Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Páll bloggari og kennari: „Þetta samtal er tekið upp, þú verður spurður út í þetta af lögreglu“

Páll Vilhjálmsson kennari og bloggari.
Páll Vil­hjálms­son kenn­ari og blogg­ari.

Blogg­arinn og kennarinn Páll Vilhjálmsson ákvað að henda í eina færslu um blaðamann og skip­stjóra:

„Síminn hringir hjá Páli skip­stjóra Steingríms­syni 20. maí í fyrra kl. 14:56.

Páll Stein­gríms­son.

Á línunni er Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans. Daginn eftir ætlar Þórður Snær að birta frétt upp úr stolnum síma skip­stjórans. Samtalið er eftir­farandi:

Þórður Snær Júl­í­us­son rit­stjóri Kjarnans.

Þórður Snær: Páll?

Páll: Það er hann.

Þórður Snær: Heill og sæll ég heiti Þórður Snær og er ritstjóri Kjarnans. Hvernig sæki ég að þér?

Páll: Bara ágætlega.

Þórður Snær: Þú kannast alveg við mig?

Páll: Jú, jú.

Þórður Snær: Ég ætlaði að segja að við… að okkur hafa borist talsvert magn gagna sem sýna fram á að grein­arnar sem þú hefur verið að skrifa undan­farin ár séu unnar í samvinnu við launaða starfs­menn og ráðgjafa innan Samherja.

Páll: Okei.

Þórður Snær: Og vildi einfald­lega gefa þér tækifæri til að bregðast við þessu.

Páll: Þú hefur sem sagt þessi gögn undir höndum?

Þórður Snær: Já.

Páll: Glæsilegt að þú sért búinn að viðurkenna það.

Þórður Snær: Já.

Páll: Ég mun þá afhenda lögreglunni þessar upplýsingar. Þetta samtal er tekið upp. Þú verður spurður út í þetta af lögreglu.

Þórður ítrekar spurninguna um hvort skip­stjórinn vilji bregðast við en Páll kveðst ekkert hafa að segja. Samtalinu er slitið. Það mælist rúmlega mínúta að lengd.

Sex dögum fyrir símtalið hafði Páll kært til lögreglu byrlun og símastuld. Skip­stjórinn vissi ekki hverjir stæðu að baki atlögunni að sér fyrr en hann fékk símtalið.

Verðlauna­blaða­maðurinn afhjúpaði sjálfan sig.

Spurningin sem Þórður Snær leggur fyrir Pál, hvort hann hafi fengið aðstoð við að skrifa greinar, er efst í huga ritstjórans. Annars væri það ekki fyrsta og eina spurningin.

Höfuðsynd Páls skip­stjóra var að fá aðstoð við að skrifa greinar í fjölmiðla. Fæstir myndu kenna athæfið við stórglæpi.

Í meðförum Þórðar Snæs og félaga á Stundinni og RÚV, RSK-miðla, verður þessi fjöður að fimm hænum: skæruliða­deild Samherja.

Af símtalinu að dæma væri nær að tala um ritvinnslu­deild Samherja. Til að gögnin kæmust í hendur Þórðar Snæs þurfti að byrla Páli skip­stjóra, stela síma hans og afrita. Það eru alvarlegir glæpir, bana­tilræði, þjófnaður og brot á friðhelgi. Nokkuð langt seilst til að upplýsa hvernig skip­stjóri ber sig að við greinar­skrif.

Þórður Snær er sakborningur í lögreglu­rannsókn. Ekki Páll skip­stjóri, sem varð fyrir árás á líf, heilsu og einkahagi til að fjöl­miðlar mættu upplýsa hvernig stæði á ritstörfum hans.

Í huga ritstjórans er Páll aftur sekari en syndin. Þórður Snær á hinn bóginn maður mann­réttinda og sann­leikans „sem valdið vill kæla.“

Blaðamenn standa að baki líkams­árás og þjófnaði og verðlauna sjálfa sig fyrir verknaðinn. En kalla það „kælingu“ er lögregla rannsakar glæpinn. Kómedía mann­lífsins gerist ekki svartari.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning