Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Sólveig kveður mótmælendur í kút: „Fulltrúar skrifstofuvirkisins og háskólamenntaðar millistéttar“

Sólveig Anna Jónsdóttir.
Sólveig Anna Jóns­dóttir. Mynd: Skjáskot/RÚV

Hópur kvenna gekk út af jafnréttis­þingi og virtust gefa Sólveigu Önnu Jóns­dóttur, formanni Eflingar, rauða spjaldið er hún hélt erindi sitt á ráðstefnunni í Hörpu í dag. Þessi hópur virðist ekki hafa þekkt Sólveigu Önnu betur en svo að rauða spjaldið minnti hana fremur á rauðan fána alþýðunnar fremur en eitthvað íþrótta­tengt. Það segir Sólveig sjálf í það minnsta. Sólveig segir þennan hóp vera fulltrúa háskóla­menntaðrar milli­stéttar meðan hún standi með láglauna­konum Íslands.

Hér fyrir neðan má lesa færslu Sólveigar um málið í heild sinni.

Fulltrúar skrifstofu­virkisins og háskóla­menntaðar milli­stéttar voru mættar galvaskar á Jafnréttis­þing þar sem að mér hafi náðarsamlegast verið boðið að tala fyrir hönd arðrændra láglauna­kvenna höfuð­borgar­svæðisins, til að sýna mér það sem kallað er Rauða spjaldið.

Nú er það svo að þekking mín á skipulögðum íþróttum er því sem næst engin. Snemma í bernsku var ég orðin mikill andstæðingur þeirra. Svo heit var andstaða mín að faðir minn, sem hafði mikinn áhuga á því sem næst öllum íþróttum, sagði eitt sinn við mig fremur uppgefinn, eftir að ég hafði enn einu sinni reynt að efna til pólitískra uppþota á heimilinu vegna áhorfs á enn einn hand­bolta­leikinn, að ég væri eins og vitlausustu kommúnistar mannkyns­sögunnar, en þeir höfðu víst haft á stefnu­skrá sinni að banna allar keppnis­íþróttir. Ég auðvitað lét mér ekki segjast við þessi orð heldur forhertist bara í íþrótta-andstöðu minni.

Ég hef einu sinni reynt að horfa á fótbolta­leik, fyrir nokkrum árum síðan. Þá hafði ég frétt af því að maður að nafni Reynaldo ætlaði að taka þátt, en fram að því hélt ég að Reynaldo þessi væri heims­frægt, mjög fram­bærilegt nærfata­módel. Þarna vaknaði áhugi minn en aðeins í skamma stund; mér leiddist svo agalega að ég gafst upp í hálfleik og flutti í höfði mér Reynaldo úr flokknum Fótbolta­maður aftur í flokkin Nærfata­módel. Áfram Reynaldo.

Ég hef á lífs­leiðinni lagt þónukkuð á mig til að reyna að eyði­leggja gleði fólks yfir skipulögðum íþróttum. Um tíma lagðist ég svo lágt að þegar einhver saklaus íþrótta-unnandi sagði eitthvað um „Strákana okkar“ flýtti ég mér að segja: „Þú átt við „Strákarnir ykkar“; ég á bara einn strák og hann er sko ekki í fótbolta“. Ég hef reynt að venja mig af þessu, það er jú mikilvægt að passa mörkin í mannlegum samskiptum…

Allavega. Ef að fulltrúar skrifstofu­virkisins vissu eitthvað um mig hefðu þær kannski áttað sig á því að svona íþrótta-vísanir eins og Rautt spjald gera nákvæmlega ekkert annað en að æsa mig upp og gera mig enn forhertari. Ég tilheyri ekki aðeins sí-minnkandi hópi þeirra sem eitt sinn voru kallaðir anti-sport­istar (eða heimsins leiðinlegustu kommúnistar), ég  er einnig stoltur meðlimur stéttar alþjóð­legs vinnuafls. Því er það svo að þegar að rauðu klæði er veifað framan í mig vaknar engin blygðunar­kennd eða tilfinning um að ég hafi gert eitthvað rangt; nei, samstundis kvikna eldheitar baráttu-kenndir hinnar arðrændu verkakonu, og ég fyllist enn meiri og dýpri löngun til að rísa upp ásamt félögum mínum í stétt verka og láglaunafólks, sækja fram og vinna stóra og magnaða sigra á þeim eina keppnis-velli sem ég viðurkenni; keppnis-velli þeim þar sem að vinnu­aflið mætir arðræningjunum. Áfram vinnu­aflið!

Fulltrúar skrifstofu­virkisins veifuðu Rauða spjaldinu og hlupu svo út. Þær höfðu auðvitað engan áhuga á að hlusta á mig ræða stöðu arðrænds kven-vinnuafls höfuð­borgar­svæðisins, enda skiptir hlut­skipti þess hóps þær engu máli og hefur aldrei gert. En það er allt í lagi; þær skipta mig og félaga mínu engu máli. Við erum á leið á völlinn, mörg, sameinuð og sterk. Og þau tilþrif sem við munum sína þar verða þannig að engum þarf að leiðast. Ég lofa því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning