægingar­tímabil“ flokksins.

Heimildar­maður Mannlífs úr Huldu­hernum telur að árangur smölunar sé góður. Hann segir að Guðlaugur Þór eigi vísan stuðning yfir 70 prósenta landsfundar­fulltrúa flokksins í Reykjavík. Sextíu prósent í Kópavogi þar sem stuðnings­menn Ármanns Kr. Ólafs­sonar réðu vali fulltrúa. Í Hafnar­firði er fylgi Guðlaugs Þór talið vera um 50 prósent. Þá er Guðlaugur talinn mjög sterkur á Suður­landi þar sem stuðnings­maður hans, Vilhjálmur Árnason alþingis­maður er á heima­velli. Á Vestur­landi eru sigur­líkur Guðlaugs góðar en hann er talinn njóta stuðnings Haraldar Benedikts­sonar auk þess að hann er sjálfur frá Borgarnesi.

Guðlaugs­menn hafa farið um landið til að afla honum fylgis. Menn telja sigur­líkar góðar. Heimildar­maðurinn bað um nafnleynd vegna þess hve viðkvæm staðan er.

„Við verðum varir við mikla þreytu í garð Bjarna,“ segir hann en telur að það séu helst eldri Sjálfstæðis­menn sem engu vilji breyta og leyfa Bjarna að klára kjör­tímabilið.

Helgi Áss Grétarsson vara­borgar­fulltrúi hefur gefið kost á sér sem ritari í stjórn Sjálfstæðis­flokksins. Hann ræddi vanda flokksins opinskátt í hlaðvarpi Mannlífs á sínum tíma. Hann sagði óboðlegt að flokkurinn héldi áfram með núverandi forystu og fylgi sem er rétt yfir 20 prósentum.

Guðlaugur Þór hefur ekkert sagt opinber­lega enn sem komið er. Stuðnings­menn hans segja að hann „liggi undir feldi“. Bjarni Benediktsson virtist aðspurður fagna fram­boðinu í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hann sagðist taka dómi flokks­manna, hver sem hann yrði en taldi óeðlilegt að skipta út forystu flokksins í upphafi kjör­tímabilsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning